Móðgun við þjóðina

Það er móðgun við þjóðina eftir búsáhaldabyltinguna að dubba Jón Bjarnason upp í embætti ráðherra.

Það skiptir engu máli í hvaða flokki hann er. En tími jafn forpokaðra gjammara eins og hans ætti að vera liðinn. Hann er aftan úr öldum pólitískrar lágkúru.

Lærðu menn ekkert af umrótinu í vetur?  


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Já, hvað er ríkisstjórnin að pæla - að bjóða okkur upp á þennan afturhaldspung?!  Það er enginn skortur á hæfara fólki í þetta embætti.  Við skulum bara vona að hann staldri mjög stutt við í ráðuneytinu.

Hneisa!! 

Yfir sig hneykslaða Malína (IP-tala skráð) 10.5.2009 kl. 21:17

2 identicon

Vissulega er hann slappasti ráðherrann.  Stjórnin er hinsvegar sterk, vel mönnuð og fersk. 

Eigum við ekki bara að líta á Jón Bjarnason sem síðasta ropið úr fortíðinni.  Síðasta kjördæma-fretið úr spillingarrassinum?

 Síðasti andskotans móhíkaninn..

Teitur Atlason (IP-tala skráð) 10.5.2009 kl. 21:38

3 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Já og svo fjölgar ráðherrum um tvo!! Ég hélt að til hefði staðið að fækka þeim. Þeir eru orðnir alltof margir.

Sæmundur Bjarnason, 10.5.2009 kl. 21:43

4 Smámynd: Dexter Morgan

Hvaða-hvaða. Jón er fínn karl. Og það hafa víst ábyggilega sest meiri "afturhaldspungar" á ráðherrastól hérna á Íslandi.

Dexter Morgan, 10.5.2009 kl. 21:47

5 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Það má vel vera að Jón sé fínn karl en málflutningur hans er grunnur og yfirborðslegur. Hann er arkatýpískur stjórnmálamaður með stæla af því tagi sem allir eru orðnir meira en leiðir á. 

Sigurður Þór Guðjónsson, 10.5.2009 kl. 21:53

6 identicon

Jón er örugglega "fínn kall" fyrir þessar 500 hræður á Vestfjörðum sem kusu hann...

Yfir sig hneykslaða Malína (IP-tala skráð) 10.5.2009 kl. 22:05

7 Smámynd: Salvör  Kristjana Gissurardóttir

Það hefði verið flottara að Atli Gíslason yrði ráðherra.

Salvör Kristjana Gissurardóttir, 10.5.2009 kl. 23:00

8 identicon

Það er engin tilviljun að þessi maður er valinn. Þið hafið greinilega ALDREI hlustað á hann. Það sem þið þolið ekki við hann er heiðarleiki hans. Fólk vill refi í pólitík. Lygara og hunda.

Jón bóndi (IP-tala skráð) 11.5.2009 kl. 00:22

9 identicon

"Heiðarleg" 19. aldar risaeðla...

Yfir sig hneykslaða Malína (IP-tala skráð) 11.5.2009 kl. 00:47

10 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Steingerð risaeðla.

Sigurður Þór Guðjónsson, 11.5.2009 kl. 00:49

11 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Mr. Bond, við viljum líka klára menn og sæmilega hugmyndaríka.  

Sigurður Þór Guðjónsson, 11.5.2009 kl. 00:53

12 identicon

...og menn sem fatta að 21. öldin er runnin upp!

Yfir sig hneykslaða Malína (IP-tala skráð) 11.5.2009 kl. 00:58

13 Smámynd: Guðmundur Óli Scheving

Sæll Sigurður

Ertu ekki full fjandsamlegur þegar öll dýrin eiga að vera góð við hvort annað.

Er kannski betra að skjóta kött..en að veiða hann ?

Kveðja

Guðmundur Óli

Guðmundur Óli Scheving, 11.5.2009 kl. 01:05

14 identicon

Ég kann vel við manninn.  Og líka Atla Gíslason. 

EE elle (IP-tala skráð) 11.5.2009 kl. 01:10

15 identicon

Verð að viðurkenna að ég er skeptískur á karlinn líka, en eigum við ekki að gefa honum hinn pólitíska 100 daga vinnufrið og leyfa honum að sanna sig?

Valdimar Vilhjalmsson (IP-tala skráð) 11.5.2009 kl. 02:56

16 Smámynd: Eygló

Ef hann verður jafn góður ráðherra og hann er leiðinlegur, þá verður hann einn besti starfsmaður okkur.

Eygló, 11.5.2009 kl. 04:04

17 identicon

Teitur segir Jón síðasta ropið úr fortíðinni. Hvað með Steingrím og Jóhönnu. Eina fólkið sem eftir er á Alþingi sem samþykkti kvótakerfi og frjálst framsal kvóta. Ha, ha.

Steinþór (IP-tala skráð) 11.5.2009 kl. 08:18

18 identicon

> Það er móðgun við þjóðina eftir búsáhaldabyltinguna

> að dubba Jón Bjarnason upp í embætti ráðherra.

Hey, Nimbus! Nú skal þú fara að hafa þig hægan, gæskur! Búsáhaldarbyltingin var ekki þín uppfinning. Þú átt hana ekkert. Sú bylting hefur nú þjónað sínum tilgangi – það er komin ný og mun betri ríkisstjórn til valda hér en sú sem áður sat. Þannig að takk fyrir stuðninginn við byltinguna okkar, félagi, en nú er kominn tími fyrir þig að gefa okkur frið til að taka til eftir íhaldið. Og láttu Jón Bjarnason í friði. Hann er trúr sinni sannfæringu, ekki tækifærissinni. Hann lét heldur sitt ekkert eftir liggja í byltingunni, alveg eins og Álfheiður og Atli. Nú þurfum við að taka höndum saman og styðja við okkar fólk, fyrst það tókst að koma því í þá aðstöðu sem það er í.

AFN (IP-tala skráð) 11.5.2009 kl. 09:06

19 identicon

Þú átt að meta fólk eftir tónlistarsmekk þess. Það er langöruggast.

Arnþór (IP-tala skráð) 11.5.2009 kl. 09:23

20 Smámynd: Smjerjarmur

Ég er hræddum um að mesti loddari ríkisstjórnarinnar sé karl úr Samfylkingunni.  Ég hélt ekki að maður nyti svo mikillar virðingar meðal samfylkingarmanna að hann yrði dubbaður upp í að vera ráðherra, þrátt fyrir að hafa smalað vel í prófkjöri.  Þetta er sorglegt.   

Smjerjarmur, 11.5.2009 kl. 09:48

21 identicon

Krakkar við erum ekki á nýju íslandi.. það er ekki nein bylting.

DoctorE (IP-tala skráð) 11.5.2009 kl. 09:50

22 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Einnmitt Doksi. Hlustið á ræður mannsins og lesið það sem hann skrifar.Við þurfum eitthvað nýtt og ferskt. Ég er ekki að segja að hinir ráðherrarnir séu það en það tekur steininn úr með Jón. En það er ekkert nýtt Ísland sem kom eftir búsáhaldabyltinguna sem var auðvitað engin bylting.

Sigurður Þór Guðjónsson, 11.5.2009 kl. 11:41

23 identicon

Ég vil heiðarlegt og óspillt fólk eins og Steingrím J.  og Jón.

EE elle (IP-tala skráð) 11.5.2009 kl. 12:17

24 Smámynd: Gústaf Gústafsson

Þú ferð villur vega Sigurður Þór, því Jón er eldklár, skarpur og skemmtilegur og alveg stálheiðarlegur. Mín kynni af Jóni eru á þann veg að fáum treysti ég betur en honum. 

Ekki veit ég eftir hverju þú dæmir, en svo mikið er víst að margur hefur verið hér ráðherra sem er verri en Jón. Og fyrirfram dómar eru nú ekki upp á marga fiska.

Þú kannski þarft að fá þér eitthvað nýtt og ferskt, en við erum búin að prófa nýja og ferska ráðherra sem þjóðin hefur kastað.

Kveðja að vestan.

Gústaf Gústafsson, 11.5.2009 kl. 13:37

25 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Eins og ég segi þá met ég Jón eftir ræðum hans og greinum.Þar er nú ekki fferskleikinn.

Sigurður Þór Guðjónsson, 11.5.2009 kl. 13:49

26 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Hvað heiðarleka varðar finnst mér það svo sjálfsagður kostur með stjórnmálamann að varla þurfi það að teljast honum til tekna.

Sigurður Þór Guðjónsson, 11.5.2009 kl. 13:51

27 identicon

"Ef hann verður jafn góður ráðherra og hann er leiðinlegur, þá verður hann einn besti starfsmaður okkur."

He he.  Það er líklega meiningin með þessari ráðningu Jóns í embættið - að reyna að drepa þjóðina úr leiðindum svo við tökum síður eftir afglöpunum...

Hrrmmmffff... 

Yfir sig hneykslaða Malína (IP-tala skráð) 11.5.2009 kl. 15:04

28 identicon

"Ef hann verður jafn góður ráðherra og hann er leiðinlegur, þá verður hann einn besti starfsmaður okkur."

Þetta er kvikindislegt, ekki sniðugt.

J (IP-tala skráð) 11.5.2009 kl. 15:26

29 identicon

He he.  Kvikindislegt já - en samt sannleikanum samkvæmt ... a.m.k. fyrir okkur með kvikindislega húmorinn...

Yfir sig hneykslaða Malína (IP-tala skráð) 11.5.2009 kl. 16:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband