9.10.2009 | 18:13
Flókið Gagnatorg
Skýrt hefur verið frá því að opnað hafi verið vefsvæðið Gagnatorg. Þar á að vera hægt ''með einföldum hætti'', eins og segir í kynningu, að finna allar veðurathuganir Veðurstofunnar.
Þeir sem standa að vefnum, sem eru aðrir aðilar en Veðurstofan, gera sér glæstar vonir um að grunnurinn gagnist ekki aðeins grámyglulegum fræðimönnum heldur líka kynferskum nemendum og sérlunduðum áhugamönnum um veðurfar.
Ekki virðist vefurinn samt árennilegur og næsta víst að notkun hans vefjist fyrir nemendum og áhugamönnum. Til að komast eitthvað áfram verða menn að fylla út heil ósköp af einhverju sem virðist vera það sama en með mismunandi nöfnum; ''mæling'', ''upprunaleg gildi,'' ''gæðastimplar'', hvað merkir þetta?
Engar skýringar um eitt né neitt eru sjáanlegar.
Allt er þetta litlu skiljanlegra en vegir almættisins.
En kannski er þetta bara byrjunin. Til þess að venjulegu fólki geti gagnast þessi vefur þarf nauðsynlega að gera hann aðgengilegri.
Viðbót: Þegar maður fer að skoða vefin grandgæfilega renna upp fyrir manni ýmis göfug skilningsljós. Eigi að síður ættu vefmeistarar að gefa skýringar, þarna eru t.d. skammstafanir sem ekki liggja í augum uppi og hætt er við að ýmislegt í töflum sem upp koma þegar leitað er geti valdið misskilningi hjá námsmönnum og áhugamönnum. Auk þess þyrfti að sjást hvað gögn ná langt aftur fyrir hverja stöð. Og síðast en ekki síst ætti að raða veðurstöðunu í dálkinum þar sem hægt er að haka við þær eftir einhvers konar röð, stafrófsröð, landsröð, eftir gerð veðurstöðvar eða á einhvern annan kerfisbundinn hátt, en röðin er núna gjörsamlega holt og bolt. Það tekur því langan tíma að leita að tiltekinni stöð. Þá vill hakast af sjálfsdáðum við eitthvað sem maður hefur ekkert hakað við og veldur töfum og leiðindum. Loks er bagalegt að ekki skuli vera hægt að komast fyrirhafnarlaust í upphafsstöðu, maður þarf að fletta til baka langar leiðir ef maður hefur verið að skoða stöðvar og eitt hefur leitt af öðru. Það er líka þreyandi að leitarramminn sem maður slær inn með tímabil, t.d. 1.10.2009-10.10. 2009 og vill skoða dag (en ekki klukkustundir eða mánuði) þá halda þessar stillingar ekki áfram ef maður vill skoða margar stöðvar, maður þarf því sífellt að vera að slá inn aftur þessum tímaviðmiðunum. Svona er þetta hjá mér og ég geri ráð fyrir að það sé ekki mín tölva sem veldur heldur sé feillinn hjá Gagnatorgi.
Færsluflokkar
- Allt í plati
- Blogg
- Bloggar
- Bækur
- Efnisyfirlit um veður
- Ég
- Guð sé oss næstur
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Hlýustu og köldustu mánuðir
- Íslensk veðurmet
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Mali
- Mannlífið
- Mánaðarvöktun veðurs
- Menning og listir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Veðurfar
- Veður í annálum og öðrum gömlum heimildum
- Veður um allan heim
- Vísindi og fræði
Tenglar
Blogg
Ýmsir vefir
- Gjósandi eldfjöll
- Kantötur Bachs
- Schubert
- Stjörnuskoðun
- Nótnasafnið
- Torfusamtökin
- Lilta-Ávík
- Blogggáttin
- Doctor E
Blogg
Síður
- Sólarminnstu júlímánuðir
- Þíðukaflar að vetrarlagi í Reykjavík
- Jóla og áramótaveðrið frá 1880
- Sólrík sumur og sólarsnauð
- Sólskin á Íslandi
- Hámarkshiti á landinu um verslunarmannahelgina frá 1949 og veðrið í Reykjavík
- Slær júlí hitamet í Reykjavík
- Óvenju hlý júlíbyrjun
- Nokkrir kaldir janúarmánuðir og kuldadagar
- Hret og snjóar í ágúst
- [ Fleiri fastar síður ]
Eldri færslur
- Desember 2024
- Mars 2023
- Ágúst 2019
- Desember 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Desember 2017
- Júlí 2017
- Maí 2017
- Febrúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- September 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
Athugasemdir
Ertu að segja mér að "einfaldur háttur" sé flókinn? Þú er bara ekki nógu einfaldur.
Sæmundur Bjarnason, 9.10.2009 kl. 18:21
Ég tala ekki um einfaldleikann Sæmundur, það eru þeir sem standa að Gagnatorginu og ég er að draga orð þeirra í efa.
Sigurður Þór Guðjónsson, 9.10.2009 kl. 18:23
Bara smástríðni. Þegar kemur að svona löguðu tek ég meira mark á þér en nokkrum öðrum.
Varðandi t.d. aðgengi fatlaðra að tölvugögnum tek ég meira mark á Arnþóri Helgasyni en nokkrum öðrum.
Sæmundur Bjarnason, 9.10.2009 kl. 18:59
Hér eru smá leiðbeiningar hvernig gagnasafnið hjá RÍV (riv.is) virkar.
Pálmi Freyr Óskarsson, 12.10.2009 kl. 00:18
Takk fyrir þetta Pálmi Freyr! Það eru truflanir á vefnum, sem áreiðanlega stafa ekki af minni tölvu, það koma upplýsingar sem ekki er beðið um, hakast sjálfkrafa við einhvern fjandann, alltaf það sama, sem ekki er spurt um,veðurstöðvadálkurinn hreyfist upp og niður og svona hitt og þetta.
Sigurður Þór Guðjónsson, 12.10.2009 kl. 13:03
Það virkar nú ekki hjá mér að smella á stöðvar á kortinu.
Sigurður Þór Guðjónsson, 12.10.2009 kl. 23:30
Mér gengur heldur ekkert með þetta gagnatorg. Ég sé t.d ekki að hægt sé að kalla fram graf yfir meðalhita, bara Min og Max. Það gengur illa að slá inn dagsetningar og þar fyrir utan er síðan svo óþæg að ég þurfti að neiða forritið til að hætta núna síðast.
Emil Hannes Valgeirsson, 13.10.2009 kl. 00:14
Síðan er illviðráðanleg og er með ýmsa stæla, ekki í síst í dagsetningabransanum. Þegar síður eru svona erfiðar gerist bara eitt: Menn gefast upp á þeim.
Sigurður Þór Guðjónsson, 13.10.2009 kl. 00:47
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.