30.4.2009 | 13:41
Afhverju voru Knud Hamsun og Ezra Pound ekki skotnir
Fasistar og nasistar voru ekki nein lömb við að eiga og stríðsárin voru ekki tímar mildi og miskunnsemi. Föðurlandssvik voru litinn alvarlegum augum. Þau voru verri en allt annað.
Föðurlandssvikarar voru teknir af lífi.
Knud Hamsun og Ezra Pound kusu sér vitandi vits hlutskipti föðurlandssvikara og jafnvel glæpamanna gegn mannkyninu.
Þeir nutu frægðar sinnar. Í stað þess að vera skotnir voru þeir úrskurðaðir geðveikir.
Listamenn um allan heim hafa emjað yfir því hvað illa var farið með þá að þeirra áliti.
En það var einmitt farið vel með þá.
Það er í rauninni ranglátt með tilliti til þess hvernig komið var fram við aðra föðurlandssvikara.
Það átti auðvitað að skjóta þá eins og hina ef jafnræðis og sanngirnis hefði verið gætt.
(Ég er samt persónulega skilyrðislaust á móti dauðarefsingum).
Færsluflokkar
- Allt í plati
- Blogg
- Bloggar
- Bækur
- Efnisyfirlit um veður
- Ég
- Guð sé oss næstur
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Hlýustu og köldustu mánuðir
- Íslensk veðurmet
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Mali
- Mannlífið
- Mánaðarvöktun veðurs
- Menning og listir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Veðurfar
- Veður í annálum og öðrum gömlum heimildum
- Veður um allan heim
- Vísindi og fræði
Tenglar
Blogg
Ýmsir vefir
- Gjósandi eldfjöll
- Kantötur Bachs
- Schubert
- Stjörnuskoðun
- Nótnasafnið
- Torfusamtökin
- Lilta-Ávík
- Blogggáttin
- Doctor E
Blogg
Síður
- Sólarminnstu júlímánuðir
- Þíðukaflar að vetrarlagi í Reykjavík
- Jóla og áramótaveðrið frá 1880
- Sólrík sumur og sólarsnauð
- Sólskin á Íslandi
- Hámarkshiti á landinu um verslunarmannahelgina frá 1949 og veðrið í Reykjavík
- Slær júlí hitamet í Reykjavík
- Óvenju hlý júlíbyrjun
- Nokkrir kaldir janúarmánuðir og kuldadagar
- Hret og snjóar í ágúst
- [ Fleiri fastar síður ]
Eldri færslur
- Desember 2024
- Mars 2023
- Ágúst 2019
- Desember 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Desember 2017
- Júlí 2017
- Maí 2017
- Febrúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- September 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
Athugasemdir
Þó þú segir annað í fyrirsögninni ertu að meina að rétt hafi verið að þyrma Hamsun og Pound en það hefði bara átt að þyrma öðrum líka.
Ég er sammála þér.
Sæmundur Bjarnason, 30.4.2009 kl. 14:12
Á að þyrma Billy Joel?
Júlíus Valsson, 30.4.2009 kl. 15:29
Sigurður Þór er sem sagt orðinn jafnaðarmaður.
Og trúlega einnig kötturinn hans.
Föðurlandssvikarinn.
Þorsteinn Briem, 30.4.2009 kl. 15:29
Komum við aftur að þessu að leggja mat nútímans á fortíðina. Ekki treysti ég mér til að skilja það hugarástand og það almenningsálit sem skapaðist í stríðslok.
Hólmfríður Pétursdóttir, 30.4.2009 kl. 17:03
Ég er að tala um að fyrir sama verknað nutu þessir kallar þess hverjir þeir voru. Þeim var hlíft eingöngu vegna þess. Þetta er í raun og veru Jóns og séra Jóns fyribrigðið.
Sigurður Þór Guðjónsson, 30.4.2009 kl. 17:08
Æi, skrýtin færsla. Það hefði mátt hengja, skjóta, drekkja eða krossfesta fólk í tonnatali "ef jafnræðis og sanngirnis hefði verið gætt."
Benedikt Halldórsson, 30.4.2009 kl. 17:09
Hvað er svona skrýtið við það vekja athygli á því að þessi tvö skáld fengiu að njóta þess að þau voru fræg. Mér finnst skrýtið að mönnum skuli finnast það skrýtið með æ-i.
Sigurður Þór Guðjónsson, 30.4.2009 kl. 17:20
Það sem ég átti við var á hinn veginn, að fólk skyldi yfirleitt vera tekið af lífi fyrir landráð. Það treysti ég mér ekki til að dæma, heldur ekki hitt að þeir sem áttu að ákveða örlög skáldanna ákváðu að loka þá inni á geðsjúkrahúsum.
Það breytir ekki þeirri skoðun að allir skulu jafnir fyrir lögum.
Hólmfríður Pétursdóttir, 30.4.2009 kl. 18:08
Tja, fyrirsögnin er skrýtinn. Það hefði ekkert átt að skjóta þá þótt aðrir hafi verið skotnir í stórum stíl. Ef einhver sleppur við dauðarefsingu er það hið besta mál, sama hver það er.
Það er skrýtið að maður sem er á móti dauðarefsingum skuli vera að kvrta yfir því þótt einhverjir hafi ekki verið skotnir fyrir áratugum! Það mætti snúa dæminu við halda því fram að þeir sem voru skotnir hefðu átt að sleppa við byssukúlu "ef jafnræðis og sanngirnis hefði verið gætt."
Benedikt Halldórsson, 30.4.2009 kl. 18:30
Þá erum við s.s. komin á byrjunarreit í fyrstu athugasemd.
Sigurbjörn Sveinsson, 30.4.2009 kl. 22:42
Ég er reyndar að benda á það, kannski fremur óhönduglega, að allir eigi að vera við sama borð en ekki njóta þess hverjir þeir eru. Ég held að þið skiljið það alveg.
Sigurður Þór Guðjónsson, 30.4.2009 kl. 22:51
En ég viðurkenni að þetta er ekki mína skýrasta færsla! Klúður verða!
Sigurður Þór Guðjónsson, 30.4.2009 kl. 22:53
Klúður verða og maður verður skotinn niður.
EE elle (IP-tala skráð) 30.4.2009 kl. 22:55
Kannski klúðraðist meiningin en æfingin í rökfræði var góð.
Sigurbjörn Sveinsson, 30.4.2009 kl. 23:00
Rétt hjá þér Sigurður; Þetta er ekki þín skýrasta færsla. Þó að í henni séu punktar, sem eru allrar athygli verðir.
Væri hún það, hefði ég minnt þig á örlög Guðmundar Kamban í Kaupmannahöfn í stríðslok. (Sem ég er auðvitað ekki að gera hér, eða þannig...)
Var heimsbyggðin nokkru bættari fyrir vikið ?
Hildur Helga Sigurðardóttir, 1.5.2009 kl. 04:14
Orðið föðurlandssvikari er svo frekar vandmeðfarið.
Ert þú t.d. sammála því að nota það yfir unga menn, sem hafa neitað að gegna herskyldu í sínum heimalöndum af hugsjónaástæðum ?
Varla eru þeir minni "föðurlandssvikarar" en fordekraðir gamlir skáldjöfrar, sem eru búnir að ofhuxa í sér heilabúið og sjá hlutina frá allt of mörgum hliðum.
Frekar snúið dæmi, ekki satt ?
Hildur Helga Sigurðardóttir, 1.5.2009 kl. 04:29
Ég var á tónleikum í gær. Enn ein upplifunin í boði Schostakovtch. Hann er vafalítið eitt mesta mesta tónsskáld 20. aldarinnar. Honum var illa við Stalin. Stalin var illa við hann. Schostakovitch slapp en það gerðu ekki allir listamenn þess tíma.
Var hann of stór fyrir Stalin?
Eru Stalin og Norðmenn á sama báti? Stalin lét málamyndarréttarhöld fram fara. Danir tóku Kamban af lífi án dóms og laga. Og líka Kaj Munk ef út í það er farið. Var Stalin betri maður en Austmenn?
Það virðast allir skjóta alla þegar þeim hentar. Hvað fremur almenningsálitið mörg réttarmorð hér á landi á ári hverju?
Sigurbjörn Sveinsson, 1.5.2009 kl. 09:52
Nýlegastu dæmin um forheimsku mannsins eru þau þjóðarmorð sem enn viðgangast óáreitt og að pyndingar skulu leyfðar þegar mikið liggur við. Hver var að tala um þróun mannsandans?
Júlíus Valsson, 1.5.2009 kl. 13:41
Júlíus, þróun mannsandans gæti verið fólgin í betri fréttaflutningi. Um þetta er þó erfitt að fullyrða. Ef öllu er að fara aftur af hverju er þá ekki allt farið til andskotans fyrir löngu?
Sæmundur Bjarnason, 1.5.2009 kl. 13:59
Það er allt farið til andskotans fyrir löngu!
Sigurður Þór Guðjónsson, 1.5.2009 kl. 14:09
Við mig sagði maður í fyrradag, sem hefur vit á þessum hlutum, að SÞG væri orðinn óþægilega mjúkur. Það má vel vera, en það hentar mér.
Sigurbjörn Sveinsson, 2.5.2009 kl. 01:28
Ég er fyrst og fremst orðinn leiður á bloggi. Á feisbúkk er harkan, klámið og guðlastið!
Sigurður Þór Guðjónsson, 2.5.2009 kl. 11:39
Maður ver líftóruna sína með siðleysi ef ekkert annað vopn er handhægt.
Auðvitað hefðu þessir tveir mætu listamenn átt að sjá sóma sinn í því að fremja harakiri og biðjast afsökunar á að hafa aðhyllst fasismann.
Bárður R. Jónsson (IP-tala skráð) 2.5.2009 kl. 14:13
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.