Ósvífnin er takmarkalaus

''Sjáandinn'',  sem spáði STÓRUM skjálfta kl. 23:15 fyrir nokkrum kvöldum, er ekki af baki dottinn. Viðtal er við hana á Vísi is. í dag. Þar telur hún að smáskjálfti sem reið yfir á Reykjanesi í gærkvöldi, mörgum dögum eftir ætlaðan spáskjálfta og á röngum tíma og svo lítill að ekki er orð á honum gerandi, sanni að hún hafi spáð rétt. En hún spáði sterkum skjálfta, sem myndi valda usla,  Samt segir hún sigri hrósandi:

„Það hlaut að vera. Sá hlær best sem síðast hlær," segir Lára og hlær glöð í bragði.

„Þessvegna svaf ég svona vel í nótt, ég hef ekki sofið svona vel í marga mánuði."

Lára segist hafa orðið fyrir miklu áreiti síðan hún spáði skjálftanum og ekkert gerðist. Nú hafi hann hinsvegar riðið yfir.

„Ég sagði þetta!" segir Lára

Hún segir gærkvöldið bara byrjunina, og næst komi eldgos.

Hún segir jarðhræringarnar þó ekki það versta sem sé í vændum, heldur sjái hún annan og miklu verri atburð framundan. Honum vill hún ekki segja fréttastofu frá eftir viðbrögð fólks síðast, en segist hins vegar ætla að vara yfirvöld við strax eftir helgi.

Þetta segir ''sjáandinn''á Vísi is.

Ósvífin er með ólíkindum. Allir sjá að spá hennar rættist ekki. En samt er það sem hún spáði ,skýrt og greinilega, teygt og togað til að eiga við annars konar atburð á allt öðrum tíma.

Og nú spáir ''sjáandinn'' einhverjum hörmungum, ''miklu verri' atburðum. 

Náttúruhafafarir eru alvarlegir atburðir sem geta kostað mannslíf og mikið eignatjón. Að gera sér leik að því að vekja ótta  með því að spá slíku með hlakkandi ósvífni varðar hugsanlega við lög og það er siðferðilega fyrir neðan allar hellur. Ekki er hægt að líða slíkt í ljósi þess að menn taki ekki mark á þessu hvort eð er. Þetta sé bara skemmtiefni. Málið er einmitt það að furðu margir taka einhvers konar mark á þessu og verja athæfi ''sjáandans'' og peppa hann upp á ýmsan hátt. Til dæmis fjölmiðlarnir að hleypa honum að sér. Og þetta er næu mest lesna fréttin á Visi is. og segir margt um óvísindalegan þankagang þjóðrinnar og eftirsókn hennar eftir óskynsamlegum dulfræðoiorum á sviði lífsiins sem er fullkomlega raunvísindalegt.

Nýlega var Doctor E gerður útrækur af Moggablogginu fyrir  kalla skjálftasjáandann geðsjúkling og glæpakvendi.

Það eru að vísu stór orð. 

En hvað á eiginlega að kalla það andlega ástand manneskju sem trekk í trekk boðar hörmulegar náttúruhamfarir og virðist hlakka í henni,  þrátt fyrir það að reynslan sýni að ekki sé mark á henni takandi. Hvað á að kalla slíkt taktleysi, tillitsleysi og skort á skynsamlegri hugsun?

Hekla getur auðvitað gosið hve  nær sem er og líka Katla. Fylgst er með þessum eldfjöllum með mælitækjum og mörgum öðrum, þar með töldum Vestmannaeyjum og Reykjanesi. Eldgos gerir einhvert boð á undan sé, þó það geti verið stutt.

Á svo að segja að þessu hafi öllu verið spáð af ''sjáanda'' og upphefð hans eigi að vera mikil þegar næsta eldgos á sér stað?

Það er óskiljanlegt í eldfjallalandi þar sem jarðvísindi standa á háu stigi að fjölmiðlar skuli dekra við jarðskjálfta-og eldgosaspár ''sjáanda'', rétt eins og jarðeðlisfræðin tilheyri hinu yfirnáttúrlega. 

Ekki þarf svo að spyrja að þeirri hættu sem gæti stafað af því ef vísindamenn gæfu út viðvaranir um náttúruvá en sumir myndu kannski hundsa vegna síendurtekinna spádóma í fjölmiðlum um slíka atburði.

Fjölmiðlar verða að sýna lágmarksábyrgð. 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Elle_

Ekki getum við búist við ábyrgð af kjafta- og slúður "frétta" -miðli, Sigurður.   Ekki nema þeir verði sektaðir eða stöðvaðir fyrir lygasögur og að valda almenningi óþarfa ótta. 

Elle_, 1.8.2009 kl. 15:27

2 identicon

Fyrringin er algjör!

Ólafur (IP-tala skráð) 1.8.2009 kl. 15:52

3 Smámynd: Kama Sutra

Hvernig sem ég hugsa málið sé ég ekkert mikið athugavert við að kalla þessa kellingu glæpakvendi...

Kama Sutra, 1.8.2009 kl. 16:15

4 Smámynd: Ágúst H Bjarnason

 Þetta er rétt hjá þér Sigurður. Ég skil heldur ekkert í Vísi.

Mér skilst að jarðskjálftinn hafi verið um 3 á Richterskala að stærð. Jarðskjálfti sem er af stærðinni 4 er 31,6 sinnum öflugri en sjálfti af stærðinni 3. Skjálfti sem er 5 er um 1000 sinnum öflugri en sá sem er 3, og skjálfti sem er 7 er um 1.000.000 sinnum öflugri en skjálfti sem er af stærðarflokki 3. Allt miðað við orkuinnihald.  Sjá hér.

Er þetta ekki rétt Sigurður Þór?   Hve stórum skjálfta spáði konan?

Ágúst H Bjarnason, 1.8.2009 kl. 16:54

5 Smámynd: Ólafur Þórðarson

Skoðanir manna eru bara skoðanir. Mjá mjá.

Efast ekki um að margir vísindamenn hafi litið á klukkuna fyrir 5 dögum vitandi tímasetningu spádómsins. Svo glott út í annað munnvikið. Mjá mjá. 

Er konan geðsjúklingur? Það er hennar einkamál hvort sem rétt er eða ekki. Glæpakvendi? Nú veit ég ekki. Eru stjörnuspár lygar? Sjálfsagt.

En væri ekki bara svakalega spennandi ef færi að gjósa? Nýr Keilir myndist? Shaving Æsland gæti þá mótmælt skemmdum á landinu. Mjá mjá.

Ólafur Þórðarson, 1.8.2009 kl. 17:35

6 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Það væri æðislegt ef færi að gjósa, helst hamfaragosi með flykrubergi (hæfilega langt frá mannabyggð). Mjá, það held ég nú. 

Sigurður Þór Guðjónsson, 1.8.2009 kl. 17:42

7 Smámynd: Kama Sutra

Það verður hamfaragos hér á landi í haust - í óeiginlegri merkingu.

Gos af mannavöldum...

Mjá.

Kama Sutra, 1.8.2009 kl. 17:48

8 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Kama Sutra er kama sutra ekki eitthvað um kynlífshamfaragos?

Sigurður Þór Guðjónsson, 1.8.2009 kl. 17:50

9 Smámynd: Kama Sutra

Mjá.  Þá þykist spákellingin hafa verið að meina það...

Kama Sutra, 1.8.2009 kl. 17:50

10 Smámynd: Kama Sutra

Þarna kemur það!  Spákellingin er auðvitað að vonast eftir kynlífshamfaragosi!  Og vill sjálf vera þar miðpunkturinn í atlotunum...

Kama Sutra, 1.8.2009 kl. 17:53

11 Smámynd: Kama Sutra

Verðum við ekki annars bönnuð hérna á Moggablogginu ef djókum með þetta?  Dokkksanum til samlætis.  Það má ekki segja neitt hérna lengur.  Allir svo viðkvæmir eitthvað þessa dagana...

Kama Sutra, 1.8.2009 kl. 17:59

12 identicon

þessi kona er bara veik

Helga (IP-tala skráð) 2.8.2009 kl. 12:44

13 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Maður þorir varla að segja það en ég mér er nær að halda að þessi miðill sé gjörsamlega ósjáandi, óalandi og óferjandi.

Svava frá Strandbergi , 2.8.2009 kl. 23:30

14 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Ósvífnin er makalaus, svo mikið er rétt. Má þó varla á milli sjá hvort vorkenna eigi athyglissjúkum kerlingaranganum meira en fjölmiðlasnápunum, sem sjá ekkert markverðara að eltast við þessa daga. Hefði haldið að bitastæðara umfjöllunarefni höfðaði frekar til almennilegs fjölmiðlafólks, sem reyndar virðist orðið afskaplega lítið um hér á landi og því ekki nema von að svona endemis rugl fari af stað. 

Halldór Egill Guðnason, 3.8.2009 kl. 09:21

15 Smámynd: Elle_

Endemis rugl passar.

Elle_, 4.8.2009 kl. 21:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband