Útrýming

Mér skilst að það sé líka verið að útrýma flækingum og vændiskonum í Peking og kannski fleiri hópum fólks í miklum götuhreinsunum. Kannski verður forseta Íslands og menntmálaráðherranum þá líka útrýmt.

 


mbl.is Flækingsdýrum útrýmt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Birna Guðmundsdóttir

Forsetinn má allavega passa sig - hann er óttalegur heimshornaflækingur

Birna Guðmundsdóttir, 7.8.2008 kl. 02:22

2 Smámynd: halkatla

það er langt síðan hroðaleg kattaútrýmingarherferð var sett í gang þarna

halkatla, 7.8.2008 kl. 03:19

3 identicon

" Kannski verður forseta Íslands og menntmálaráðherranum þá líka útrýmt."

Gott.  Farið hefur fé betra!

En mig langar til að eiga allar þessar kisur þarna.  Kannski ég skreppi til Kína og nái í þær!

Malína (IP-tala skráð) 7.8.2008 kl. 03:19

4 Smámynd: halkatla

og ég á ekki við flækingsketti heldur góða og elskaða heimilisketti. Þeir eru síðan látnir deyja hægt við hroðalegar aðstæður. Fyrirgefðu að ég sé að nefna þetta en ég bara hata að svona geti gerst, hvortsem það eru menn eða dýr. Það bugar mann að svona grimmd sé til.

halkatla, 7.8.2008 kl. 03:20

5 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Jenný Anna Baldursdóttir, 7.8.2008 kl. 07:13

6 identicon

Af hverju ætli góðir og elskaðir heimiliskettir séu látnir deyja hægt við hroðalegar aðstæður?

Fyrirgefðu að ég sé að spyrja svona, en ég bara fatta ekki af hverju svona getur gerst.  

Balzac (IP-tala skráð) 7.8.2008 kl. 08:03

7 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Sigurður minn, þetta er alveg agalegt. Hvernig líður Mala þegar hann fær svona fréttir? Fær hann að horfa á þessa frétt? Ætti að vera bannað köttum með 9 líf.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 7.8.2008 kl. 08:23

8 Smámynd: Hafdís Lilja Pétursdóttir

Nett og skemmtileg færsla, gleður mitt gamla hjarta.

Þetta með kettina huuummmmmmmmmm er með tvo sjálf þeim fylgja í það minnsta tveir "flækingar" sem borða matinn og sofa í bleiku plusssófasetti eiginmannsins.  Skyldi vera ráð að flytja inn útrýmandi kínverja?

En þegar upp er staðið hverfa ekki kettir, forsetar,vændiskonur, menntamálaráðherrar þó þessum(núlifandi) sé útrýmt, það koma bara aðrir í staðinn.

Njóttu dagsins.

Hafdís Lilja Pétursdóttir, 7.8.2008 kl. 08:48

9 Smámynd: Yngvi Högnason

Það er eiginlega meira gaman þegar þú kemur með hlýnunar- eða veðurblogg. Þá er minna um kjánalegar athugasemdir eins og t.d. að óska einhverjum útrýmingar og dauða.

Yngvi Högnason, 7.8.2008 kl. 10:48

10 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Lesið tímabæran pistil um holocat 21. aldarinar

Sigurður Þór Guðjónsson, 7.8.2008 kl. 11:50

11 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Það var í fréttum áðan að Kínverjar hafa komið sér upp miklum eftirlitsbúnsðai BEINLÍNIS VEGNA ÓLYMPÍULEIKANNA, sem síðan mun nýtast eftir leikana til að halda þjóðinni í enn harðari kúgunargreipum: Það er kjarni gagnrýni minnar á leikana að þeir verða í sjálfri sér nýtt tilefni til kúgunar og vondra verka gegn fólki. Það er því ekki hægt að segja að í mörgum löndum sé kúgun þó önnur lönd verði að hafa samskipti við þau. Ég veit ekki til að það- hafi gerst áður, nema kannski í Berlín 1936, að fólk þurfi að þjást beinlínis vegna ólympíuleikana. Er eitthvað aulalegt að láta það fara fyrir brjóstið á sér? Mér finnst örlög eins manns sem fyrir mannvonsku verður vegna leikanna skipta meira máli en orðstír allra þeirra keppenda sem hljóta gull.

Sigurður Þór Guðjónsson, 7.8.2008 kl. 12:50

12 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Ég sé á sumum bloggsíðum að menn fagna þessari útrýmingu og vilja meiri útrýmingu dýra sem eru víst að flækjast fyrir mannfólkinu. Ég er skynsemismaður í þessum efnum og viðurkenni nauðsyn þess að stundum verði að sporna við of miklum viíðgangi dýra. En mér finnst það sorglegt en ekki fagnaðarefni og það er annað að gera eitthvað af nauðsyn heldur en stjórnlausu æði. Þetta eins og svo margt annað leiðir í ljós í bloggheimum að það er til hjartalaust fólk.  

Sigurður Þór Guðjónsson, 7.8.2008 kl. 13:15

13 Smámynd: Gulli litli

Mér finnst þetta óþarfa hreinsun..

Gulli litli, 7.8.2008 kl. 14:12

14 identicon

Ingvi Högnason mætti íhuga að lagfæra sitt eigið blogg og gera það meira aðlaðandi og spennandi í stað þess að athugasemdast með eiturpillur á annarra manna eðalbloggum.

En ég skal fúslega játa að athugasemd mín hér að ofan er líklega fremur ósmekkleg.  En so be it.

Eru þá ekki allir í góðum fíling?

Malína (IP-tala skráð) 7.8.2008 kl. 14:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband