Kisur og manneskjur

Með þessari frétt er mynd af manneskju og kisu.

Manneskjan á myndinni er sökuð um kynþáttahatur. Hún er full af skoðunum eins og manneskjur eru vanar að vera. Full af hroka og hugsunum um mismunun.

Manneskjur eru svoleiðis. Þær hata jafnvel frá sér vitið í nafni einhverrar trúarinnar.

Kisan á myndinni er hins vegar algjörlega laus við allt kynþáttahatur. Alla mismunun. Henni er líka alveg sama á hvað aðrar kisur trúa og hvort þær trúa nokkru yfirleitt. 

Ég ber það ekki saman hvað kisurnar bera af mönnunum um mannkosti alla, umburðarlyndi og réttsýni.

Kattkosti ætlaði ég nú að segja. 

 


mbl.is Poppsöngkona sögð rasisti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Cats can be a little mean to each other though. And picky about which humans they hang with.

Lissy (IP-tala skráð) 18.11.2009 kl. 19:18

2 identicon

Stundum eru kisur smá óþekkar ;)

DoctorE (IP-tala skráð) 18.11.2009 kl. 19:19

3 Smámynd: Kama Sutra

Kama Sutra, 18.11.2009 kl. 19:30

4 identicon

Eina kisumynd fyrir háttinn

DoctorE (IP-tala skráð) 18.11.2009 kl. 22:40

5 Smámynd: Emil Hannes Valgeirsson

Kettir, hugsa þeir um nokkuð annað en mat og að koma sér í mjúkinn hjá húsbónda sínum? Annars hef ég hvorki kattar- né hundsvit á þessu.

Emil Hannes Valgeirsson, 19.11.2009 kl. 00:22

6 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Kettir spá oft veðri með hátterni sínu.

Sigurður Þór Guðjónsson, 19.11.2009 kl. 00:31

7 Smámynd: Kama Sutra

Kettirnir hans Dokksa hugsa um eitthvað allt annað en mat.  Sumir eru með guð á heilanum eins og hann.

Núna er Dokksinn að fara með bænirnar sínar fyrir svefninn...

Kama Sutra, 19.11.2009 kl. 00:35

8 identicon

Þessi sem er að biðja til Gudda er alveg eins og mín kisa.. og líka alltaf að koma sér í mjúkinn hjá mér :)

Bænirnar mínar...

Guddi þú ert nú meiri bjáninn
Amen

;)

DoctorE (IP-tala skráð) 19.11.2009 kl. 08:40

9 Smámynd: Axel Þór Kolbeinsson

Fresskettir eru reyndar karlrembusvín.

Axel Þór Kolbeinsson, 19.11.2009 kl. 09:30

10 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Var það ekki Friðrik mikli sem sagði: Því meira sem ég kynnist tíkinni minni, Cleo, því fráhverfari verð ég konu minni.

Ég las í dönsku blaði í gær, að einn köttur mengi meira en Volkswagen Golf sem sem ekur 10.000 Km. Getur þetta verið satt?? Er komið ósóngat á þakið hjá þér Sigurður?

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 19.11.2009 kl. 13:00

11 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Það var reyndar ekki tekið fram í danska blaðinu, hvaða bifreið kötturinn æki.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 19.11.2009 kl. 13:00

12 identicon

DoctorE (IP-tala skráð) 19.11.2009 kl. 14:35

13 Smámynd: Finnur Bárðarson

Fullkomlega sammála um kattakostina umfram mannkostina.

Finnur Bárðarson, 19.11.2009 kl. 15:29

14 Smámynd: Emil Hannes Valgeirsson

Ef kettir væru aðeins stærri þá myndu þeir bara borða okkur!

Emil Hannes Valgeirsson, 20.11.2009 kl. 09:26

15 Smámynd: Kama Sutra

Jiii, hvað hvítþvegna kisan hans Dokksa er krúttleg!   Ég ætla að stela þessari mynd.

Ég bráðna í klessu...

Kama Sutra, 20.11.2009 kl. 20:44

16 Smámynd: Rebekka

Já ég er ekki sátt að verið sé að bendla alsaklausa kisu við einhverja konu sem sökuð eru  um kynþáttahatur!  Þetta minnir á einhverja papparazzi árás, þar sem reynt er að sýna kisuna í sem verstu ljósi.

"Ungur köttur í samfylgd með rasista - myndir". 

Rebekka, 22.11.2009 kl. 11:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband