Hinn óþægilegi sannleikur

Vísindamenn vita ekki hvaðan á sig stendur veðrið með það að jörðin hefur ekkert hlýnað í tíu ár. 

Um þetta er ekki að villast. Við verðum að horfast í augu við þennan óþægilega sannleika

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

"Það er ekkert að marka því það er vitlaust gefið!"    Meðaltalið er vitlaust reiknað það er nokkuð augljóst.     Hér hafa alls kyns skorkvikindi numið land síðustu 10 ár, alls kyns veðurmet eru slegin hér og hvar á jarðkringlunni en meðaltalið er það sama, úrkomumet í Bretlandi, úrkomuskortur í Ástralíu, meðaltalið það sama!   

Það er alla vega að hlýna hér - mér finnst ekki hafa komið alvöru vetur hér síðan kringum 1960;    1979 var þó leiðinda ár, ég varð heylaus!!!  Sömuleiðis var 1989 leiðinlegt!

Ragnar Eiríksson

Ragnar Eiriksson (IP-tala skráð) 22.11.2009 kl. 20:52

2 Smámynd: Sveinn Atli Gunnarsson

Hérna er fróðleg grein af vef Veðurstofunnar um þetta eftir Halldór Björnsson; Hætti hlýnun jarðar eftir 1998?

Sveinn Atli Gunnarsson, 22.11.2009 kl. 21:56

3 Smámynd: Ágúst H Bjarnason

Nú má bara alls ekki fara að kólna aftur. Hitinn mætti svo sem gjarnan standa í stað, en ekki kólna

Hvernig ætli standi á því að dýralífið er svo fjölskrúðugt nær miðbaug en fáskrúðugt á heimskautasvæðum? Er það ekki vegna þess að dýrin finna það á sér að hlýindin eru góð?  -  Mikið eru blessuð dýrin skynsöm...

Ágúst H Bjarnason, 22.11.2009 kl. 22:24

4 Smámynd: Emil Hannes Valgeirsson

Hin þægilegi sannleikur er sá að það hefur einmitt hlýnað síðustu 10 ár. Samkvæmt NASA-GISS gagnaröðinni hefur hitinn á jörðinni síðustu 12 mánuði verið 0,55°C yfir meðallagi. Sömu mánuði fyrir 10 árum var meðalhiti á jörðinni: 0,35°C yfir meðallagi. Munurinn þarna er 0,2 gráður á tíu árum sem samsvarar 2,0 gráðu hlýnun á einni öld.

http://data.giss.nasa.gov/gistemp/tabledata/GLB.Ts.txt

Emil Hannes Valgeirsson, 23.11.2009 kl. 00:03

5 Smámynd: Höskuldur Búi Jónsson

Það er allavega ekkert sem bendir til þess að það sé að kólna - í mesta lagi er einhver töf á hlýnuninni - en það er alls ekki ljóst að svo sé (sjá Er jörðin að hlýna? af loftslag.is)

Já dýrin eru skynsöm - enda eru þau víða farin að gera sitt besta að flytja sig til - hér á Norðurhveli í átt til norðurs. Verst er að ef hlýnunin verður of hröð, þá nær stór hluti þessara lífvera ekki að flytja sig um set.

Annað vandamál er þegar mannverurnar þurfa að flytja sig um set, hvað þá? Nú þegar reyna Evrópubúar að stöðva straum flóttamanna frá Afríku - hvað gerist þegar t.d. kínverjar þurfa að flytja sig um set, Rússland gæti lokkað - munu rússar taka því vel ef þeirra "gósenland" fyllist af kínverjum? Kannski? Hvað með Mið og Suður Ameríkubúa - ná víggirðingar bandaríkjamanna að stöðva almennilega fólksflutninga, eða munu þeir sætta sig við aukinn straum loftslagsflóttamanna? Við erum að tala um mjög eldfimt ástand ef hlýnunin heldur áfram. Ég mæli með útvarpsþáttunum sem eru á þessari síðu - Climate Wars

Höskuldur Búi Jónsson, 23.11.2009 kl. 00:05

6 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Emil Hannes, í greininni stendur: ''According to the Hadley figures, the world grew warmer by 0.07 degrees Celsius from 1999 to 2008 and not by the 0.2 degrees Celsius assumed by the United Nations Intergovernmental Panel on Climate Change. And, say the British experts, when their figure is adjusted for two naturally occurring climate phenomena, El Niño and La Niña, the resulting temperature trend is reduced to 0.0 degrees Celsius -- in other words, a standstill.''

Það er greinilegt að einhugur vísindamanna er ekki alveg jafn mikill pg stundum er af látið.

Sigurður Þór Guðjónsson, 23.11.2009 kl. 11:50

7 Smámynd: Ágúst H Bjarnason

0,07°C jafngilda um það bil 10 metrum í hæðarmun. Svona eins og að fara á milli hæða í þrílyftu húsi.  Þetta er hlýnunin sem varð ekki á 10 árum, eða þannig...

Ágúst H Bjarnason, 23.11.2009 kl. 12:18

8 Smámynd: Höskuldur Búi Jónsson

Sigurður: Tengillinn sem Sveinn Atli bendir á, útskýrir þennan mun allþokkalega.

Höskuldur Búi Jónsson, 23.11.2009 kl. 13:01

9 Smámynd: Emil Hannes Valgeirsson

Ég mátti eiginlega til að koma þessu að, því það er hægt að finna út hitamun á mismunandi hátt. Þessar 0,07 gráður eru sennilega „trent“ hækkun á tímabilinu. 0,2 gráður er hinsvegar mismunur á milli tveggja tólf mánuða með 10 ára millibili. Sama hvor talan er notuð þá hefur ótvírætt hlýnað á jörðinni síðustu tíu ár. Ég veit reyndar að ég geri mig sekan um að bera sama La Nina árið 1999 og El Ninjo árið 2009 og samskonar samanburður fyrir ári síðan hefði orðið óhagstæðari þar sem hið ofurhlýja ár 1998 hefði komið inn.

Spurningin er hvernig allir áhrifaþættirnir koma inní, ég hef trú á að Ágúst H. bendi á sólina sem hluta af skýringunni hvers vegna ekki hefur hlýnað meira á tímabilinu.

Emil Hannes Valgeirsson, 23.11.2009 kl. 13:02

10 Smámynd: Sveinn Atli Gunnarsson

Það er smá munur á NASA-GISS gagnasafninu og CRU, sjá t.d. eftirfarandi töflu tekna af vef Veðurstofunnar, [Hætti hlýnun jarðar eftir 1998?]. Þess má einnig geta að í CRU hitaröðina eru svæði t.d. á Norðurskautinu sem ekki eru inní (það eru s.s. eyður í gagnaröðinni), og Norðurskautið hefur hitnað meira en önnur svæði, eins og spár gera ráð fyrir, þ.a.l. kemur sú hlýnun ekki eins fram í CRU hitagögnunum eins og hjá NASA-GISS. Töflunni er óvissan einnig sýnd, þess má geta að sú óvissa er í báðar áttir.

tafla með þremur dálkum

Sveinn Atli Gunnarsson, 23.11.2009 kl. 13:04

11 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Ég mátti líka til með að koma þessari færslu minni að Emil í tilefni af þessari umfjöllun í Der Spiegel. Líka í athugasemdum mínum á Veðurvaktinni. Af ásettu ráði hef ég haft þetta allt með sterkum áráðursblæ eða retórískum blæ. Bara til að fá viðbrögð góðra manna. Og þau hafa heldur ekki látið á sér standa! Ég hef alltaf verið tregur til að standa í svona deilum af ástæðum sem ég skýri kannski seinna frá. Ein skýringin er reyndar bara varfærni. En kannski ég fari að láta meira til mín taka á þessu sviði!

Sigurður Þór Guðjónsson, 23.11.2009 kl. 13:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband