Nokkur þurrkamet í júlí 2009

Nú er ljóst að þessi júlí sem er að líða er sá þurrasti sem mælst hefur í Reykjavík frá stofnun Veðurstofunnar 1920, 11,5 mm , en gamla metið var 13,2 mm árið 1958. Minni úrkoma mældist þó í eldgamla daga, 8,1 mm 1888 og 8,2 mm árið eftir. Sjá næstu bloggfærslu hér á undan.

Ekki hafa þó fallið þurrkamet á ýmsum veðurstöðvum sem lengi hafa athugað á suður-og vesturlandi, hvað þá annars staðar. Þar með eru taldar Stykkishólmur (athugað frá 1857), Eyrarbakki (1881-1911, 1926-), Hæll í Hreppum (1927), Vestmannaeyjar (1881), Vík í Mýrdal (1925) og Lambavatn á Rauðasandi (1938). 

Ekki veit ég um úrkomu á öllum  veðurstöðvum en eftirfarandi þurrkamet hef ég fundið, fyrst er úrkoman núna, svo gamla metið, loks hve nær byrjað var að athuga miðað við júlí. Kannski skeikar einhverju örlitlu með sumar þessara nýju talna hjá mér en það ætti ekki að breyta metunum sjálfum.

Brjánslækur á Barðaströnd, um 14,2 mm, 16,0 mm 1988; 1978.

Mjólkárvirkjun 4,1 mm, 8,6 mm 1974; 1960.

Hólar í Dýrafirði 10,6 mm , 15,8 mm 1988; 1983.  

Vatnsskarðshólar í Mýrdal 19,2 mm, 45,6 mm 1978; 1978.

Og kannski Hveravellir ef marka má sjálfvirka úrkomumælinn; 1965.

Í Stykkishólmi og Vestmannaeyjum er ekki lengra en síðan júlí 2007  að mældist minni úrkoma  í júlí en nú.  Á Eyrarbakka er þetta reyndar þurrasti júlí síðan 1939 en þá mældist þurrasti júlí i Vík í Mýrdal.

Þess má geta að hinn annálaði hlýji júlí 1939, sem jafnframt var sá sólríkasti sem mælst hefur í Reykjavík, var allvíða um land sá þurrasti sem hefur mælst. Menn voru  þó þakklátir fyrir hann á sínum tíma og fáir kvörtuðu um of mikinn þurrk. Enginn óskaði eftir rigningu!

Og nú er ég að rjúka út í sólina, þurrkinn og 15 stiga hitann!

 

 

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband