6.9.2009 | 20:51
Reiður stjórnmálamaður á ekki að setja lög
Björgvin G. Sigurðsson, fyrrverandi ráðherra, segir farir sínar ekki sléttar varðandi rógburð nafnlausra manna um hann á netinu.
Það er eðlilegt að maður sem verður fyrir slíku sé sár og reiður.
Mér finnst þó mest ástæða til að menn láti ekki framhjá sér fara þessi orð Björgvins:
''Draga þarf þá til ábyrgðar fyrir róginn og nafnlausa níðið á netinu sem halda úti síðunum sem gera fólki kleift að hamast á æru fólks með lygum og rógburði í skjóli nafnleyndar. Ljóst er að verulega þarf að skýra lög um ærumeiðingar og refsiábyrgð vegna hennar og mun ég beita mér að öllu afli til þess að hún fari fram og gangi hratt.''
Björgvin er alþingismaður og hefur því aðstöðu til að gera það sem hann segir: að hrinda fram löggjöf með hraði.
Það er hins vegar full ástæða til að hafa áhyggjur af því að reiður stjórnmálamaður sem á persónulegra harma að hefna og er auk þess hluti af valdakerfinu vilji setja lög sem varða tjáningarfrelsi. Það er einfaldlega hætt við því að þó lögin eigi að hafa sómasamlegt markmið - að koma í veg fyrir nafnalausar ærumeiðingar á netinu - verði þau þannig úr garði gerð að þau muni hefta ritfrelsi og tjáningarfrelsi á óeðlilegan hátt. Dæmi eru um það í öðrum löndum að lög sem eiga að tryggja vissa hagsmuni fólks, sem kannski eru góð og gild, verði valdastéttunum kærkomið skálkaskjól til að bæla niður gagnrýni og andóf.
Lagagerð í málum sem eru jafn viðkvæm og flókin sem tjáningarfrelsi á svo vitaskuld ekki að setja með hraði heldur að vandlega íhuguðu máli. Bálreiður stjórnmálamaður á heldur alls ekki að setja lög. Hann á að hafa hægt um sig til að skapa ekki vandræði.
Það er full ástæða til að almenningur hafi stjórnmálamenn í strangri gæslu og veiti þeim strangt aðhald þegar þeir ætla sér að setja lög sem snerta tjáningarfrelsi.
Reyndar er þessi pistill Björgvins afar óskýr. Hann talar til dæmis um að skýra þurfi lögin um ærumeiðingar þegar hann á greinilega við að setja þurfi ný lög. Það er einmitt oft háttur stjórnálamanna að vera óskýrir og gefa ekki almennilega uppi markmið sín. Þess vegna þarf að passa vel upp á þá að þeir fari ekki þjóðinni að voða.
Síðasta hugsun Björgvins í pistlinum er hreinlega út í hött og gengur ekki upp:
''Verði það niðurstaðan að það sé löglegt og siðlegt að fólk níðist nafnlaust og án ábyrgðar á fólki á netinu skal það allavega liggja fyrir hver ber þá ábyrgðina og hvert skal hana sækja þegar um ærumeiðingar er að ræða''.
Það liggur í augum uppi að verði niðurstaðan sú að það sé löglegt að fólk níðist á öðrum nafnlaust og án ábyrgðar á netinu þarf enginn að bera á því ábyrgð - það er jú löglegt - af því tagi sem Björgvin á við og ábyrgðina þarf því ekki að sækja neitt.
Það er innri mótsögn í orðum hans. Þau eru því sannarlegt rugl. Eins og svo margt sem frá stjórnmálamönnum kemur og við höfum fengið okkur fullsödd af.
Ég þarf varla að taka það fram að ég hef andstyggð á þess háttar rógburði og slúðri sem Björgvin segist hafa orðið fyrir.
Það breytir ekki því að ástæða er til að veita honum og öðrum stjórnmálamönnum strangt aðhald í hvers konar hugsanlegri lagasetningu sem þeir stofna til er varða tjáningarfrelsi.
Þjóðin hefur reynslu af því að stjórnmálamönnum er varlega treystandi fyrir mikilvægustu hagsmunum þjóðarinnar.
Færsluflokkar
- Allt í plati
- Blogg
- Bloggar
- Bækur
- Efnisyfirlit um veður
- Ég
- Guð sé oss næstur
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Hlýustu og köldustu mánuðir
- Íslensk veðurmet
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Mali
- Mannlífið
- Mánaðarvöktun veðurs
- Menning og listir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Veðurfar
- Veður í annálum og öðrum gömlum heimildum
- Veður um allan heim
- Vísindi og fræði
Tenglar
Blogg
Ýmsir vefir
- Gjósandi eldfjöll
- Kantötur Bachs
- Schubert
- Stjörnuskoðun
- Nótnasafnið
- Torfusamtökin
- Lilta-Ávík
- Blogggáttin
- Doctor E
Blogg
Síður
- Sólarminnstu júlímánuðir
- Þíðukaflar að vetrarlagi í Reykjavík
- Jóla og áramótaveðrið frá 1880
- Sólrík sumur og sólarsnauð
- Sólskin á Íslandi
- Hámarkshiti á landinu um verslunarmannahelgina frá 1949 og veðrið í Reykjavík
- Slær júlí hitamet í Reykjavík
- Óvenju hlý júlíbyrjun
- Nokkrir kaldir janúarmánuðir og kuldadagar
- Hret og snjóar í ágúst
- [ Fleiri fastar síður ]
Eldri færslur
- Mars 2023
- Ágúst 2019
- Desember 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Desember 2017
- Júlí 2017
- Maí 2017
- Febrúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- September 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
Athugasemdir
Takk fyrir Sigurður.
Þetta mál er dæmigert fyrir það hvernig stjórnvöld undirbúa jarðvegin fyrir skerðingu á frelsi okkar.
Guðmundur Ragnar Guðmundsson
kt 110756-7049
Guðmundur Ragnar Guðmundsson, 6.9.2009 kl. 22:00
Ég tek heilshugar undir þetta og spyr mig hvernig standi á því að hann lofi ekki að keyra í gegn lög sem geta komið þjóðinni til hjálpar.
Hér má nefna flýtimeðferð á lögum um það hvernig taka skuli á málum hrjáðra fjölskyldna sem ekki geta lengur borgað af sínum skuldum.
Einnig lög sem tryggja að klúðrir mikla verði ekki einungis eitthvað sem við ræðum um yfir kaffibolla heldur verði hægt að sækja menn/konur til saka þegar og ef upp kemst um sekt þeirra.
Lilja Skaftadóttir, 6.9.2009 kl. 22:46
Stundum verð ég alveg agndofa og orðlaus yfir forgangsröðuninni hjá stjórnmálamönnunum okkar.
Halló, Björgvin! Hrundólgarnir ganga ennþá lausir - núna tæpu ári eftir hrunið! Hvað ertu að gera til að bæta úr því?!
Kama Sutra, 6.9.2009 kl. 22:58
Heyr heyr!
Jón Steinar Ragnarsson, 7.9.2009 kl. 04:37
Takk fyrir afar vel skrifaðan og vandaðan pistil Sigurður.
Hrannar Baldursson, 7.9.2009 kl. 08:59
Þetta sannar hið fornkveðana: Íslenskir stjórnmálamenn hreyfa ekki á sér rassgatið nema fyrir sjálfa sig.
Þjóðin í rúst... og þetta er mikilvægasta mál í heimi í höfði Bjögga... ,það þarf að taka þennan dreng af þingi.
DoctorE (IP-tala skráð) 7.9.2009 kl. 09:21
Það er etv ekki líklegt að hann hafi mikinn áhuga á því að grúska í hruninu. Mörg stærstu mistakanna áttu sér líklega stað á hans vakt, þó hann hafi sloppið ótrúlega vel við gagnrýni vegna þess.
T.d. voru Icesave reikningarnir í Hollandi settir af stað EINU ÁRi eftir að hann settist í ráðherrastól viðskipta.
Furðulegt að hann hafi yfirleitt komist á þing aftur, hverjir kusu hann eiginlega ??
Guðjón (IP-tala skráð) 7.9.2009 kl. 10:59
Lurkar og steinar brjóta mín bein
en orðin og mannanna mas
fer sem vindur um eyru.
Bárður R. Jónsson (IP-tala skráð) 7.9.2009 kl. 11:51
Bárður... penninn er sterkari en sverðið og steinar + lurkar :)
DoctorE (IP-tala skráð) 7.9.2009 kl. 12:02
Hér eru orð í tíma töluð. Takk fyrir þennan pistil Sigurður Þór sem öllum, sérstaklega stjórnmálamönnum, er hollt að lesa.
Jón Baldur Lorange, 7.9.2009 kl. 22:52
Takk fyrir þetta. Þjóðin verður að vera vakandi og fylgjast vel með.
Guðrún Þóra Hjaltadóttir, 8.9.2009 kl. 07:59
Reiður stjórnmálamaður á ekki að seja lög - enginn ætti að fara svangur í búðina...
Sveinn í Felli (IP-tala skráð) 8.9.2009 kl. 09:49
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.