Metjöfnun í júlíhita í Reykjavík

Hlýjasti júlí sem mćlst hafđi í Reykjavík hingađ til var 1991 en ţá mćldist  međalhitinn 13,03 stig.  Er ţá miđađ viđ átta athuganir á sólarhring á ţriggja klukkustunda fresti. Nú er  júlí  2010 lokiđ og  međalhitinn reynist eftir sams konar reikningi vera 13,03 stig! 

Ţađ eru annars  nokkur tíđindi veđurfarslega í Reykjavík  ađ á eftir hlýjasta júní komi hlýjasti júlí. 

Í fylgiskjalinu er hćgt ađ sjá hitann  í bćnum  eins og hann hefur veriđ á ţriggja tíma fresti allan mánuđinn, ásamt hámarks -og lágmarkshita ţar sem reynt er  ađ skipta  um miđnćtti en ekki kl. 18. Ţessar tölur eru teknar af Gagnatorginu. Dagsmeđaltal hvers dags 1961-1990 er ţarna líka. Vel sést ađ allir dagar hafa veriđ yfir međallagi.  Einnig sést sólskin hvers dags og sú úrkoma sem mćlst hefur  kl. 9  ađ morgni. Auk ţess  er ţarna hitinn á miđnćtti og á hádegi yfir Keflavík í 850 hPa og 500 hPa hćđum (um 1400-1500 m og um 5,5, km). Langtímameđalhitinn ţarna uppi í júlí er um 3 stig og -20 stig. Ţá sést svokölluđ ţykkt milli yfirborđs og 500 hPa flatarins  í dekametrum. Ţví  meiri sem hún er ţví betri skilyrđi eru fyrir hlýindum en ekki er alltaf víst ađ ţađ nýtist til hins ýtrasta viđ jörđ. Loks er  hámarks-og lágmarkshiti hvers dags á landinu á láglendi eđa í byggđ.  En Hveravellir fá ţó ađ vera međ ef ţar varđ einhvern tíma kaldast, svona  upp á gamlar minningar.

Undarlegur er mađur. Ţegar ég sá ţokuna í nótt vissi ég ađ ţessi júlí myndi ekki setja neitt afgerandi met. Og ţá missti ég eiginlega áhugann fyrir honum og varđ fyrir vonbrigđum, fannst ţetta leiđinlegur og ómerkilegur júlí í alla stađi. Hefđi metiđ  aldrei veriđ innan seilingar,  hitinn undir lokin veriđ t.d. kringum 12,5 stig hefđi mađur veriđ fyllilega sáttur og ánćgđur međ frábćran júlí.

En mánuđurinn klúđrađi sem sagt öllu á lokasprettinum ekki síđur en strákararnir okkar gera svo ansi oft. 

Ekki kemur nú annađ til mála en ađ reka veđurţjálfaran samstundis međ skömm! 

Hér er gömul bloggfćrsla ţar sem í fylgiskjali má sjá ađra hlýjustu júlímánuđi í Reykjavík. Reyndar vantar ţar júlí í fyrra.

Smávćgilegar villur í innslćtti í fylgiskjalinu hafa nú veriđ leiréttar.  


Skrár tengdar ţessari bloggfćrslu:

« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 identicon

Gaman ađ ţessu. Ţađ er ekki ofsögum sagt ađ óvenjulega góđviđrasamt hefur veriđ í Reykjavík síđustu ár. Fátt heyrist af láréttri rigningu og rosa. Viđ norđlendingar samfögnum reykvíkingum vitandi ađ ţegar allt kemur til alls er ekkert sem jafnast á viđ raunverulega norđlenska blíđu.

Áskell Örn Kárason (IP-tala skráđ) 30.7.2010 kl. 10:08

2 Smámynd: Halldór Egill Guđnason

Vil benda á ađ í Mosfellsbćnum er einnig gott ađ vera og hér er fylgst međ hitatölum af meiri spenningi en heimsmeistarasparkinu í Afríku. Get ekki betur séđ en metiđ falli, ef fer sem horfir yfir helgina.

Halldór Egill Guđnason, 30.7.2010 kl. 18:59

3 Smámynd: Emil Hannes Valgeirsson

Nú er um ađ gera ađ halda sig ţar sem atburđirnir gerast.

Emil Hannes Valgeirsson, 30.7.2010 kl. 20:20

4 Smámynd: Sigurbjörn Sveinsson

Ţiđ Mali og Ingólfur A. kunniđ svo sannarlega ađ velja ykkur bústađ.

Sigurbjörn Sveinsson, 30.7.2010 kl. 21:22

5 identicon

Já hann marđi ţađ blessađur, og núna bíđum viđ bara eftir 14 stiga júlí.

En ég var eins og ţú orđin svartsýnn í gćr ţegar ţokuskömmin dró metiđ niđur en ţađ hafđist ţó.

Ekkert heyrist samt enn frá Veđurstofunni, ţar eru menn ekki ađ flýta sér um of.

En takk fyrir frábćrt veđurblogg Sigurđur, ég fylgist alltaf spenntur međ öllum veđra öfgum í flestum löndum, er langtum skemmtilegra en allt Íţróttasprikliđ sem ríđur stundum ýmsum miđlum á slig.

Núna er td, um 40 stiga hiti í Rússíá og um 44 stiga hiti á Sýrlandi,

 og 13 stig í Scoresbysundi , semsagt allt ađ gerast í veđrinu.

En er á leiđinni uppá Keili ađ taka veđriđ.

Kveđja;Valur.

Valur Norđdahl (IP-tala skráđ) 1.8.2010 kl. 13:40

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband