Gott að helgin er liðin

Þá er leiðinlegasta helgi ársins liðin. Sagt  er að hún hafi farið vel fram þó "mikill erill" hafi verið hjá lögreglu víða. Orðalagið merkir að mikið fyllerí hafi verið í gangi. Umburðarlyndi Íslendinga í garð drykkjuskapar er undravert.  Svo er verið að gera fréttaefni úr því að tvö eða þrjú "fíkniefnamál" hafi komið upp á samkomum. Og samt voru margir alveg blindfullir. En það er mórallinn að áfengi sé ekki fíkniefni. Það þykir bara sjálfsagður hlutur að drekka sig fulla. Ég drekk ekki og leiði hjá mér að umgangast drukkið fólk en að öðru leyti er ég þó ekki fantatískur í garð áfengisneyslu. Þessi tvískinnngur fer samt ofurlítið í taugarnar á mér þó þær séu úr stáli.

Anna vélstýra var að blogga um veðrið eða veðurspána. Spáð var sól og blíðu um verslunarmannahelgina alveg fram á föstudagskvöld þegar þeir fóru að breyta spánni, jafnvel eitthvað í líkingu við það sem hafði verið dagana áður þegar hitarnir miklu gengu yfir. En allt fór þetta fjandans til. Föstudagurinn var nokkuð góður en eftir það fór mestur glansinn af veðrinu. Það var að vísu hæglátt og ekki rigndi á laugardag og i gær nema á suður-og vesturlandi og á austfjörðum en lítið sást til sólar og hitastigið ver ekki til að hrópa húrra fyrir að deginum nema sums staðar norðaustanlands á laugardag, víðast hvar þessi föstu 12 stig í gær og hlýjast 16 stig á Patreksfirði af öllum stöðum.

Í bók sinni Íslendingar skrifar Guðmundur Finnbogason sem var landsbókavörður að á Íslandi sé sjaldan hægt að vera úti vegna kulda nema kappklæddur og helst á hreyfingu. Nú, eða blindfullur! Það verður kalsamt að vera úti við klukkustundum saman í 10-12 stiga hita undir sólarlausum  himni.

En svona er nú íslenskt veðurfar. Það getur skipt úr hitabylgjum í kalsa á stuttri stund. Reyndar bjargaði það miklu núna hve hiti var jafn milli dags og nætur. Næturhitinn var tiltölulega mikill þó dagshitinn hafi verið fremur lítill.  

Í gær var ég að blogga um frétt á Mbl. is sem ekki var hægt að blogga um. Hátt á annað þúsund mans hafa verið að lesa þessa færslu og var einn af hærri aðsóknartoppunum á blogginu mínu í gær og nokkuð líflegar umræður. Það dugar sem sagt ekki að leyfa ekki að bloggað sé um fréttir til að  hefta  umræður um þær. Mér finnst það hins vegar umhugsunarvert hvernig það síast út að maður sé  að blogga eitthvað merkilegt. Ekki vakti það athygli á blogginu mínu þegar menn lásu fréttina því ekki var hægt að blogga um hana og engir þar af leiðandi taldir upp sem það hefðu gert. Hvað var það þá? 

Gott er að þesi helvítis helgi er liðin og vonandi gerist ekkert hræðilegt í dag. Mánudagurin eftir verslunarmannahelgi er hættulegasti dagur heglarinnar.

Svo vorkenni ég ekki rassgat þeim sem eru að drepast úr þynnku og timburmönnum!DevilTounge


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Hehe, það hlakkar í mér vegna þeirra sem eru að drepast úr timburmönnum en ég er svo illa innrætt.

Ég er ógeðslega fegin að þessi DJÖFULS helgi er liðin.

Og að haustið kemur bráðum.

Ég er fædd í janúar.  Ég elska haust og vetur.  Þorrí.

Jenný Anna Baldursdóttir, 4.8.2008 kl. 14:33

2 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Síðast fékk ég timburmenn á nýjársdag 1980. Ég hef hins vegar alla tíð tíð verið fremur þunnur.

Sigurður Þór Guðjónsson, 4.8.2008 kl. 14:38

3 identicon

Mér fannst þetta bara góð helgi, var bara heima í góðum fíling algerlega bláedrú og fínn.
4 daga vinnuvika framundan, það er góður bónus.

DoctorE (IP-tala skráð) 4.8.2008 kl. 14:49

4 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Doktor: Þú leiðir saklaust og hjartahreint fólk í gildru. Ég þreytti grandalaus kinkyprófið hjá þér og það kom í ljós að ég er alveg diabolicaly weird and kinky!

Sigurður Þór Guðjónsson, 4.8.2008 kl. 15:38

5 identicon

Verslunarmannahelgin er ekki leiðinleg! - mér finnst þetta yfirleitt vera besta helgi ársins hérna í Reykjavík.  Eintóm róleg notalegheit.  Ég skil ekki allt þetta lið sem flykkist út úr bænum þessa helgi til að troða hvert öðru um tær þar!

Við einfararnir (sumir) elskum svona helgar.  Þá er enginn að bögga okkur og við getum óáreittir dundað okkur við þá iðju sem við elskum mest - að væflast um í iðjuleysi og skoða á okkur naflann (og ég er sko með flottan nafla! ) - á öllum tímum sólarhringsins.  Engin klukka að segja manni fyrir verkum með eitt né neitt.  (Weird og kinky hvað?! ).

Ég er mega fúl yfir því að helgin skuli vera búin...

Malína (IP-tala skráð) 4.8.2008 kl. 16:59

6 identicon

Hvað á þetta að þýða að henda út pistli sem ég var rétt byrjuð að lesa?!!  Nöldur!  Ég kvarta HÁSTÖFUM!!

Ég vil fá ástarsorgarpistilinn inn aftur!  Annars hætti ég að lesa þetta eðalblogg!

Malína (IP-tala skráð) 4.8.2008 kl. 18:48

7 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Tek undir hvert orð, Sigurður, því helgin var mörgum ljúf sem bara höfðu það huggulegt heima hjá sér - eins og oft áður.  

En ég er bálill út í fjölmiðlana sem hafa einungis á boðstólum ókærkomnar fréttir af hinu liðinu og hvernig það plummaði sig í helgardjamminu  

Kolbrún Hilmars, 4.8.2008 kl. 18:51

8 Smámynd: halkatla

það er bara kinky að vera ekki með timburmenn í dag þeir gera kuldann svo þægilegan. 

halkatla, 4.8.2008 kl. 19:12

9 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Hér er ekki kalt, 16 stig áðan og sólin aftur komin. Hér eru allir að kæla sig niður, ekki síst hann Mali. Ég hef það alltaf náðugt um versló. Þetta eru bestu dagarnir fyrir borgarbúa.

Sigurður Þór Guðjónsson, 4.8.2008 kl. 19:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband