Á ađ ganga gegn alţjóđasamţykt lćkna um mótmćlasvelti

Ţessi frétt ber óhugnanlegt vitni um ofríki yfirvalda. Mađurinn sem veriđ hefur ţrjár vikur í hungurverkfalli ''verđur ekki neyddur til ađ nćrast eđa á annan hátt brotiđ á sjálfsákvörđunarrétti hans, međan hann hefur međvitund til ţess ađ hafna ađstođinni, segir Hera Ósk Einarsdóttir félagsráđgjafi hjá Reykjanesbć.'' Síđan er bćtt viđ: ''Hćlisleitandinn hefur hins vegar ekki skrifađ undir ađ hann hafni lćknisađstođ, fari svo ađ hann missi međvitund.''

Sagt er í fréttinni ađ hver mađur hafi rétt til ţess ađ fremja ''sjálfsmorđ'' eins og svo smekklega er komist ađ orđi í samhengi ţar sem ţađ orđ á ekki viđ. (Ţetta orđalag er notađ til ađ firra  yfirvöldum allri ábyrgđ í málinu en einnig til ađ niđurlćgja hćlisleitandann). Sjálfákvörđunarrétturinn sé međal ţeirra mannréttinda sem viđ höfum. Einnig er haft eftir Heru ađ ''lćknisyfirvöld hafi gert henni ljóst ađ ekki sé hćgt ađ bregđast viđ fyrr en sjúklingurinn getur ekki tekiđ ákvörđun sjálfur.'' Ţađ er reyndar órökrétt ađ mann í mótmćlasvelti  beri ađ skilgreina sem sjúkling sem lćknar megi međhöndla ađ vild. 

En orđ Heru eru ekki hćgt ađ skilja öđru vísi en svo ađ lćknayfirvöld, kannski međ Sigurđ Árnason í broddi fylkingar, sem fariđ hefur offari langt út fyrir hlutverk sitt sem lćkni, bíđi eftir ţví ađ jafnskjótt og mađurinn missi međvitund  verđi nćringu neytt  ofan í hann án tillits til ţess hvernig eđa hvort stjórnvöld leysa úr máli hans. Reyndar er ýjađ ađ ţví ađ ţađ ćtli dómsmálaráđherra ekki ađ gera ţví ţađ geti brotiđ gegn jafnrćđisreglu. Og skálkaskjóliđ fyrir ţví ofbeldi ađ ţvinga fćđu í manninn á ađ vera ađ  hann hafi ekki skrifađ undir yfirlýsingu , gegniđ ađ einhverjum skilmálum Útlendingastofnunar. En lćknar og yfirvöld geta ekki horft framhjá ţeim  vilja og sjálfsákvörđunarrétti mannsins sem birtist í einbeittum verknađi hans.

Lausnin á máli mannsins á sem sagt  ađ vera  nauđungarnćring ţegar hann missir međvitund. Ţar međ er á grófasta  hátt sem hćgt er ađ hugsa sér gengiđ á sjálfsákvörđunarrétt mannsins ţví hann hefur međ fullri međvitund og međ réttu ráđi hafiđ mótmćlaađgerđ sem hann hefur vitađ hvađa afleiđingar kynni ađ hafa ef hún fćri alla leiđ. Hann er tilbúinn til ađ deyja međ reisn. 

Ţessa reisn eru yfirvöld albúin til ađ taka af honum međ auđmjúkri hlýđni lćkna og ónýta frjálsan vijla manns sem birst hefur í óvenjulega einbeittum verknađi og ganga ţannig í berhögg viđ alţjóđasamţykkt lćkna um mótmćlasvelti. 

Og munu lćknasamtökin og einstakir lćknar landsins horfa mótţróarlaust upp á  slíkt ofbeldi og heimsku? Til hvers eru alţjóđasamtök lćkna ađ gefa út leiđbeiningar ef ekki á ađ fara eftir ţeim?

Ég segi heimsku ţví í öđru orđinu lćtur Hera Ósk, fulltrúi yfirvalda, mikiđ međ sjálfsákvörđunarrétt manna og mannréttindi en í öđru orđinu lýsir hún ţví blygđunarlaust yfir ađ hún bíđi beinlínis eftir ţví ađ valta á lítilsvirđandi hátt yfir ţau réttindi. Svínbeygja manninn - í nafni stjórnvalda. 

Ţađ er óhugnanlegt ađ önnur eins grunnhyggni, jafn mikiđ skynleysi á kategóríur og grundvallaratriđi,  skuli ráđa ferđinni hjá stjórnvöldum í jafn viđkvćmu máli ţegar slíkt kemur í fyrsta sinn upp á Íslandi.

 


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband