Sloppið með skrekkinn

Í dag þegar ég leit í veskið mitt var þar ekkert kreditkort.

Mér brá í brún og sá fram á að einhver væri búinn að taka út á það alveg heil ósköp.

Í gær verslaði ég aðeins á tveimur stöðum. Ég keypti gamla bók í Bókavörðunni hjá Braga. Og ég keypti mér vínarbrauð sem ég át af græðgi með ilmandi kaffisopa. Byrjaði á því að fara í bókabúðina. Þar höfðu menn ekki séð neitt kort. En viti menn! Var ekki kortið í Sandholtsbakaríi. Þar varð fyrir svörum falleg stúlka. En einhver hafði gert sér lítið fyrir og fengið sér te og brauð út á kortið sem hann hefur fundið á borðinu eða gólfinu. Meira var það ekki því starfsólkið áttaði sig því ég er alltaf þarna meira og minna. Það tók kortið frá og skrifaði hjá sér það sem út á það hafði verið tekið eftir að ég fór út úr bakaríinu í gær. Og það var mér endurgreitt óumbeðið.

Ég slapp sem sagt með skrekkinn og hef snöggtum meiri trú á mönnunum  - að ekki sé sagt konunum - í dag en í gær.

Sandholtsbakarí er mikið sómabakarí.

  

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Allt er gott sem endar vel. Þetta er til ennþá, sem betur fer.

Lára Hanna Einarsdóttir, 28.2.2008 kl. 23:16

2 identicon

Sæll, ó, þú hugumglaði. Ég óska þér til hamingju með að trú þín á mannkyninu er endurvakin og megi hún bera ríkulega ávexti á degi hverjum hér eftir. Það er gott að Sandholtsbakaríisfólkið er heiðarlegt og svo er náttúrulega varan þeirra "out of this world".  Ég fer þangað eingöngu 3 ´svar á ári sökum þess að mér finnst allt svo gott þarna hjá þeim og myndi ég þá enda þrefaldur í holdafari, læt mér nægja að vera tvöfaldur í holdafari. Með beztu  kveðju.

bumba (IP-tala skráð) 29.2.2008 kl. 00:07

3 identicon

Trú þín þarf að beinast gegn því, þegar þú næst glatar kortinu. Þú fékkst bara staðfestingu á hinu; að fólk er flest gott.

En þú vissir það nú þegar, þó þú viljir gjarnan kíkja á hina hliðina... 

Jóhann (IP-tala skráð) 29.2.2008 kl. 01:41

4 Smámynd: Heidi Strand

Eller når enden er god er allting godt, sa hun og fikk brødskalken.
Jeg glemte håndveske med lommebok på disken i danske bakeriet i Reykjavik for noen år siden. Jeg dro til bakeriet igjen og fikk  tilbake veska med alt i.
Det var ikke engang noen som hadde fått seg kaffekopp på min regning.
Jeg er helt enig i at Sandholtbakeri har byens beste kaker. De er så friske og smelter på tungen.
Vi bor inn ved sund, og før så dro jeg helt ned til Sandholtsbakeri på Laugaveg til å få godt brød, men nå har jeg oppdaget et bakeri som er nærmere. Det er Mosfellsbakeri på Háaleitisbraut.
Det eneste jeg savner i brødutvalget på Island, er ekte rugbrød slik de man får i Danmark.

Heidi Strand, 29.2.2008 kl. 06:51

5 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Æ, ég hefði ekki átt að nefna vínarbrauð við þig í gær:

2 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

þetta er svívirðilegt að heyra að saklausu fólki sé vikið úr störfum vegna öfgamanna. Jæja, svo Dönum finnst gott að láta taka sig í rassgatið. Shit!

Sigurður Þór Guðjónsson, 28.2.2008 kl. 07:48

3 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Sigurður, ég sé að þú ert búinn að borga auglýsingamafíunni. Ég kaupi mér heldur vínarbrauð fyrir þá skildinga.  etc.

   Og svo varst þú rokinn út í Sandholtsbakarí til að kaupa vínarbrauð. Mikill er máttur bloggsins og auglýsinga.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 29.2.2008 kl. 07:18

6 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Svo dreg ég í efa hversu ágæt þú ert Halla mín!! 

Sigurður Þór Guðjónsson, 29.2.2008 kl. 10:10

7 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Það er auðvitað vafamál hversu ágætt mannkynið sé. Lesiði fréttirnar. Það er mála sannast að það sé bæði gott og vont. Ég er hallur undir skoðanir Freuds að þessu leyti. Sá  var nú ekki að líta framhjá því óþægilega um okkur. 

Sigurður Þór Guðjónsson, 29.2.2008 kl. 10:12

8 Smámynd: halkatla

frábær flétta og að þið nefnið Freud í þessu samhengi: enn betra!

halkatla, 29.2.2008 kl. 11:01

9 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Freud- Freude, schöner Götterfunken!

Sigurður Þór Guðjónsson, 29.2.2008 kl. 11:27

10 Smámynd: Ásta Björk Solis

Thettad kalla eg topp afgreidslufolk

Ásta Björk Solis, 29.2.2008 kl. 18:23

11 Smámynd: Jón Bragi Sigurðsson

Sælir Sigurður

Hefurðu hugleitt þann möguleika að stúlkan í bakaríinu hafi kannske hreinlega verið að "fala þig" einsog Þórbergur lenti í um árið í bakaríinu?

Sú stúlka sagði "var það nokkuð fleira fyrir yður" og honum sýndist skína svo mikil löngun úr augunum á henni....

Jón Bragi Sigurðsson, 1.3.2008 kl. 07:22

12 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Stelpan var útlend. Hún gat því ekki sagt þessa gullvægu setningu: "var það nokkuð fleira fyrir yður" en það var samt það sem hún hugsaði! 

Sigurður Þór Guðjónsson, 1.3.2008 kl. 10:31

13 Smámynd: Greta Björg Úlfsdóttir

Bíddu, en hvað með þann sem fékk sér te og brauð út á kortið þitt? Drakk hann bara te-ið og og innbyrti brauðið labbaði út við svo búið?

Greta Björg Úlfsdóttir, 1.3.2008 kl. 17:49

14 Smámynd: Greta Björg Úlfsdóttir

...nú, eða hún...

Greta Björg Úlfsdóttir, 1.3.2008 kl. 17:49

15 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Gréta Björg: Þetta er ein af hinum miklu ráðgátum mannsandans. En ég ímynda mér að hann eða hún hafi aldrei fengið það sem hann eða hún bað um því starfsfólkið hafi fattað í þeim svifum hvað um var að vera og tekið kortið í sína vörslu. Þess vegna hafi mér verið endurgreitt. Annars hefði hann farið með bara með kortið úr búðinni. Annars er það kaldhæðni örlaganna að í dag rann þetta debetkort út! Og ég er svo mikill sauður í viðskiptum að ég man ekkert hvernig á að endurnýyja svona kort.

Sigurður Þór Guðjónsson, 1.3.2008 kl. 17:56

16 Smámynd: Greta Björg Úlfsdóttir

Já, þjófurinn hefur hlaupið svangur á dyr, gott á hann!

Greta Björg Úlfsdóttir, 2.3.2008 kl. 04:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband