Fagurhólsmýri þegir

Enginn veðurskeyti hafa borist frá Fagurhólsmýri í nokkra daga. Það er þó ekki búið að leggja hana niður sem mannaða veðurstöð? Slíkum stöðvum fækkar sí og æ.

Einu er ég að pæla í. Hvernig verður með staðfestingu hita- og kuldameta þegar stöðvar sem mælt hafa hitann á kvikasilfursmæla breyta yfir alfarið í sjálfvirkar mælingar? Það kemur nefnilega all-oft fyrir á veðurstöðvum sem mæla bæði á kvikasilfur og sjálfvirkt að hámarkshitinn á sjálfvirka mælinum er þrjú til fjögur stig hærri en á kvikasilfrinu (t.d. á Eyrarbakka í gær). Sem sagt ef t.d. mældust 30 stiga hiti á sjálfvirka mælinum á Fagurhólsmýri yrði það staðfest sem hitamet en 28.5 stig hafa þar hæst mælst á kvikasilfursmæli. 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Mannaðar athuganir á Fagurhólsmýri heyra nú sögunni til - eftir rúmlega 100 ára samfelldan athugunartíma. Athugunarmenn sögðu upp - reynt var að fá aðra í nágrenninu - en enginn er tilkippilegur. Útlit er fyrir að Hraun á Skaga fari sömu leið mjög fljótlega - þar hefur verið mælt í meira en 50 ár. Trausti Jónsson 

Trausti Jónsson (IP-tala skráð) 4.5.2008 kl. 16:35

2 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Voðalegt vandræðaástand er þetta! Bráðum verður bara ekkert veður!

Sigurður Þór Guðjónsson, 5.5.2008 kl. 00:20

3 Smámynd: Viðar Jónsson

Heill og sæll veðurstjóri! Ég er nú að vona að þú brjótir fyrr en seinna lífsregluna um að skrifa bara um veðrið. Annars finnst mér að það eigi eingöngu að skrifa um brjálað veður. Mikið hefur verið gott undanfarið að búa ekki norður í rassgati á kafi í snjó. Allir að flytja suður!

Kveðja, Viðar J.

Viðar Jónsson, 5.5.2008 kl. 00:31

4 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Þetta er nú ekki einleikið. Ég var að skoða síðuna þína Viðar rétt í þessu!

Sigurður Þór Guðjónsson, 5.5.2008 kl. 00:50

5 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Það væri kannski ráð að biðla til hans Fjölnis á þeim fræga bæ Hala í Suðursveit. Það er ekki langt undan og Fjölnir og synir hans eru röggsamir menn. Sáu meðal annars um Jökulsárlón og byggðu up þá starfsemi, sem er þar.

Jón Steinar Ragnarsson, 5.5.2008 kl. 02:40

6 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Það væri svo sem gaman að fá athuganir á Hala en það yrði bara önnur veðurathuganastöð alveg eins og Kvísker þar sem er sjálfvirk stöð og sýnir ekki sama veðurfar og á Fagurhólsmýri. Það er hin langa samfella á Fagurhólsmýri sem er svo mikilvæg. Nú rofnar hún og það er þetta rof sem er það vonda þegar stöðvar með langa sögu hætta að vera mannaðar. Grímsey hætti líka eftir meira en hundrað ára sögu. Hvenær kemur að því að elsta stöðin, Stykkishólmur, hættir að vera mönnuð? 

Sigurður Þór Guðjónsson, 5.5.2008 kl. 07:52

7 Smámynd: Runólfur Jónatan Hauksson

Veðurathuganir í Öræfum

05.05.2008

Sigrún Sigurgeirsdóttir sem hefur séð um veðurathugunarstöðina á Fagurhólsmýri síðustu árin hefur sagt starfi sínu lausu og hætti 30.apríl sl. Ástæðuna fyrir því að Sigrún hættir segir hún fyrst og fremst vera þá að starfið sé alltof bindandi og aldrei hægt að bregða sér frá og launin eru þannig að ekki er hægt að hafa þetta sem aðalatvinnu. Það er erfitt að stunda aðra vinnu með þessu starfi þar sem veðurathugun er kl 6-9-12 - 18 og 21. Ég hef aldrei tekið mér frí þessi ár síðan ég tók við veðurathuguninni af bróður mínum og finnst mér kominn tími til að breyting verði þar á. Sigrún veit ekki hvar veðurathugunarstöð fyrir Öræfin kemur til með að vera eð hvort hún verður endanlega lögð niður a þessu svæði.

Aðspurð um veðurfar í Öræfum í vetur sagði Sigrún að það hefði eiginlega einkennst af miklum sveiflum, mikill vindur og svo logn og blíðskapar veður. Fremur kalt hefur verið sem er hagstætt fyrir gróðurinn þannig að hann fari ekki að taka við sér um hávetur eins oft hefur gerst síðustu árin. Núna er þetta allt að lifna og ég er viss um að við fáum gott sumar sagði Sigrún í lokin.

Tekið af www.hornafjordur.is

Kveðja frá suðausturlandinu þar sem lognið fer mis hratt yfir. 

Runólfur Jónatan Hauksson, 5.5.2008 kl. 11:49

8 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Fólk nú á dögum er miklu hreyfanlegra en fyrir nokkrum áratugum. Veðurathuganir eru því enn meira bindandi núna en nokkru sinni fyrr. Það er alltaf eftirsjá að veðurstöðvum sem lengi hafa athugað og flutningar stöðva skapa ýmis vandamál með samfellu í athugunum. Sjálfvirkar stöðvar hafa þó þann mikla kost að þær eru alltaf að allan sólarhringinn. Þær hafa t.d. gjörbreytt þekkingu manna á vindafari landins þann tíma sem þær hafa starfað.

Sigurður Þór Guðjónsson, 5.5.2008 kl. 14:53

9 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Eitt í viðbót um breytta tíma: Á fyrstu áratugum Veðurstofunnar var það furðu algengt að veðurathuganamenn neituðu að þiggja greiðslu fyrir verk sín. Þeir gerðu þau ánægjunnar vegna og í þeirri vissu að þau væru mikilvæg fyrir þjóðina frá ýmsum sjónarhornum. Nú hafa menn engan skilning á neinu nema eigin þægindum og eigin fjárhag.

Sigurður Þór Guðjónsson, 6.5.2008 kl. 11:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband