Myndbirtingar

Til hvers eru fjölmiðlar að birta myndir af dæmdum sakborningum sem aðeins fá 30 daga skilorðsbundinn dóm og smávægilega sekt? Það er ekki eins og brotið hafi jafnast á við morð eða gróft kynferðisbrot.

Mynd-og nafnbirtingar vegna svo vægra afbrota eru ekkert nema ótuktarskapur sem aðeins þjónar því markmiði að  niðurlægja viðkomandi fyrir alþjóð. Ég tala nú ekki um þegar augljóslega er um hálfgerða smælingja að ræða sem ekki hafa afl til að að takast á við hákarlana í þjóðfélaginu.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ólafur Þórðarson

Góður punktur. Manni er spurn hvað býr að baki svona hlutum, hvað menn eru að pæla.  Hér í Ameríku ef menn fá fangelsisdóma er algengt að fólk gantist með fangelsisnauðganir, jafnvel eins og það sé sjálfsagt mál að "svoleiðis fylgi með" dómnum.

Ólafur Þórðarson, 27.2.2008 kl. 17:45

2 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Kom veffarinn alla leið frá Ameríku. En afhverju koma ekki orðhákarnir sem ömuðust við færslu minni um valdstjórnina hér inn líka með snjallar athugasemdir sínar. Nú hafa þeir þagnað. 

Sigurður Þór Guðjónsson, 27.2.2008 kl. 17:59

3 Smámynd: Jonni

Ég er alveg sammála Sigurður. Myndbirting er refsing í sjálfu sér í þessu samhengi og fyrir smádóma mun verri refsing en sjálfur dómurinn. Hvar er löggjöfinn í þessu, er það ekki hlutverk hennar að standa vörð um mannréttindi okkar? Hér er brotinn pottur og hann er á alþingi.

Jonni, 27.2.2008 kl. 19:58

4 Smámynd: Elías Halldór Ágústsson

Ekki var birt mynd af manninum sem nauðgaði barnfóstrunni og fékk tveggja ára fangelsi fyrir, það var ekki einu sinni birt nafn í dómnum. Hvern var verið að vernda? Nú er ég ekki mikill fylgjandi nafn- og myndbirtinga, en mér finnst að hér mætti finna jafnvægi. Þegar þessi tvö dæmi eru borin saman er augljóst að óréttlæti hefur verið framið.

Elías Halldór Ágústsson, 27.2.2008 kl. 20:29

5 identicon

Mér finnst að það eigi alltaf að birta myndir af nauðgurum, barnaníðingum og öðrum álíka, að birta myndir af mönnum í smáglæpum er bara rugl

DoctorE (IP-tala skráð) 27.2.2008 kl. 21:50

6 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Ég veit ekkert um hvaða myndbirtingu þið eruð að tala en Doctorinn ruglar mig í ríminu með þessum hröðu mynbreytingum.

Hvaða blað er um að ræða?

Lára Hanna Einarsdóttir, 27.2.2008 kl. 21:54

7 Smámynd: FF

Algjörlega sammála þér Sigurður.

FF, 27.2.2008 kl. 22:18

8 Smámynd: Elías Halldór Ágústsson

Lára: Fléttabraðið birti mynd af sakborningnum í þvagleggsmálinu. Áður hafði nafn hennar verið birt í dómnum. Sama dag er birtur dómur þar sem 37 ára karlmaður fær 2 ára fangelsisdóm fyrir að nauðga 14 ára stúlku. Hann var ekki nafngreindur.

DoctorE: Nöfn dæmdra kynferðisafbrotamanna eru stundum ekki birt til þess að vernda fórnarlömbin, sem í vissum tilfellum tengjast þeim fjölskylduböndum. Sú var hins vegar ekki raunin í þessu máli.

Elías Halldór Ágústsson, 27.2.2008 kl. 23:28

9 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Takk, Elías... nú skil ég. Þetta er fáránlegt.

Lára Hanna Einarsdóttir, 27.2.2008 kl. 23:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband