Svindl

Allar árstíðir hafa síns til ágætis nokkuð. En mér finnst nóvember og desember orðnir leiðinlegustu mánuðir ársins. Orsökin er þetta taumlausa jólastand. Tveir mánuðir af jólahasar gera það að verkum að maður er örmagna af jólahorror þegar jólin loksins byrja. Þegar ég var drengur byrjaði þetta stand alltaf fyrsta desember. Þá vaknaði maður við það að jólaskreytingar voru komnar um allar götur. Og búðirnar fóru í gang um svipað leyti. Í þá daga var stemning og jól í lofti. Nú er þessi ofgnótt bara stemningarlaus subbuskapur. Ekki bætir svo úr skák að það verður æ algengara að menn láti jólaljósin loga fram á vor.

Þetta heitir sukk og svínarí og er af sama meiði og agaleysið í umferðinni og drykkjuorgíurnar um helgar.

Nú, en hvað um það, fjandinn hafi það. Einn ljós punktur er í þessu jólasukki. Það eru bækurnar.

Jólabókaflóðið er nú fremur seint til og ekkert bólar á Bókatíðindunum.

Það er gamall vani minn að rölta oft í bókabúðir fyrir jólin og skoða herlegheitin. Í dag var ég í Eymundsson og fór þá ekki rafmagnið í miðjum klíðum. Varð þá heljarinar pannik og ung og sæt afgreiðslustúlka baðaði út öllum öngum og fór að halda ræður fyir búðargestum því tölvudraslið fór náttúrlega allt úr sambandi svo ekkert var hægt að afgreiða og því þurfti að róa niður bókóðan mannsskapinn. Þetta var óvænt fjör. Svo kom rafmagnið fljótlega aftur og þá  var ekkert fjör lengur. 

Ég hef séð eina bók nú þegar sem ég ætla að útvega mér: Nútímastjörnufræði. Það er bók sem hefir eitthvað að segja og það úr ljósárafjarlægð og sér ljósár fram um tímann.  Flestar jólabækur sem mest er hampað hafa því miður ekkert að segja og eru þröngsýnar með afbrigðum.

Ég las í blaði í tilefni af væntanlegri ævisögu Davíðs Stefánssonar að vinstri menn á Íslandi hafi markvisst unnið að því að koma í veg fyrir að hann hefði verið tilnefndur til Nóbelsverðlauna.

Það var gott hjá vinstri mönnum.

Það var hreinlega út í hött að láta sér  detta í hug að hraðmælskur hagyrðingur væri verðugur Nóbelsverlauna jafnvel þótt hann hafi slegið nýjan tón í íslenskri ljóðlist sem entist honum þó æði skammt. Ég trúi því svo sem ekki að nokkur hægri maður hafi verið svo glámskyggn og banal að hafa viljað í alvöru útnefna Davíð en verið stoppaður af vondum vinstri mönnum.

En nú er jólabókaflóðið að bresta á og það verður að selja bækurnar með öllum ráðum. 

Ég bíð í ofvæni eftir ævisögu Þórbergs sem mér skilst að nái bara til 45 ára aldurs. Það hlýtur þá að vera bara fyrra bindið. Annað væri algjört svindl.

En lífið er svo sem ekkert nema eitt allsherjar svindl.

  


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásta Björk Solis

Ekki er nu jolastand her eins og er,en thad byrjar alltaf  daginn eftir thakkargjordardaginn.Sem er 22,november.Og mer fynnst thad nu of snemmt.

Ásta Björk Solis, 5.11.2007 kl. 16:23

2 Smámynd: Ásta Björk Solis

Eg by i Abilene Tx

Ásta Björk Solis, 5.11.2007 kl. 16:47

3 Smámynd: Linda

Ég vildi óska þess að þeir mundu bíða með þetta þar til í Desember, ég er svo innilega sammála þér þetta er hræðilega þreytandi og maður fyllist kvíða þegar þetta byrjar allt saman.

Linda, 5.11.2007 kl. 17:38

4 Smámynd: María Kristjánsdóttir

Já, nú koma bækurnar og enn er ég að brjótast í gegnum síðasta flóð. Eru þær orðnar fleiri? Eða er sjónin orðin svona slæm? Annars finnst mér nú öll ljósin ansi góð í myrkrinu.

María Kristjánsdóttir, 6.11.2007 kl. 00:09

5 identicon

Svo innilega sammála þér.

Svo er jólafarganinu varla lokið þegar ekkert kemst að hjá landanum annað en súrmeti og annar skemmdur matur. Enginn er maður með mönnum nema anga af úldnum hákarli alla daga.

Þegar maður er rétt farinn að venjast óþefnum, þá þykir hann ekki lengur móðins. Þá er rétt svo að maður geti slakað á, en nei. Þá byrjar eitt ballið enn. Maður er ekki spurður hvort maður ætli erlendis í sumarfrí, heldur á hvaða strönd maður ætli að liggja eins og skata. Fólk þyrpist umvörpum í næturlangar biðraðir eftir sólarlandaferðum, eins og það fengi borgað fyrir það.

Loksins kemur vorið með sól í sinnið. Sólarlandaliðið farið og maður væntir loks friðar hér heima. Ó, nei. Þá byrjar versta holskefla ársins. Heilir þrír mánuðir af endalausum fellihjólhýsatjaldvagnaliði í útvarpsbensínstöðvagosdrykkjaferðaleikjum, grillandi þetta og grillandi hitt. Alþýðan, étandi ekki annað en grillmat allt sumarið. Milli þess sem það er ekki að þvælast um með skuldahalana í eftirdragi, bisast það við að smíða sem stærsta og ljótasta sólpalla. Allir verða að hafa sólpalla undir þessi risastóru gasgrill, sem eru orðin svo tæknileg og flókin að matseldin er orðin aukaatriði.

Úff, Varla að maður sé búinn að þvo grillreykjarstækju nágrannanna úr lörfum sínum, að haustið er brostið á. Haustið með sínu yfirþyrmandi námskeiðahaldi; Brennslunámskeiðum, tölvunámskeiðum, leiklistarnámskeiðum og endalausum námskeiðum í námskeiðahaldi. Ekki pláss, í póstkassanum, fyrir þann póst sem maður kærir sig um fyrir öllum námskeiðahaldspésunum.

Áður maður hefur náð að losa um teppuna í póstkassanum er brostinn á harður vetur, með tilheyrandi miðaldamyrkri, stinningskalda og snjóéljum og öðru aftakaveðri. Æ hvað er þá gott að fá blessuð jólin.

Blessuð björtu jólin.

Brjánn Guðjónsson (IP-tala skráð) 6.11.2007 kl. 01:31

6 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Bráðum koma blessuð jólin,
börnin fara að hlakka til.
Allir fá þá eitthvað fallegt,
í það minnsta kerti og spil.

Svoleiðis ættu jólin að vera ennþá. 

Svava frá Strandbergi , 6.11.2007 kl. 01:59

7 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Jólin eru og verða það sem við viljum sjálf gera úr þeim, er það ekki ? Mér leiðist allt þetta verslunaræði og auglýsingaflóð og þá forðast ég það eins og ég get, en forðast jafnframt að láta það fara í taugarnar á mér. Við höfum val

Jónína Dúadóttir, 6.11.2007 kl. 08:31

8 Smámynd: Gulli litli

Jólabókaflóðið og hangiket, það er nóg fyrir mig. Ævisaga Davíðs Stefánssonar er eitthvað sem ég gæti hugsað mér...

Gulli litli, 6.11.2007 kl. 12:48

9 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Ég fer reyndar létt með að leiða leiðindin hjá mér en þetta er samfélagslegt mál og ég er að pæla í því hver ræður þessu að taka jólavesenið svona snemma því flestir virðast vera á móti því. Láta menn bara kaupmenn teyma sig? Ef andúð almennings yrði skýr og kæmi fram myndi þetta kannski vera öðru vísi. En vill fólk kannski bara hafa þetta svona eftir allt saman? 

Sigurður Þór Guðjónsson, 6.11.2007 kl. 12:57

10 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Já, ég var reyndar ekki að tala um jólin sem slík heldur aðdraganda þeirra, dettur nokkrum í hug að það séu jól í októberlok?

Sigurður Þór Guðjónsson, 6.11.2007 kl. 12:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband