Reykingar og drykkjuskapur

Læknar eru nú í herferð gegn reykingum. Þeir segja að þær séu versta heilsufarsógn þjóðarinnar. Hvergi sé tóbak þó flokkað með eiturlyfjum. En Læknar vilja að Ísland verði fyrsta landið til að gera það.

Frábær hugmynd sem endilega ætti að gera að veruleika. 

En það er fleira en tóbak sem ógnar heilsunni. Í fréttum um daginn var sagt að áfengisneysla í Bretlandi væri orðinn einhver mesta heilsufarsógnin þar í landi. 

Það er staðreynd að neysla áfengis á Íslandi hefur aukist mikið síðustu ár. Samt sem áður er því oft haldið fram að drykkjumenning þjóðarinnar hafi batnað. Ekki fæ ég nú beint séð það um helgar eða á útihátíðum. Þegar lögreglan segir að hafi verið mikill ''erill'. Það merkir að hafi verið mikið fyllirí. 

Ef fram heldur sem horfir munu þeir dagar ekki vera langt undan að menn verði að viðurkenna að áfengisneysla sé líka einhver mesta heilsufarsógn þjóðarinnar eins og hún er orðin í Bretlandi og slái út öll  ólögleg eiturlyf  í heilsufarslegum og samfélagslegum skaða. 

En menn hika mjög en við að horfast í augu við skaðsemi áfengis. Menn umgangast það af ótrúlega mikilli virðingu sem virðist jafnvel fara vaxandi. Börn eru hiklaust hvött til að byrja aldrei að reykja en þau eru ekki hvött til þess að byrja aldrei að drekka. Þau  eru hvött til að drekka í hófi.  Það er mjög langt frá því að áfengi sé sett á sama óæðri bekk og tóbak þó það ætti heima þar og hvergi annars staðar.

Að því hlýtur samt að koma.  

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Áfengi og sígarettur eru á topp 5 lista yfir hættulegustu eiturlyf í heimi... ekkert kemst í hálfkvist við þau...
Svo er lögreglan að eltast við kannabis.. sem er mun veikara að öllu leiti.. já það er það, ef þið segið annað þá eruð þið að tala út um afturendan á ykkur.

DoctorE (IP-tala skráð) 11.9.2009 kl. 13:28

2 identicon

Já bönnum áfengi og tóbak. Ég er viss um að glæponarnir í undirheimunum myndu taka því mjög vel að fá fleiri vörutegundir í sölu.

Bann er engin lausn, heldur bara aðferð til ýta vandamálinu á undan sér. Til að leysa vandmál verðum við að fara gegn rót vandans. Salan á þessum eiturlyfjum er ekki rót vandans.

Alexander (IP-tala skráð) 11.9.2009 kl. 13:47

3 identicon

Fyrirgefðu, félagi, sýnist þér bann á fíkniefnum vera að virka svakalega vel? Hvers vegna heldurðu að það séu til handrukkarar? Hvers vegna heldurðu að neytendur fari ekki til lögreglunnar? Þetta eru beinar afleiðingar bannsins. Það er ekkert mál að ímynda sér heim þar sem fólk einfaldlega lætur segja sér hvað það megi gera við eigin skrokk, en hérna hinu megin í raunveruleikanum er það ekki alveg svo einfalt.

Bann hefur aldrei og mun aldrei gera neitt nema illt verra.

Helgi Hrafn Gunnarsson (IP-tala skráð) 11.9.2009 kl. 13:49

4 identicon

Vitrænar forvarnir án grýlu er það eina sem dugar... einnig á að lögleyfa kannabis... þúsundir nota efnið, hreinasta fyrra að láta glæpahringi græða á tá og fingri.. og að gera neytendur að glæpamönnum... hlægilegt

DoctorE (IP-tala skráð) 11.9.2009 kl. 13:55

5 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Ég segi ekki orð um það að eigi að banna áfengi eða tóbak. Ég hvet ekki til þess.

Sigurður Þór Guðjónsson, 11.9.2009 kl. 14:27

6 Smámynd: Finnur Hrafn Jónsson

Sigurður: mér þykir þú kjarkaður að tala af virðingarleysi um áfengi. Það hlýtur að jaðra við guðlast í eyrum sumra.

Með sama áframhaldi verður dóttir mín búin að horfa á 5-10 þúsund áfengisauglýsingar í sjónvarpi áður en hún nær 18 ára aldri. Fólkið í áfengisauglýsingunum er svo fallegt og sniðugt. Líkurnar á því að ég nái að sá einhverjum efasemdarfræjum um að áfengi geti verið skaðlegt eru hverfandi.

"...Bann hefur aldrei og mun aldrei gera neitt nema illt verra..." Já afnemum bann við hraðakstri, fólk fer ekki eftir því hvort eð er. Afnemum líka bann við bann við sjálftöku bankamanna, sagan sýnir okkur að þeir fara hvort eða er ekkert eftir því.

Finnur Hrafn Jónsson, 11.9.2009 kl. 14:35

7 identicon

Þú ert að bera saman epli og appelsínur Finnur... og færð út banana

DoctorE (IP-tala skráð) 11.9.2009 kl. 15:03

8 Smámynd: Haukur Sigurðsson

"Ég segi ekki orð um það að eigi að banna áfengi eða tóbak. Ég hvet ekki til þess."

 Jæja... hvað með þetta; 

 "Hvergi sé tóbak þó flokkað með eiturlyfjum. (........)

Frábær hugmynd sem endilega ætti að gera að veruleika. "



Hvað meinarðu með flokkun ef ekki "bannaða flokkinn"?  Er mikið af annars leyfilegum eiturlyfjum?

 

Og Alexander...

"Ég er viss um að glæponarnir í undirheimunum myndu taka því mjög vel að fá fleiri vörutegundir í sölu."

100% sammála.  Það væri lítið vesen í kringum ýmsa neyslu allskyns "efna" ef ekki þyrfti að sækja það inn í hættulegt umhverfi.  Nei, öll spil á borðið og ekkert í felum.  Eingöngu þannig verður einhver stjórn á illstjórnanlegri, og að mestu leyti skaðlausri hegðun.

 

Ég held svei mér þá að þau völd sem stjórna, geri sér ekki grein fyrir hversu lítils traust og trúverðugleika þau njóta.  Ég hefði gaman af að sjá þann reykjandi Íslending í dag sem ætlaði að láta banna sér að fá sér sígarettu.

 Ef það var djöfulsins fokking fokk áður, þá býð ég ekki í framhaldið.

Haukur Sigurðsson, 11.9.2009 kl. 15:45

9 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Læknar eru ekki að hvetja til þess að tóbak verði bannað þó það verði  flokað með eiturlyfjum. TÓBAK ER MJÖG EITRAÐ. Má ekki viðurkenna það formlega líka því það er viðurkennt í reynd? Viðurkenning á tóbaki sem eiturlyfi myndi eflaust gera auðveldara að hamla gegn skaðsemi þess. En varla er þess að vanta að slíkar hugmyndir séu mikils virði i hugum þeirra sem telja neyslu áfengis og tóabaks að mestu leyti skaðlausa. Þrátt fyrir það að beinharðar staðreyndir segi allt annað.   

Sigurður Þór Guðjónsson, 11.9.2009 kl. 16:00

10 identicon

Sigurður skurður samdi þessa vísu.

Ögn í staupi ætíð þygg

ef að mér er gefið

ögn ég reyki ögn ég tygg

og ögn ég tek í nefið.

Það er óhófið sem drepur.

Diddi (IP-tala skráð) 11.9.2009 kl. 16:51

11 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Mikið er gott að fá smá húmor inn í allt þetta drykkjuraus! Hins vegar er óhófið  í þessum efnum ansi mikið. Annars væru engin vandræði.  

Sigurður Þór Guðjónsson, 11.9.2009 kl. 17:11

12 identicon

DoctorE (IP-tala skráð) 12.9.2009 kl. 16:39

13 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Athugasemd: Heimild mín fyrir orðinu ''eiturlyf'' var viðtal í hádegisfréttum RÚV þar sem þetta orð var notað. Réttara er þó að læknar vilja að tóbak verði flokka sem ávana-og fíkniefni sem það vissulega er.

Sigurður Þór Guðjónsson, 12.9.2009 kl. 16:54

14 identicon

Alveg rétt, þetta er eitt erfiðasta eiturlyfið að ráða við... on par með heróíni að reyna að hætta

DoctorE (IP-tala skráð) 12.9.2009 kl. 20:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband