Ef ég fengi slag

Þá vildi ég drepast sem allra fyrst. Á því eru mjög góðar líkur. Ég bý einn og væri líklega búinn að liggja marga daga áður en einhver kæmi að mér. Ef ég væri þá enn á lífi væru mögulerikarnir til að ná sæmilegum bata líklega að engu orðnir.

Og ekki vildi ég vera lamaður hálfviti  það sem eftir væri ævinnar.

Ef svo ólíklega skyldi vilja til að ég væri enn þokkalega með lífsmarki eftir að ég fyndist en kannski lamaður og mállaus myndi mér ekki finnast taka því að fara í einhverja endurhæfingu. Miklu nær væri að fyrirfara sér.

Ég veit líka að ég myndi ekki fá neinn stuðning "fjölskyldunnar" því hún fyrirfinnst ekki.

Mikið eru svo þessi eilífu heilsufarsátök orðin óþolandi. Það er ekki hægt að opna Morgunblaðið án þess að þar sé ekki heilaslagsdagur, alzheimersdagur, hjartadagur, blöðrudagur, beinþynningardagur, endaþarmsdagur, krabbameinsdagur, gigtardagur eða ég veit ekki hvaða andskotans dagur.

En allir daga taka enda, Og þetta endar allt á einn veg: Við deyjum. Og hvað er svona voðalegt við það?

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Yngvi Högnason

Sammála þér með dauðann, ekki það versta sem gæti komið fyrir. Ekki kannski svo slæmt að fá slag og vera lamaður hálfviti  heldur, því líklega veit maður þá ekki af því. En hugsaðu þér, það er fullt af ólömuðum hálfvitum sem halda að íslendingar séu eitthvað sérstakir og taki öðrum þjóðum fram. Haha. Til hamingju með daginn.

Yngvi Högnason, 20.10.2007 kl. 17:13

2 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Ég bý líka ein og stundum líður mikið meira en heil vika án þess að nokkur komi í heimsókn.
Ég óttast stundum að drepast úr hjartaslagi eða einhverju og verða svo étin af köttunum mínum sem annars dræpust úr hungri. Því enginn myndi gefa þeim mat, þar sem ekki kjaftur myndi vita að ég væri dauð.

Mér er svo sem sama sjálfrar mín vegna, þó kettirnir éti jarðneskar leifar mínar, en það væri líklega óhuggulegt fyrir þann sem myndi álpast til að finna mig á endanum, hálfétna upp til agna.

Svava frá Strandbergi , 20.10.2007 kl. 18:45

3 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Ég er viss um að Mali mundi ekki líta við mér. Hann er óguðlega matvandur. 

Sigurður Þór Guðjónsson, 20.10.2007 kl. 19:02

4 Smámynd: Ibba Sig.

Myndu kisurnar þínar ekki hlaupa upp á Borgarspítala og mjálma utan í einum myndarlegum lækni sem myndi fatta að hann ætti að fylgja þeim þangað sem þú lægir veikur? 

Ibba Sig., 20.10.2007 kl. 21:37

5 Smámynd: Þórdís Bára Hannesdóttir

 þetta er nú meiri gálgahúmorinn hjá ykkur.  Þið eruð ekki dauð úr öllum æðum svo mikið er víst.

Þórdís Bára Hannesdóttir, 20.10.2007 kl. 22:35

6 Smámynd: Halla Rut

Þú ert nú ekki dauður fyrr en þú ert dauður svo hættu þessu mjálmi

Af hverju talar þú ekki við Rauða Krossinn og færð heimsókn svona einu sinni í viku. Það er alveg nauðsynlegt fyrir fólk í þinni stöðu. Vertu jákvæður og spáðu í það.

Halla Rut , 20.10.2007 kl. 22:40

7 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Hættu þessu mali Halla Rut! Ég er ekkert að mjálma, aðeins lýsa aðstæðum sem ég er reyndar alveg sáttur við. En ég segi það satt: Heldur vil ég vera étinn af Mala en liggja heiladauður í dvala.

Sigurður Þór Guðjónsson, 21.10.2007 kl. 00:08

8 Smámynd: Halla Rut

Ok ef svo fer skal ég koma og taka þig úr sambandi og taka svo köttinn að mér....

Halla Rut , 21.10.2007 kl. 00:10

9 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Nú, þú situr bara við tölvuna Halla Rut og bíður eftir svari. En hvernig væri nú að taka mig að sér en taka köttinn úr sambandi? 

Sigurður Þór Guðjónsson, 21.10.2007 kl. 00:15

10 Smámynd: Júlíus Valsson

Góð áminning Sigurður!
Það er kominn tími til að hætta þessu heilsu- og peningakjaftæði í þjóðfélaginu og fara að huga að náunganum. Það er mikið til af einmana fólki hér á landi, sem er afskipt.
Bloggið (og raunar Netið) er gott að því leyti, að það kemur fólki í samband við umheiminn en það er ekki á allra færi að blogga. Það er líka nauðsynlegt að fá að sjá framan í fólk og finna einhverja smá nálægð og hlýju. Tölvurnar eru hálf tilfinningalausar.
Þú ættir að bjóða nokkrum bloggurum til þín í bloggkaffi, þeir geta haft tölvurnar sínar meðferðis. Ég veit að þú ert skemmtilegur og fróður, en getur kannski verið svolítið kaldhæðinn en það er bara ágætt. Það er gáfumerki.

Júlíus Valsson, 21.10.2007 kl. 11:23

11 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Já Júlíus, ég ætti til dæmis að bjóða bloggvinunum Jónu Á. Höllu Rut, Tótu pönkínu, Norðurmýrissólinni, Ólínu, Önnu Karen, Dögg Páls, Önnu Kristjáns, Maríu menningarvita, svo nokkrar sætar bloggvinkonur séu nefndar og til mótvægis sætleikanum til dæmis Jóni Val, Hannesi Hólmsteini, þér Júlíus, Ágústi H. sr. Alfreð og Baldri Kristjánssyni, svo ég nefni nokkra harðvítuga bloggvini af handahófi. Ég sé alveg kompaníið fyrir mér. 

Sigurður Þór Guðjónsson, 21.10.2007 kl. 11:57

12 Smámynd: Júlíus Valsson

Þetta hljómar mjög vel! É mæti! Við gætum skálað fyrir nýja heilbrigðisráðherranum (í trönuberjasafa)!

Júlíus Valsson, 21.10.2007 kl. 12:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband