Leiðinlegar matvöruverslanir

Flestar 10/11 og 11/11 matvörubúðirnar eru ekki aðeins dýrar heldur er vöruúrval þar oft fábreytt og búðirnar eru hálf sjabbí. Ég nefni til dæmis búðirnar í Austurstæti, við Hlemm og á Seljavegi.

Bónusbúðirnar eru líka voðalega leiðinlegar. Fyrst og fremst vegna þess hve lítið fæst í þeim. Ég efast um að það sé ódýrara að versla í þeim en annars staðar af því að maður  verður alltaf líka að fara í aðrar búðir til að kaupa það sem ekki fæst í Bónus. Og þeir snúningar kosta bæði peninga (bensín) og tíma. Það er líka einhver illur andi í Bónusbúðunum. Þær eru svo vúlgar.

Bestar finnst mér Nóatúnsbuðirnar hvað vöruúrval snertir, sérstaklega matvörur. Krónubúðirnar eru líka þolanlegar. 

En matur er orðinn svo dýr að það er eins gott að fara í megrun. Ég er reyndar ekki nema 53 kíló en betur má ef duga skal.   


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Við borðum hundasúrur í boði VG og S næstu árin... ef við verðum eitthvað veik þá verðum við send í andaþarmssog hjá Jónínu Ben... þó það sé ekkert til sem segir að þarmasog sé heilsusamlegt þá verðum við að treysta Gunnari Á krossinum & Geira á Goldfinger með það

DoctorE (IP-tala skráð) 6.5.2009 kl. 14:25

2 identicon

DoctorE:
Orsök og afleiðing.

Orsök ástandsins skrifast ekki á núverandi ríkisstjórn. Hún er bara að díla við afleiðingar óráðsíunnar sem tíðkaðist á vakt fyrri ríkisstjórna.

En það er svosem við því að búast að orsökinni að þessu verði klínt á núverandi stjórn. Fólk er nú með frekar lélegt minni.

Svan (IP-tala skráð) 6.5.2009 kl. 18:24

3 identicon

Kannski ekki... en margt fólk innan hennar tók þátt í að fokka hlutum...
Blessaður mar þessi ríkisstjórn á aldrei eftir að höndla þetta.. springur vegna vankunnáttu, persónulegra hagsmuna, flokka bull; eða fer frá vegna mótmæla.

Mark my words

DoctorE (IP-tala skráð) 6.5.2009 kl. 20:19

4 Smámynd: Hildur Helga Sigurðardóttir

Fimmtíu og þrjú kíló !   Sama hvar þú verslar;

Kettirnir hljóta að vera að aféta þig !

Hildur Helga Sigurðardóttir, 7.5.2009 kl. 04:07

5 Smámynd: gerður rósa gunnarsdóttir

Ég er alveg að ná þér - komin niður í 57-58 kíló (er 175 cm). Eigum við að koma í kapp hvort hverfur fyrst?

gerður rósa gunnarsdóttir, 7.5.2009 kl. 07:47

6 identicon

En skemmtilegast að versla í Hagkaup. Það segir a.m.k. í einhverri auglýsingu, og ekki ljúga auglýsingarnar...

Auður H Ingólfsdóttir (IP-tala skráð) 7.5.2009 kl. 09:42

7 identicon

Er ekki Mega-Mali Montrass farinn að slaga hátt upp í 53 kíló?  Verður bráðum þyngri en Nimbusinn...

Malína (IP-tala skráð) 7.5.2009 kl. 10:03

8 Smámynd: Ásgeir Kristinn Lárusson

Það myndi lífga uppá þessar verslanir, væru haldnir síðdegistónleikar innan þeirra veggja. Sé fyrir mér kammermúsik og seiðandi silungakvintetta...

Ásgeir Kristinn Lárusson, 7.5.2009 kl. 10:42

9 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Þegar ég hætti að reykja árið 1984 (og þá var ekkert tyggjó til og annar aumingjaskapur, bara harkan sex) rauk ég upp í 57 kíló og fékk dálitla ístru. Mér fannst ég þá verða meiri maður einhvern veginn. En þetta var skammvinnur manndómsauki og ég fór fljótlega aftur niður í mín 53 kíló. Gerður Rósa: Ég var einmitt svo mikið að hugsa um þig þegar ég vaknaði í morgun og svo er komið komment frá þér þegar ég leit á bloggið. Telepatían okkar svíkur ekki!

Sigurður Þór Guðjónsson, 7.5.2009 kl. 11:20

10 Smámynd: gerður rósa gunnarsdóttir

Klikkarekki

gerður rósa gunnarsdóttir, 7.5.2009 kl. 16:28

11 identicon

Leiðinlegt finnst mér að fara í Hagkaup.  Einu sinni, fyrir tíma Jóns Ásgeirs, stóð fyrirtækið undir nafni sem HAG-kaup.  En núna er þar bara eintómt OKUR.  

Jón (IP-tala skráð) 9.5.2009 kl. 15:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband