Kaþólska kirkjan er söm við sig

Kaþólska kirkjan lítur spennubækur Dans Brown vægast sagt óhýru auga. Hún hefur reynt að flækjast fyrir kvikmyndatökum á bókinni Djöflum og englum.

Það er víst eitthvað í bókum þessa höfundar sem fer í taugarnar á kirkjunni, eins og til dæmis það að Jesú hafi gifst og átt barn með Maríu Magdalenu í Da Vinci lyklinum og einhverjar samsæriskenningar.  

Samt vita allir að þetta er bara skáldskapur.

Kaþólska kirkjan myndi áreiðanlega banna þessar bækur ef hún hefði vald til þess. 

Hún hefur bara ekkert vald lengur til þess. En hugur hennar er sá sami og hann hefur alltaf verið. Þröngsýnn hugur fullur af kúgun og fordæmingu.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Kaþólska kirkjan... þeir sem segjast vera kristnir hafa fallið fyrir skáldskap kufla í kaþólsku kirkjunni.... sama hvað þú segir þá ertu kaþólikki ef þú fellur fyrir skáldsagnapersónunni Sússa.

Og hvernig er það með að setja aðvörun á biflíur... skaðlegasta bók allra tíma... ásamt kóran og öðrum lygasögum

DoctorE (IP-tala skráð) 7.5.2009 kl. 12:08

2 Smámynd: Hólmfríður Pétursdóttir

Og ég sem hélt að ég yrði á undan þér.

Ég las báðar bækurnar og hafði gaman að þeim báðum, þó fannst mér Da Vinci lykillinn miklu betri.

Mig minnir að Englar og djöflar hafi verið einum og hröð og ósennileg svona vísindalega fyrir mig, svo fannst mér þróun skúrksins ekki standast..

Sumir hafa líka vilja banna Harry Potter og bækur Philips Pulmans.

Hólmfríður Pétursdóttir, 7.5.2009 kl. 12:17

3 identicon

Harry Potter er stórhættulegur galdrakarl...

DoctorE (IP-tala skráð) 7.5.2009 kl. 12:42

4 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Nægir að sjá múnderinguna á blessuðum páfanum til að átta sig á að þar fer fulltrúi stofnunar, sem ekki er alveg að ganga í takt við nútímann.

Halldór Egill Guðnason, 7.5.2009 kl. 17:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband