Óvenjuleg sólskinstíð

Það fór lítið fyrir sólinni í Reykjavík í dag. Það er samt engin ástæða til vanþakklætis. Öðru nær. Í gær lauk sex daga sólskinsskeiði þar sem sólin skein alla dagana í tíu klukkustundir eða meira. Það er ótrúlegt en samt satt að aldrei hefur það gerst síðan sólskinsmælingar hófust í Reykjavík árið 1923 að jafn margir dagar í röð hafi komið með tíu stunda sólskini í september. Það sýnir líka glögglega hvað Ísland er nú lítið sólarland. 

Þessi sólskinstíð var því kærkomnari að henni fylgdi engin kuldi eins og oft er þegar sólin skín í höfuðstaðnum í september. Það var alveg frostlaust um nætur og bara fremur hlýtt á daginn. Fjöldi sólarstunda í Reykjavík er reynar farinn að nálgast meðallag alls mánaðarins þó hann sé aðeins hálfnaður.

Þetta er munaður og sannarlega sjaldgæfur munaður.

Mánaðarhitinn er nú kominn upp í meðallagið aftur á Akureyri en er næstum því hálfu öðru stigi yfir því í Reykjavik. Og framundan eru hlýindi.

Hver veit nema skaflinn í Gunnlaugsskarði í Esjunni hverfi þá eftir allt saman áður en haustið gengur alveg í garð.

Fylgiskjalið fylgist áfram með hita, sól og úrkomu.   


Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Er ekki skaflinn horfinn í Gunnlaugsskarði? Annars eru teikn á lofti, þrátt fyrir hlýjindi næstu daga. Síðasti hluti september og byrjun október verða einhverjir þeir undarlegastu sem um getur og jafnvel svo undarlegir að elstu menn muna ekki neitt, enda flestir löngu farnir eitthvað annað.

Halldór Egill Guðnason, 19.9.2011 kl. 03:57

2 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Skaflinn í Gunnlaugsskarði var mjög greinilegur út um eldhúsgluggann minn í gær.

Sigurður Þór Guðjónsson, 19.9.2011 kl. 12:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband