Nýjustu fréttir

Ég hef frétt eftir pottþéttum heimildum að Kristur sé hættur við að snúa aftur til jarðarinnar til að dæma réttláta og rangláta. Það þjóni andskotans engum tilgangi.

Allir séu nefnilega orðnir svo ranglátir að þeir muni átómatískt fara beina leið til helvítis.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Kæri vinur les að þú hefur gleymt því sem ég sagði þér fyrir ca ári! Það er búið að sameina drengur. Ekki þótti rekstrargrunvöllur fyrir tveim úthöldum enda farið að halla verulega á þá feðga í efra. ..

Hallgerður Pétursdóttir (IP-tala skráð) 14.11.2009 kl. 11:18

2 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Hann hefur agenta sér til aðhalds og svo kemur hann víst ekki nema allt keyri um þverbak, á hinum hinsta degi. Hann á það til að draga hlutina hann Jesús Jósefsson. En betra seint en aldrei, fyrir ykkur sem eftir er að dæma, og sem ekki komist sjálfkrafa í 7. himinn.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 14.11.2009 kl. 11:37

3 Smámynd: Svavar Alfreð Jónsson

Og kannski er þetta bara einn stór misskilningur og við löngu komin þangað?

Svavar Alfreð Jónsson, 14.11.2009 kl. 11:42

4 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Engir eru réttlátir á þessum síðustu dögum hinna vanheilögu nema sauðahjörð Ísraels. 

Sigurður Þór Guðjónsson, 14.11.2009 kl. 11:45

5 identicon

Við erum löngu komin þangað. 

ElleE (IP-tala skráð) 14.11.2009 kl. 12:59

6 identicon



DoctorE (IP-tala skráð) 14.11.2009 kl. 13:29

7 Smámynd: Kama Sutra

Ef kisurnar  eru í neðra, vil ég endilega fara þangað.

Kama Sutra, 14.11.2009 kl. 15:42

8 identicon

Sæll Sigurður.

Þú ert eini fjölmiðillinn hér á landi sem er frjáls og
óháður og því ekki að efa að rétt er eftir haft.

Mikil bók fjallar á einum stað um hefnd Drottins fyrir
morð gyðinga á syni Jóseps þó svo af gáleysi hafi verið.
"Hann réttir hönd sína yfir Ísrael," er talið tákn nasistakveðjunnar.
Hefnandi Guðs föður á gyðingum var Adolf Hitler, hefnandi Jóseps smiðs var Jósep Göbbels og hefnandi Heilags Anda var Hermann Göring. Þetta segir í bók þessari og því bætt við að um sé að ræða
tímabil er nái yfir 2 þúsund ár og 2 fetum af ösku betur.
(Blogghaldari nokkur fór óvirðulegum orðum nýlega um
menningaráhuga þrenningar þessarar en hann er hafinn yfir allan vafa, - og hana nú!)

Húsari. (IP-tala skráð) 14.11.2009 kl. 17:16

9 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Er ekki Svavar að miskilja eitthvað? Ég hélt að ástandið væri svona af því að það er vrið að fylgja eftir orðum meistarans í Matt: 10:34-39.

Nú varðandi Ísraelsmenn, þá er rétt að menn fletti upp í Matt: 15: 21-28, um kanversku konuna (blökkukonuna) sem Jesú líkir við hunda.  Hvað segir hann í versi 24?

21Þaðan hélt Jesús til byggða Týrusar og Sídonar. 22Þá kom kona nokkur kanversk úr þeim héruðum og kallaði: "Miskunna þú mér, herra, sonur Davíðs! Dóttir mín er mjög kvalin af illum anda."

23En hann svaraði henni engu orði. Lærisveinar hans komu þá og báðu hann: "Láttu hana fara, hún eltir oss með hrópum."

24Hann mælti: "Ég er ekki sendur nema til týndra sauða af Ísraelsætt."

25Konan kom, laut honum og sagði: "Herra, hjálpa þú mér!"

26Hann svaraði: "Ekki sæmir að taka brauð barnanna og kasta því fyrir hundana."

27Hún sagði: "Satt er það, herra, þó eta hundarnir mola þá, sem falla af borðum húsbænda þeirra."

28Þá mælti Jesús við hana: "Kona, mikil er trú þín. Verði þér sem þú vilt." Og dóttir hennar varð heil frá þeirri stundu.

 Ég sé bara einn hér á þræðinum, sem á séns samkvæmt þessu, en það er Villi Danski.

Jón Steinar Ragnarsson, 14.11.2009 kl. 20:50

10 identicon

Ekki henda perlum fyrir svín, þau geta dottið og meitt sig ;)

En hvað segið þið, ísland að sóa milljörðum í ímyndaða "þjóðhetju" gyðinga.. sem þeir sjálfir viðurkenna ekki einu sinni sem þann sem átti að frelsa þá... það er nokkuð djúpt :)

DoctorE (IP-tala skráð) 14.11.2009 kl. 21:42

11 identicon

Ekki veit ég hvaða pottþéttar heimildir þú hefur fyrir þessari frétt. Ég hef jafnvel pottþéttari heimildir fyrir því að hann muni koma aftur sem betur fer. Frá syndafalli hefur manneskjan verið spillt, engin undantekning þar, allir gjörspilltir! Við höfum þó þann eiginleika að sjá betur flísina í auga náungans en bjálkan í okkar eigin augum og sjáum þar af leiðandi alltaf vel þá galla sem "prýðir" náunga okkar. Þrátt fyrir alla okkar misbresti og galla þá er Kristur góður við okkur og elskar okkur meir en við höfum skilning á. Hann kemur til að frelsa okkur úr þessu gjörspillta syndabæli og hefur lofað okkur lífi á stað þar sem engin synd verður framar. Hann er einnig svo góður við okkur að hann lætur okkur algjörlega ráða hvort við viljum fylgja honum og taka því frelsunartilboði sem hann hefur boðið okkur og þar af leiðandi kemur hann til að sækja þá sem hafa tekið við þeirri frelsun sem hann hefur rétt okkur. Þeir sem ekki vilja hafa neitt með hann að gera og hæðast að honum í tíma og ótíma þvingar hann ekki með. En það að hann sé hættur við að koma er rangt. Hann kemur aftur áður en langt um líður, það er pottþétt!

Edda Karlsdóttir (IP-tala skráð) 15.11.2009 kl. 00:07

12 identicon

Auðvitað er það stórhöfðinglegt af Sigurði að
upplýsa okkur fráfróð um að frekari þankagangur
um himnavist sé óþarfur.
Á þessu öllu er þó einn agnúi en hann er sá að
samkvæmt Opinberunarbókinni fara nákvæmlega 144.000 til
himna og er því meinuð vist í neðra.
(þessi tala er ekki þarna af tilviljun heldur er hér um að ræða
12 ættkvíslir Ísraels og 12000 niðja hverrar ættkvíslar)

Húsari. (IP-tala skráð) 15.11.2009 kl. 00:27

13 identicon

Hvaða heimild ertu að tala um.. biblíu hahaha

Það sem þú ert að segja er að gáfaðasta og mesta súperséní í alheiminum hafi klúðrað mesta sköpunarverkinu algerlega, byrjaði með Adam & Evu, blásakleysingjum sem þekktu ekki munin á réttu og röngu, svo skapaði hann skrattann sem kom og plataði sköpunarverkið góða á meða guð hinn alsjáandi var fjarverandi og vissi ekkert.. þurfti meira að segja að leita að Adam og Evu :)
Sendi svo klón af sjálfum sér sem gerði nokkur töfrabrögð, sagði öllum að hlíða sér eða verða pyntaðir.. þóttist svo fremja sjálfsmorð... lét svo einhverja gúbba skrifa kexruglaða bók sem enginn með fullu viti getur trúað...
Og þú ert að bíða, eins og kynslóðin á undan þér.. og kynslóð eftir kynslóð.. allir voru að lifa á síðustu tímum...
Right

DoctorE (IP-tala skráð) 15.11.2009 kl. 00:29

14 identicon

Bara svo að það sé á hreinu DoctorE, þá var það ekki Guð sem klúðraði sköpunarverkinu heldur við mennirnir með rangri ákvarðanatöku. Sköpunarverkið var fullkomið í upphafi. En þetta hlýtur þú að vita Biblíufróður maðurinn. Hann skapaði okkur með frjálsan vilja til að taka þær ákvarðanir sem við nú höfum löngun til og jafnframt vara við afleiðingunum af þeim ákvörðunum sem við tökum. Við manneskjur erum mjög dugleg við að taka rangar ákvarðanir og þess vegna er þessi heimur svo kolruglaður sem hann er. Við höfum séð um þetta allt sjálf. Guð skapaði allt fullkomið í byrjun en skemmdarstarfsemin er okkar.

Edda Karlsdóttir (IP-tala skráð) 15.11.2009 kl. 00:49

15 identicon

Því er svo við að bæta að Biblían verður seint talin
skynsamleg því þar rekur sig hvað á annars horn.
Ekki er snyrtilega gengið frá málsendum eins og t.d. í
Njálssögu þar sem einn þriðji bókar fer í það eitt að
hnýta enda saman.
En það er einmitt í þeim punkti að Biblían er svo
heillandi í þverstæðum sínum og andstæðum og sem gerir
hana trúverðuga.
(í framhjáhlaupi skal þess getið að orðið doctor er annað
heiti yfir gyðinglegan Rabbí)

Húsari. (IP-tala skráð) 15.11.2009 kl. 00:54

16 identicon

Uhh ef ég myndi smíða vélmenni.. gæfi því svo frjálsan vilja, sleppti því lausu og vélmennið myndi fara og rústa öllu og svona, hver klikkaði, ég sem hönnuðurinn.. eða vélmennið sem ég hannaði?

Svo verður þú að athuga að Adam & Eva voru eins og smábörn, ofvaxin ungabörn... myndir þú skilja börnin þín eftir ein heima með byssur og eiturlyf.. ásamt því að vita að stórglæpamaður væri í stofunni....
Hvað myndir þú gera þegar þú kæmir heim og börnin útúrdópuð, búin að skjóta allt í spað í íbúðinni eftir að stórglæpamaðurinn plataði þau í að fikta í byssunum og dópinu?
Myndir þú senda börnin í útlegð á afskekktri eyðieyju, áfellast síðan börnin þeirra líka?
Myndir þú kenna einhverjum frjálsum vilja um..DO'h


Sorry ef guðinn er svona fullkominn þá hefði hann ekki feilað svona rosalega... og búið til svona rosalega lélegt sköpunarverk, þar sem hann á að vita allt þá hefði hann átt að vita fyrirfram að allt sem hann var að klambra saman myndi ekki virka eins og hann vildi... hann hefði átt að sjá þetta allt fyrir og sníða af alla hönnunargalla.

DoctorE (IP-tala skráð) 15.11.2009 kl. 01:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband