Lifi ferskleikinn!

Auðvitað á hver maður að vera ábyrgur orða sinna í öllum mannlegum samskiptum.

Bloggið er tiltölulega nýr miðill þar sem bloggarinn er sjálfur sinn eigin ritstjóri.

Menn þurfa kannski dálítinn tíma til að átta sig á þeim miðli.

Ég vona samt að bloggið verði aldrei jafn tamið og leiðinlegt og dagblöðin og tímaritin.

Það sem gerir vel skrifað blogg, og aðeins vel skrifað blogg, svo frjálsegt og skemmtilegt er einmitt það hvað það leyfir sér að tefla á tvær hættur stílslega séð.

Þennan ferskleika þarf að vernda ef bloggið á ekki að verða eingöngu lágkúra. Nóg er af henni á bloggi í ýmsu formi en þar er líka ýmislegt annað. Það er líka nóg af lágkúru og flatneskju í blöðunum, hún er bara viðurkennd og samþykkt, ekki síst í ritstjórnargreinunum sem eiga samt víst að vera voða virðulegar.  

Við skulum vona að bloggið eigi aldrei eftir að breytast í ómerkileg lítil einkadagblöð. 

Lifi ferskleikinn!

Ég er algerlega andvígur því að utanaðkomandi öfl gefi fordæmi um það hvernig bloggheimurinn eigi að haga sér. Hann á að gera það sjálfur. Síst af öllu á stóri bróðir að segja honum fyrir verkum.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Innilega sammála þessu og eiginlega engu við að bæta.

Sæmundur Bjarnason, 29.2.2008 kl. 17:57

2 Smámynd: Árni þór

Finnst samt að fólk eigi að skrifa undir sínu rétta nafni

Árni þór, 29.2.2008 kl. 21:39

3 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Sammála og segi eins og Sæmi - engu við þetta að bæta.

Lára Hanna Einarsdóttir, 29.2.2008 kl. 22:12

4 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Það er ekki verra að blogga nafnlaust en skrifa nafnlausa leiðara í blað eða Staksteina. Það geta verið gildar ástæður fyrir því að blogga nafnlaust. Það afsakar samt ekki andstyggilegheit. Þau finnst mér mesti ljóður bloggsins, ekki endilega meiðyrðiN En mannlífið er nú enginn englagarður og bloggið er bara eins og mannlífið.

Sigurður Þór Guðjónsson, 1.3.2008 kl. 00:33

5 Smámynd: Ásgeir Kristinn Lárusson

Takk fyrir þarsíðustu færslu - þar er reisn og þar er stíll...

Ásgeir Kristinn Lárusson, 1.3.2008 kl. 10:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband