Ofsi og óeirð um Evrópusambandið

Ég get ekki séð að nokkrar rökræður að heiti geti hafi farið fram um það hvort Íslendingar eigi að sækja um aðild að Evrópusambandinu. Menn skiptast bara í andstæðar fylkingar, sem skeyta ekkert um mótrök gegn sinni eigin skoðun sem þeir setja oftast fram með látum og offorsi.

Stóryrði og brigslanir á báða bóga. 

Litið vit og lítið jafnaðargerð.

Bara þessi klassíski ofsi og óeirð sem einkennir Íslendinga sem yfirleitt geta aldrei haldið uppi rökræðu um nokkurt mál. 

Þessari þjóð er ekki viðbjargandi.

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Finnur Bárðarson

Af hverju má bara ekki tilla sér niður og ræða málin. Það virðumst við ekki kunna. Setjast niður og ræða hvalveiðar, ekki séns. Þetta er hin gáfaða þjóð í norðri.

Finnur Bárðarson, 21.4.2009 kl. 10:16

2 identicon

Við kunnum það ekki, við eru búin að vera að hlusta á rifrildi og ljót skot þingmanna í þingsal frá blautu barnsbeini. Og kannski líka foreldra foreldra okkar? confused smiley #17449

EE elle (IP-tala skráð) 21.4.2009 kl. 10:57

3 Smámynd: Gísli Ingvarsson

Ég verð nú að segja það að evrópusinnar hafa oftast verið málefnlegir en hrópaðir niður með ásökunum um landráð og afhendingu þjóðarauðs og framsal fullveldis og ég veit ekki hvað. Þessar ásakanir eru að sönnu órökstuddar en hvernig á að svara því ef einhver ásakar þig um stórfenglegan glæp sem ekki er ennþá framinn en viðkomandi telur sig samt vita að þú munir fremja. Verður ekki dálítið erfitt að rökræða svoleiðis? Það er hægt að skjóta alla umræðu í kaf með brögðum og það sýnist mér hafa gerst af hálfu þeirra sem ekki vilja í ESB. Auðvitað vilja þeir þá ekki ræða málin heldur. Fyrir þeim er það bara tímasóun og gæti leitt til þess að málstaður þeirra biði nokkurt tjón af.

Gísli Ingvarsson, 21.4.2009 kl. 11:06

4 Smámynd: Loftslag.is

Eina leiðin sem ég sé færa er að fara í aðildarviðræður.

Best er að þeir sem eru á móti og þeir sem eru meðfylgjandi ESB (t.d. Vinstri grænir og Samfylkingin) fari saman í víking til Brössel. Þannig er hægt að tryggja að þeir sem eru á móti skjóti ekki viðræðurnar í kaf og þeir sem eru meðfylgjandi segi ekki já og amen við öllu.

Þegar viðræðurnar eru búnar, þarf að semja aðgengilegan bækling með kostum og göllum þess að ganga í ESB miðað við það sem samningurinn bíður upp á - einnig hvað muni gerast ef við sækjum ekki um aðild.

Síðan þarf að eyfa fólki að melta þær upplýsingar, RÚV gæti haft nokkra sjónvarpsþætti sambærilega við borgarafundina nú fyrir kosningar þar sem farið yrði í gegnum helstu niðurstöður sem komu út úr viðræðunum. Að því loknu yrði kosið um hvort sækja eigi um aðild.

Lýðræðislegt og gott. 

Loftslag.is, 21.4.2009 kl. 11:55

5 Smámynd: Sigurbjörn Sveinsson

Farðu á disdis.blog.is Þar er ýmislegt smálegt sem gleður.  

Sigurbjörn Sveinsson, 21.4.2009 kl. 12:03

6 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Líst vel á hugmynd Sápuboxins. Algjört löður!

Sigurður Þór Guðjónsson, 21.4.2009 kl. 12:05

7 identicon

VG eru á móti þó.  confused smiley #17449

EE elle (IP-tala skráð) 21.4.2009 kl. 12:37

8 identicon

Það eru til ágætis síður með
http://esb.is/

og móti
http://www.heimssyn.is/forsida/

Það sem þarf að gera er að kynna sér og lesa. Tekur að vísu tíma.


Gísli Baldvinsson (IP-tala skráð) 21.4.2009 kl. 12:41

9 identicon

Er pólitísk umræða ekki bara svona?

Ég get eiginlega ekki komið auga á að hún sé í grundvallaratriðum mikið öðruvísi annarstaðar þar sem ég þekki til. Íslensk umræða sker sig kannski úr að því leiti að persóna þátttakenda vill frekar dragast inn í umræðuna ("Afi þinn var sauðaþjófur!"-áhrifin).

Ég verð að vera ósammála Sápuboxinu um að umræðan skýrist mikið við að gera aðildarsamning. Í fyrsta lagi vitum við nú þegar að mestu hvernig sá samningur myndi líta út en samt er umræðan óskýr. ESB-aðild er ekki klæðskerasniðin heldur að langmestu staðlaður pakki.

Þegar kemur að þeim sérákvæðum sem kunna að nást fram þá er oft erfitt að sjá það fyrir hvernig þau koma út í praxis fyrr en þau hafa verið útfærð með reglugerðum og reynt hefur á túlkun þeirra fyrir dómi. Brussel er þekktari fyrir flest en að tjá sig skýrt. 

Hans Haraldsson (IP-tala skráð) 21.4.2009 kl. 12:43

10 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Takk fyrir þetta Gísli. Kynning á stefnumálum er reyndar ekki það sama og rökræða. Það sem vantar er að menn ræði röklega saman um  kosti og galla og taki svo afstöðu á eftir. 

Sigurður Þór Guðjónsson, 21.4.2009 kl. 12:46

11 identicon

Hans:"Ég verð að vera ósammála Sápuboxinu um að umræðan skýrist mikið við að gera aðildarsamning".  Sápuboxið sagði þetta ekki, heldur: "Þegar viðræðurnar eru búnar, þarf að semja aðgengilegan bækling með kostum og göllum þess að ganga í ESB miðað við það sem samningurinn bíður upp á - - - "

Jón Þór (IP-tala skráð) 21.4.2009 kl. 12:59

12 identicon

Jón: Svona vill þetta alltaf þvælast.

Til þess að geta samið bæklinginn þá þarftu að vita hvað ákvæðin þýða í praxis sem getur verið mjög erfitt að segja til um fyrirfram (þ.e áður en þau hafa tekið gildi, verið útfærð með reglugerðum og hin ýmsu prófmál farið í gegn um dómskerfið hér og ytra) og verður þar komið annað þrætuepli.

Það verður kannski efni í sérstaka þrætulotu hvað standa skuli í bæklingnum.

Hans Haraldsson (IP-tala skráð) 21.4.2009 kl. 14:02

13 identicon

Ég hef velt Evrópuaðildinni fyrir mér í fjölda ára og hef aldrei skilið þessa hræðslu fólks við aðildarviðræður.  Það er eins og fólk haldi að það felist í því einhver skuldbinding að ræða málin.

Það verður alltaf á endanum þjóðin sem ákveður þetta með atkvæðagreiðslu.  Ég bendi á að Norðmenn hafa fellt aðild að ESB tvisvar í atkvæðagreiðslu.

Í hverju felst þessi hræðsla?  Spyr sú sem alls ekki skilur né veit.

EvrópuMalína (IP-tala skráð) 21.4.2009 kl. 14:42

14 identicon

...Evrópusambandsaðildinni...

EvrópuMalína (IP-tala skráð) 21.4.2009 kl. 14:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband