Umskipti í veðrinu

Síðustu tíu daga hefur verið gósentíð á landinu. Meðalhitinn þessa daga er 6,0 stig í Reykjavík og um einni gráðu lægri yfir landið í heild eða svipað og venjan er um miðjan maí eða snemma í október. Meðaltal hámarkshita hvers dags á landinu hefur verið rúm ellefu stig. 

Hvergi er nú alhvít jörð nema í Svartárkoti upp af Bárðardal í meira en 400 metra hæð yfir sjó. Á nokkrum stöðum; Hólsfjöllum, í Fljótum, við Ísafjarðardjúp og í Dölum, er jörð talin flekkótt af snjó.

Annars staðar er talin alauð jörð á veðurstöðvum. 

En nú eru veðurbreytingar framundan. Einar Sveinbjörnsson gerir grein fyrir þeim á bloggsíðu sinni.  Á fimmtudagskvöld fer að kólna með norðanátt og éljagangi norðan til á landinu. Um helgina mun snjóa um allt norður-og austurland. Og þá verður orðið um það bil tíu stigum kaldara á landinu en verið hefur að meðaltali síðustu tíu daga. 

Landið verður alhvítt að minnsta kosti frá Húnaflóa og austur um til suður Austfjarða.

Ekki sjást enn veðurhorfur alveg fram til jóla. En ástandið er þannig að ólíklegt er að nokkuð hlýni nema þá á suðurlandi rétt til að skila af  sér úrkomu. Og vel er mögulegt að þá snjói þar rétt fyrir jólin.

Það þarf ekki að spyrja að því, ef dæma má eftir blogg-og fasbókarsíðum, að stór hluti þjóðarinnar muni fagna þessum umskiptum frá mildu veðri, ef ekki rjómablíðu, yfir í sannkallað vetrartríki sem gæti orðið upphaf langvinnra kuldatíðar. Það sést nefnilega ekki fram yfir þetta kuldaskeið.

Við verðum auðvitað að taka því veðri sem að höndum ber.

En mér finnst það samt bera vitni um hálf frumstætt hugarfar, mótað af glimmeruðum glansmyndum, að menn skuli beinlínis fagna umskiptum frá mildi og góðviðri yfir í sannkallaða vetrartíð, bara af því að jólin eru framundan.

Það eru víst engin jól fyrir mörgum nema þau séu hvít. Ég hef aldrei fundið mig í því. 

Mér finnst jólin alltaf fegurst þegar er nákvæmlega svona veður eins og  nú er  í Reykjavík  á þessari  stundu; nánast logn, fremur bjart yfir, hiti vel yfir frostmarki og marautt.

Það er mitt draumaveður um jólin.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sammála! Þreytandi þessar óskir um ótíð og torfærur, harðindi og jarðbönn.

En, þú veist að Þorbergur dó í landi forheimskunnar.

Guðmundur Brynjólfsson (IP-tala skráð) 15.12.2009 kl. 14:31

2 Smámynd: SeeingRed

Líka mitt draumaveður un jólin, verði marautt sem lengst.

SeeingRed, 15.12.2009 kl. 15:13

3 Smámynd: Emil Hannes Valgeirsson

Mitt frumstæða hugarfar biður um logn og dúnmjúkan 20 cm jafnfallinn snjó eins og í jólakúlu á aðfangadag. Skafrenningur má vera hina dagana.

Emil Hannes Valgeirsson, 15.12.2009 kl. 16:58

4 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Innilega sammála þér Sigurður um jólaveðrið. Megi allur íslenskur jólasnjór bráðna í víti. Jólasnjónum fylgir alltaf svo margt annað sem ekki er eins gott. Hann er samt ágætur á póstkortum.

Sæmundur Bjarnason, 15.12.2009 kl. 17:13

5 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Já, jólasnjór er náttúrlega bestur á póstkortum enda er hann þar afar þrálátur. Á þeim eru jólin alltaf hvít  og allir alltaf í jólastuði.

Sigurður Þór Guðjónsson, 15.12.2009 kl. 18:40

6 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Og hér er ég að safna saman jólasnjóandstæðingum. Gerir aðrir betur! En alltaf er einn og einn undavillingur. 

Sigurður Þór Guðjónsson, 15.12.2009 kl. 18:49

7 identicon

Jólakötturinn er mjög mikilvægur

DoctorE (IP-tala skráð) 15.12.2009 kl. 22:25

8 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Kettirnir sem koma frá
kristnihaturssmiðju
með augun fín og augun blá
eru framar miðju.

Sæmundur Bjarnason, 15.12.2009 kl. 23:30

9 Smámynd: Kama Sutra

Jólakötturinn í jólasnjónum: ;)

funny pictures of cats with captions

Kama Sutra, 16.12.2009 kl. 05:27

10 Smámynd: Sigurbjörn Sveinsson

Er þetta nú ekki of langt gengið? Loka fyrir Guð og fella út skynsamlegar athugasemdir annarra um hlýnun jarðar?. Nema þið séuð samferða, Jón Gnarr og þú, um að trúa ekki á Guð en að Guð trúi á ykkur?

Sigurbjörn Sveinsson, 19.12.2009 kl. 00:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband