Lesið á bloggi

Ég las það á bloggi í dag að ég væri skilningslaus í garð þeirra sem þjást af þunglyndi og sorg.

Sorg og þunglyndi er reyndar sitt hvort fyrirbærið. En ókei, ég er últra skilningslaus á þunglyndi manna, sorg og sút. 

Þetta er víst eitthvað út af borgarstjóranum sem ég er sagður vera svona  vondur.

Og ég las þetta á kristilegri bloggsíðu.

Ég veit ekki hvar maður væri með ódyggðirnar ef ekki væru þessar Jesúsíður til að leiðbeina manni alltaf á hina einu réttu lífsins braut.   

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnheiður

í vondum málum ?

Ég fer aldrei á þessar Jesúsíður, þori ekki þangað

Ragnheiður , 2.2.2008 kl. 22:17

2 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Hvaða síða er þetta, Siggi?

Lára Hanna Einarsdóttir, 2.2.2008 kl. 22:23

3 Smámynd: Brjánn Guðjónsson

ésú er besti vinur baddnanna

Brjánn Guðjónsson, 2.2.2008 kl. 22:35

4 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Forvitni í dós, Lára!

Sigurður Þór Guðjónsson, 2.2.2008 kl. 22:43

5 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Mig langar bara að sjá þetta. Fór inn á síðu JVJ og þetta var ekki þar en nýjasti pistillinn hans óborganlega fáránlegur samt.

Hvaða síða er þetta? Ég þekki ekki jesúmannasíðurnar.

Lára Hanna Einarsdóttir, 2.2.2008 kl. 22:46

6 Smámynd: halkatla

Jesú hefði aldrei sagt þetta um þig

halkatla, 2.2.2008 kl. 22:58

7 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Lára mín! Leitið og þér munið finna!

Sigurður Þór Guðjónsson, 2.2.2008 kl. 23:01

8 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Búin að finna þetta, fattaði ekki að lesa athugasemdirnar, skildist að þetta hefði verið sagt í færslu.

Veistu það, Siggi... mér er fyrirmunað að skilja hvernig þú nennir að tala við þetta lið. Það er nákvæmlega sama hvað hver segir við það og hversu hroðalega það öfugsnýr sannleikanum. Þetta er eins og að skvetta vatni á gæs.

Mér verður hreinlega flökurt við að lesa þetta endemis eilífðarbull í þeim.

Lára Hanna Einarsdóttir, 2.2.2008 kl. 23:11

9 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Hreinum er allt hreint! Og ég er auk þess ístöðulaus og veiklundaður. Jafnvel sérlundaður!

Sigurður Þór Guðjónsson, 2.2.2008 kl. 23:14

10 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Ég gafst upp á lestrinum, hef annað og betra við tíma minn að gera en sendi þér bara stuðnings- og baráttukveðjur - þú mátt velja málefnið.

Lára Hanna Einarsdóttir, 2.2.2008 kl. 23:17

11 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Tölum um guð.

Sigurður Þór Guðjónsson, 2.2.2008 kl. 23:28

12 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Nei, þá fyllist allt hér af vitleysingum. 

Lára Hanna Einarsdóttir, 2.2.2008 kl. 23:37

13 Smámynd: Þorkell Sigurjónsson

Sæll og blessaður frændi. Ekki tel ég mig nú neinn sérstakan guðsmann, en það er margt sem hægt er að lesa út úr guðsorða snakkinu og sérstaklega það sem lesa má á milli línanna. 

Ps. Gott viðtalið við þig í Fréttablaðinu í gær. Varð samt fyrir léttu áfalli þegar þú sagðist telja þig vera Reykvíking, en svo bregðast krosstré sem önnur tré.   Kveðja.

Þorkell Sigurjónsson, 3.2.2008 kl. 07:08

14 Smámynd: Anna Benkovic Mikaelsdóttir

Mér finnst þú nú hafa opnað umræðuna um þunglyndi...Guðsmenn eru alltaf að hugsa um launin sín, löngu hættir að hugsa.

Anna Benkovic Mikaelsdóttir, 3.2.2008 kl. 09:16

15 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Fólk segir svo margt..skrifar..en það er ekkert endilega neitt svo mikið vit í því. Ég tel að sá sem hafi reynsluna og miðli frá henni hafi meira um efnið að segja en einhverjir sjálfskipaðir siðapostular sem hafa allt sitt úr bókalestrinum.

Sendi þér bara kærleiksknús af því að ég veit að þú ert svo mikið fyrir sollis!!

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 3.2.2008 kl. 10:04

16 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Keli: Jeúsús minn! Nú hef ég talað af mér eða réttara sagt vantalað, ég kom þessu ekki að að ég væri BÆÐI Reykvíkingur og Vestmannaeyingur.Skyldi guð nokkuð geta fyrirgefið mér þessa höfuðsynd? Anna: Takk fyrir þetta. Og ekki síður takk fyrir bésvítans knúsið hennar Katrínar.

Sigurður Þór Guðjónsson, 3.2.2008 kl. 10:32

17 Smámynd: Þorkell Sigurjónsson

Siggi: Eigi veit ég það svo gjörla hvað guð gerir, en ég fyrirgef þér þessa óttalegu höfuðsynd þína.

Þorkell Sigurjónsson, 3.2.2008 kl. 10:38

18 Smámynd: Svala Jónsdóttir

Það spretta nú ekki beinlínis kristilegu kærleiksblómin á þessum "kristni" bloggum, alla vega mörgum þeirra.

Viðtalið í Fréttablaðinu var mjög fínt.

Svala Jónsdóttir, 3.2.2008 kl. 22:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband