Kommúnistar

Skammaryrðin ''climate change deniers'', sem lesa má í ýmsum skrifum um loftslagsmál, minnir mig oft á upphrópunina ''kommúnistar'' í Mogganum í gamla daga.

Þar með var málið útrætt.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Arnar

Þetta er náttúrulega gamalt trikk:

"Sjáðu þessa ljótu bjána hvað þeir eru heimskir og vitlausir og allt"

Og hver sem er sammála ljótu heimsku og vitlausu bjánunum hlýtur þar með að vera að lýsa því yfir að hann sé sjálfur ljótur heimskur og vitlaus bjáni.

Arnar, 18.11.2009 kl. 11:40

2 Smámynd: Höskuldur Búi Jónsson

Hvað með skammaryrðið "Global Warming Alarmist"?

Höskuldur Búi Jónsson, 21.11.2009 kl. 01:06

3 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Vei! Kom þá ekki athugasemd frá þeim sem til var stefnt skeytinu!

Nú ríkir ekki kalt stríð heldur HEITT stríð um alla jörð.  


Sigurður Þór Guðjónsson, 21.11.2009 kl. 23:20

4 Smámynd: Höskuldur Búi Jónsson

Ók - point taken

En gott væri að fá dæmi, svo ég geti útskýrt þau tilvik sem ég nota þetta yndislega skammaryrði

Höskuldur Búi Jónsson, 21.11.2009 kl. 23:28

5 Smámynd: Sveinn Atli Gunnarsson

Ætli ég verði þá ekki að rita eitthvað líka, þar sem skeytið er væntanlega til mín einnig

Þetta er heitt málefni, þar sem orð sem þau sem nefnd eru, geta komið fyrir í hita leiksins. En það breytir þó ekki hinum vísindalega grunni, sem stendur nokkuð styrkum fótum, þrátt fyrir ýmis ummæli sem falla á báða bóga.

Sveinn Atli Gunnarsson, 21.11.2009 kl. 23:35

6 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Já, þetta er til ykkar beggja. Það ristir nú svo sem ekki dýpra en bara smástríðni.

Sigurður Þór Guðjónsson, 22.11.2009 kl. 00:40

7 Smámynd: Höskuldur Búi Jónsson

Helvískur, þú ert búinn að halda fyrir mér vöku  

Ég kannast við stríðni í kauða
sem kallar oss bölvaða sauða
og grínið köld fönn
hann glottir við tönn
gervalla nóttina rauða.

Góða nótt

Höskuldur Búi Jónsson, 22.11.2009 kl. 00:54

8 Smámynd: Sveinn Atli Gunnarsson

Og nú er málið útrætt

Sveinn Atli Gunnarsson, 22.11.2009 kl. 18:37

9 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Í Þessari lotu. Stórsókn á öllum vígsstöðvum er nú í undirbúningi á Allra veðra von með skriðdrekum, stórskotaliði og eldflaugum. Það verður global war(ming)! 

Sigurður Þór Guðjónsson, 24.11.2009 kl. 17:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband