11.12.2011 | 17:43
Köldustu desembermánuðir
1880 (-7,3) Veturinn 1880-1881 er harðasti vetur sem komið hefur á Íslandi síðan einhvers konar veðurathuganir með mælitækjum hófust fyrir um það bil tvö hundruð árum. Desember og mars voru þeir köldustu sem komið hafa en janúar og febrúar þeir næst köldustu.
Desember var kringum tveimur stigum kaldari en sá næst kaldasti og um það bil sjö stigum undir meðaltalinu 1961-1990 sem er -0,6 stig. Mikil hæð var oft yfir Grænlandi og jafnvel suður um Ísland en lágur þrýstingur austan við landið og yfir Norðurlöndum eins og kortið um yfirborðsþrýsting sýnir. Í háloftunum var hæðarhryggur um Grænland sem veitti köldu lofti yfir landið. Hlýtt var hins vegar í Evrópu. Fyrstu tvo dagana í desember var norðanátt en dagarnir 3.-5. voru þeir hlýjustu í mánuðinum og rigndi sunnanlands og vestan. Mesti hiti mánaðarins, 8,3 stig, mældist þá í Reykjavík og Vestmannaeyjum. Aðfaranótt hins 10. gerði vestan fárvirði á suðvesturlandi. Fréttir frá Íslandi lýstu því svo: ,,Bryggjur og skíðgarðar sópuðust á burt úr Hafnarfirði og Reykjavík, skip og báta tók víða í loft upp, og sló þeim niður aftur mölbrotnum; brotnuðu í veðri þessu eigi færri en 7 sexæringar í Minni-Vogum, 6 ferjur á Akranesi og mörg skip á Álftanesi og víðar. Á Vatnsleysuströnd tók upp þiljubát, sem var í smíðum, og bar veðrið hann um 300 faðma yfir grjótgarða og skíðgarða, svo að hann kom hvergi við, en mölbraut hann síðan, er niður kom. Heyskaðar urðu nokkrir á Suðurlandi, einkum fyrir austan fjall, og sama var að segja af Vestfjörðum; þar höfðu víða hjallar fokið með munum og matvælum og varð ei eftir af það er sæist. Eigi gjörði veður þetta mikið tjón á skepnum, því að svo vel vildi til, að veðrið skall á að nóttu til, svo að fénaður var byrgður. Veður þetta varð allmikið á Norðurlandi en gjörði þar eigi skaða, svo að orð sé á gjöranda.''
Kortið sýnir meðaltal loftþrýsitngs í paskölum en ef við sleppum síðustu tveimur núllunum fáum við út heila hektópaskala, 1015 yfir miðju Íslandi. Kuldarnir byrjuðu fyrir alvöru 12. desember. Ekki hlánaði eftir það í Stykkishólmi og Grímsey fyrr en á gamlársdag en ekki allan mánuðinn á Teigarhorni. Var áttin milli austurs og norðurs allan tímann og oft hvasst. Blaðið Fróði á Akureyri segir þ. 22. að þar hafi þá snjóað hvern dag það sem af var mánaðarins. Kalt var um jólin, frostið fór niður í 21,1 stig á jóladag í Stykkishólmi. Eftir jólin var mjög vont veður á landinu, hávaða norðanrok með hríðarveðri nyrðra og frostið 10 til 20 stig. Mest frost í mánuðinum mældist reyndar þann 18. -23,4 stig á Valþjófsstað í Fljótsdal. Ekki var mælt á Grímsstöðum eða Möðrudal á þessum tíma. Og heldur ekki á Akureyri. Snjókoma var víða. Þann. 27. komst frostið í Reykjavík niður í -18,4 stig og er það mesta frost sem mælst hefur þar í desember. Um þetta leyti fór frostið í Vestmannaeyjakaupstað niður í -17,8 stig sem er mesti kuldi sem þar hefur komið í desember. Í Hreppunum kom líka desembermet, -21,6 stig á Hrepphólum. Á norðurlandi voru mikil frost, allt að -30 stig að sögn blaðanna. Voru hafþök af ís fyrir öllu norðurlandi. Á Akureyri gerði þriðja í jóum norðan stórhríð svo svarta að tæpast var fært húsa á milli og stóð hún í tvö dægur. Á gamlársdag hlýnaði loksins með sunnanátt og var þá rigning á suður- og vesturlandi. Jónas Jónassen lýsti tíðarfarinu í Reykjavík í desember í Ísafold 16. janúar 1881:
Þar sem allur fyrri hluti þessa mánaðar var fremur frostlítill, hefir allur síðari hluti hans (frá 13.) verið einhver hinn kaldasti, er elztu menn muna, því ekki einungis hefir frostharkan verið geysi-mikil, heldur hefir hin kalda norðanátt haldizt óvenjulega lengi. Aptur á móti hefir snjór fallið mjög lítill. Fyrstu 2 dagana var veður stilt og bjart, en 3. hvasst á austan með blindbyl, en logn að kveldi með nokkurri rigningu; og 5. hægur á landsunnan með rigningu ; 6. hægur úts. að morgni, en bráðhvass að kveldi og sama veður 2 næstu dagana, en þó vægari með hryðjum ; 9. hvass á landuorðan meðbyl að morgni, gekk svo til eptir miðjan dag og fór að hvessa á útsunnan og varð úr því fjarskalegt ofsaveður, sem hélzt við allt kveldið og næstu nótt fram til morgunsins 10., að hann lygndi, og var þann dag hægur útsynningur með slettingsbyl um kveldið, 11. og 12. aptur hvass á úts. gekk svo 13. í norðanátt til djúpanna, en hér í bænum var þann dag og eins 14. og 15. hæg austangola; 16. landnyrðingur, hvesti er á leið daginn og var bráðviðri á norðan til djúpanna og frá 17.-30. einlægt norðanbál með grimdarhörku; einkum var veðurhæðin mikil 27. og 28. og lagði sjóinn, svo að menn hinn 30. gengu eigi að eins út í Aknrey, Engey og Viðey heldur og npp á Kjalarnes. Ofangreinda daga 17.-30.) var hér í bænum opt logn, þótt norðanrok væri inn að eyjum, 31. breyttist aptur veðurátta, er hann gekk til landsuðurs með talsverðri rigningu, en að kveldi dags var hann aptur genginn í útsuður með miklum brimhroða.
Úrkoma var svo lítil að þetta er hugsanlega einn af fimm þurrustu desembermánuðum.
1878 (-5,2) Þessi mánuður, sem ansi lítið hefur verið í umræðunni", er eigi að síður nokkuð merkilegur. Aldrei hefur mánaðarloftþrýstingur verið jafn hár í desember á landinu síðan byrjað var að mæla hann kringum 1820. Í Stykkishólmi var hann 1020,3 hPa. Nóvember, næsti mánuður á undan, var svo með mestan loftþrýsting fyrir þann mánuð, 1019,6 hPa í Hólminum. Gætti þessa háa þrýstings um allt norðurskautið en mest fyrir suðvestan land. Þrýsstingur var aftur á móti mjög lágur suður í Atlantshafi á þeim slóðum sem Azoeyjarhæðin er venjulega. Eitthvað mjög óvenjulegt hefur verið að gerast á þessum tíma. Geysileg hálloftahæð var yfir suðaustanverðu Grænlandi. Sjá frávikakortið um hæð 500 hPa flatarins í um 5 km hæð. Og þetta var enda þurrasti desember sem mælst hefur ef dæma má eftir þeim tveimur stöðvum sem þá athuguðu og athuga enn og þessi desember er einnig sá næst kaldasti eftir 1865. Úrkoman á Teigarhorni var sú minnsta sem þar hefur mælst i desember, 1,8 mm, en féll þó á þremur dögum. Í Stykkishólmi var úrkoman 12,7 mm og úrkomudagar voru 11, fyrstu tíu dagarnir og svo að morgni aðfangadags. Frá þeim 18. sást varla ský á himni í Stykkishólmi nema hvað þykknaði upp á Þorláksmessu með suðaustanátt og snjóaði ofurlítið en aftur létti til að kvöldi jóladags. Þann dag var að mestu logn og lítið skýjað til kvölds en frostið var 7-8 stig. Þrír desembermánuðir hafa þar verið þurrari í Stykkishólmi, 7,0 mm 1872, 8,7 mm 1952 og 11,7 mm 1882. Í Grímsey voru fjórir úrkomudagar laust eftir miðjan mánuð en annars var alveg þurrt. Hitinn fór mest í 6,8 stig í Stykkishólmi þ. 2, en frostið í -17,1 stig á Skagaströnd, mjög líklega á gamlársdag. En þessar hitatölur segja ekki mikið því aðeins var mælt á átta stöðvum og engum sem eru verulega kuldavænar. Fyrstu vikuna var stundum lítilsháttar hláka en annars voru frostin svo til linnulaus og lágmarkshiti frá þeim 17. flesta daga undir -10 stigum í Stykkishólmi. Norðaustan og austanátt var yfirgnæfandi eftir fyrstu vikuna. En vindar voru oftast hægir og þótti tíðin hagstæð. Gamlársdagurinn var æði kaldur með 16 stiga frosti í Grímsey og 15 í Stykkishólmi. Fyrir norðurlandi varð vart við hafíshroða nálægt jólum en hann hörfaði aftur frá um nýárið. Hlýtt var á vestur Grænlandi sem var hlýindamegin við háloftahæðina en kalt á Norðurlöndum og víðast hvar í Evrópu. Einnig var mög kalt í næstum því öllum Bandaríkjunum.
Reykjanesvitinn, fyrsti viti á Íslandi, var tekinn í notkun fyrsta dag mánaðarins.
1973 (-4,2) Kaldasti desember á landinu síðan 1886 en hitinn þá var svipaður. Þetta er sem sagt kaldasti desember sem núlifandi Íslendingar hafa kynnst ef eigin raun. Var hann samt talsvert mildari en þeir tveir mánuðir sem taldir hafa verið hér að framan, sem skera sig nokkuð úr fyrir kulda sakir. Mánuðurinn var ekki aðeins kaldur heldur einnig umhleypingasamur. Mjög snjóþungt var fyrir norðan. Að morgni gamlársdags var snjódýptin 153 cm á Raufarhöfn og Hornbjargsvita. Á Raufarhöfn er þetta reyndar úskomumesti desember, 168,6 mm (1934-2008). Snjólag á landinu var það mesta nokkru sinni í desember, 88%, ásamt desember 1936. Alhvítt var alla daga í Grímsey, Torfufelli í Eyjafjarðardal, Vöglum i Fnjóskadal, Sandhaugum í Bárðardal, Dalatanga og Kvískerjum, auk hálendisstöðvanna á Hveravöllum og Sandbúðum. Á Skógum undir Eyjafjöllum voru alauðir dagar tíu. Reyndar byrjaði mánuðurinn með hlýindum. Aðfaranótt þess þriðja komst hitinn í 16 stig bæði á Dalatanga á austfjörðum og Galtarvita á vestfjörðum. En eftir fyrstu tíu dagana voru ekki hlákur að heitið geti. Suma dagana var frostgrimmdin með allra mesta móti. Í Reykjavík var meðalhitinn þ. 17. og 18. -12,7 stig og hefur aðeins einn desemberdagur (-14,1 þ. 28. 1961) verið kaldari a.m.k. síðustu 75. Kaldast á landinu varð þ. 21. -27,5 stig í Reykjahlíð og sama dag -25,4 á Brú á Jökuldal. Þann dag var bjart um land allt. Á Akureyri komu dagshita með mesta kulda þrjá daga í röð, 22.-24, -sautján og átján stiga frost. Ýmsir aðrir dagar voru mjög kaldir á landinu, t.d. komst frostið á Hveravöllum í -26,9 stig þ. 18. og -26,0 á Grímsstöðum þ. 22. Á Breiðafirði var svo mikill langaðarís að menn gátu allvíða gengið milli eyja á tímabili. Í þessum kuldum tók Reykjavíkurhöfn að leggja, sjaldan því vant. Kortið sýnir þykktina yfir landinu sem var æði lág en lág þykkt ber vitni um kalt loft. Meðalhiti á landinu er á kortinu hér fyrir neðan. Desember 1880 var að meðaltali þremur stigum kaldari!
Ýmislegt gekk nú á í heiminum í þessum mánuði. Þann 17. drápu arabískir hryðjuverkamenn 31 mann í þýskri flugvél í Rómaborg. Daginn eftir skemmdist Stjönubíó rétt einu sinni af eldi þ. 18. Sorglegra var þó að þ. 22. fórust hjón og tvö börn í bruna á Seyðisfirði. Stórsöngvarinn Bobby Darin lést þ. 20.
1886 (-4,1) Kalt var þennan mánuð en hitastig fremur jafnt og kalt en þó engin stórkostleg kuldaköst. Varla hlánaði þó að ráði á landinu þar til daginn fyrir gamlársdag. Fyrstu vikuna voru miklir umhleypingar. Þeir snérust svo í hvassa norðanátt en síðan hægari austanátt og var þá oft bjart suðvestanlands en loks komu frekari umhleypingar. Seint í mánuðinum snjóaði við og við í Reykjavík og var þar talsverður snjór á jörð í mánaðarlok. Enginn desember í Reykjavík hefur eins lágt mánaðarhámark í hita, aðeins 2,4 stig sem mældist á gamlársdag. Sama dag mældist mesti hiti á landinu, 7,7 stig í Vestmannaeyjum. Kaldast varð upp úr miðjum mánuði og fór frostið þá í -25,1 stig í Möðrudal. Jólin voru æði köld, átta til tíu stiga frost í Reykjavík á jóladag en fór í þrettán stig næstu nótt. Oft snjóaði í mánuðinum í öllum landshlutum. Mikill snjór var í Skaftafellssýslum að sögn Þjóðólfs á aðfangadag. Þann 20. fórust þrír menn í snjóflóði í Önundarfirði og einn maður daginn eftir í Glerárdal. Úrkoman í heild var aðeins um helmingur meðalúrkomu. Hæð var oftast yfir Grænlandi en lægðir milli Íslands og Noregs. Kuldatunga lá norðan úr höfum yfir Ísland. Jónassen lýsti tíðinni í nokkrum blöðum Ísafoldar:
Framan af þessari viku var talsverð óstilling á veðrinu. Optast við Sv. með hryðjum og opt hvass með brimróti; h. 4. var fyrst hæg austanátt, eptir hádegi var kominn blindbylur og að kveldi genginn til útsuðurs (Sv) eptir stutta rigningu af landsuðii (Sa) og farinn að frysta. Aðfaranótt h. 5. bálhvass á útsunnan me3 miklum brimhroða, gekk svo til norðanáttar h. 6. med hægð og hreinviðri með talsverðu frosti. Í dag 7. hægur austan-kaldí i morgun, dimmur ; eptir bádegi bjartur, landnorðan (na) hægur. Lítill snjór á jörðu. Í fyrra var hjer þessa dagana mikill gaddur ; h. 7. þ. m. 1 fyrra var hjer -12 (aðfaranótt hins 7.) og -10 um hádegi; logn og fagurt veður. (8. des.) - Framan af þessari viku var talsverðnr kuldi og var hvasst noróanveður til djúpa, þótt lyngt væri hjer. Seinni part vikunnar hefir verið hæg austanátt og frostlitið, opiast bjart og heiðskírt veður. Í dag 14. fegursta veður, logn. (15. des.) - Fyrsta dag vikunnar var hjer logn, þangað til að hann gekk til norðurs síðari part dags h. 16 var hvass um tíma. en gekk strax ofan og varð úr því austanátt með nokkurri ofanhríð ; gekk síðan til útsuðurs (Sv) með brimhroða og byljum h. 20. eptir að hann hafði verið á landsunnan litla stund með talsverðn rigningu. Hjer fjell nokkur snjór um kveldið h. 19. sem að mestu leyti er horfinn. Í dag 21. vestan úts. hroði, hvass í jeljunum. Um síðustu jól var frostlaust veður hjer og alveg auð jörö; aðfangadaginn var húðarigning á austan ; jóladaginn logn og fagurt veður. (22. des.) - Þessa vikuna hefir verið hægð á veðri, optast við norðanátt, hæga. eða austanátt; stundum rjett að kalla logn; miðvikudaginn h. 22. fjell hjer nokkur snjór og síðan hefir við og við snjóað, svo hjer er nú sem stendur talsverður snjór á jörðu, viðlíka mikill og í fyrra um þetta leyti. Í dag 28. logn og fagurt veður. (29. des.) - Fyrstu daga vikunnar var sunnnátt með rigningu; síðan gekk hann til útsuðurs (sv), hægur með talsverðri snjókomu; h. 3. kom norðanrátt, þó eigi mjög hvöss, og helzt hún við enn; síðasta dag umliðins árs gerði hjer aftakaveður af suðri; var hjer varla stætt húsa á milli um kl. 6-7 gamalárskvöld; veðrið gekk ofan nokkru fyrir miðnætti, og gekk þá til útsuðurs. Í dag (4.) norðan, nokkuð hvass, dimmur upp yfir. Snjór hjer nú talsverður. (5. jan. 1887).
1887 (-3,9) Þessi desember var örlítið mildari í heild en árið áður. Enginn desember hefur þó verið eins kaldur á Möðrudal, -11,5 stig, en athuganir þar hafa verið nokkuð stopular í áranna rás. Er þetta lægsti meðalhiti sem mælst hefur á íslenskri veðurstöð í byggð í desember. Norðlægar áttir voru auðvitað algengar en það kom bæði nokkur hlákukafli og óvenju hart kuldakast í stað jafnari kulda eins og voru 1886. Fyrstu dagana voru norðankuldar en þó ekki afskaplegir. Suðvestanlands var stundum útsynningur með éljum. Gríðarlegt kuldakast um allt land stóð hins vegar yfir dagana 7. til 11. Mesta frost mældist -28,2 stig í Möðrudal en -22,0 á Borðeyri, -22,4 á Blönduósi, -20,4 á Akureyri, -23,3 á Núpufelli í Eyjafjarðardal, -21,2 Raufarhöfn, -21,4 á Stórinúpi -22,1 á Eyrarbakki og -20,9 stig á Teigarhorni. Er þetta með mestu kuldum sem komið hafa í desember. Aldrei hefur mælst meira frost í þeim mánuði á Blönduósi, Raufarhöfn og Teigarhorni. Eftir kuldakastið mildaðist mikið og syðst á landinu var frostlaust dagana 13.-16. en loks hlánaði almennilega með suðvestanátt þ. 21. og stóð í viku. Milt var því um jólin og rigningar. Úrkoma að morgni aðfangadags var 12,2 mm í Reykjavík. Snjór var lítill í bænum þennan mánuð. Hæsti hiti mánaðarins, 7,2 stig, mældist á öðrum degi jóla í Grímsey en á jóladag voru 6,2 stig á Teigarhorni. Síðustu vikuna var mjög stillt veður en vægt frost. Úrkoman var um þrír fjórðu af meðalúrkomu en á Teigarhorni var hún þó meiri en í meðallagi. Á Eyrarbakka hefur hins vegar aldrei mælst jafn lítil úrkoma í desember, 15,6 mm. Kalt var um alla Evrópu en sérstaklega á norðanverðum Norðurlöndum. Jónassen skrifaði um veðurfar mánaðarins í nokkrum blöðum Ísafoldar:
Talsverð ókyrrð hefir veríð á veðri þessa vikuna; hann hefir snúizt úr einni átt í aðra á sama sólarhringnum; við og við hefir hann verið við norðanátt. 4. var hjer hvasst austanveður og dreif þá niður talsverðan snjó; 5. hægur á norðan dimmur, og í dag 6. hvass á norðan og bjartur í lopti. (7. des.) - Framan af þessari viku var optast veðurátt við norður, hæg hjer, hvass til djúpa, með miklu frosti, gekk síðan til austurs, rokhvass síðari part dags 12. Síðan við hæga austanátt og í dag 13. frostlaust veður hægt á austan. Snjór hefir eigi fallið hjer nema að morgni h. 10., er hann gerði austanbyl um tíma. (14. des.) - Optast hefir verið hægð mikil a veðri hina umliðna viku ; síðari partinn var hann.við norðanátt en hæga ; í dag 20. logn, dimmur i lopti og snjó-. ýringur úr honum öðru hvoru. (21. des.) - Alla viðuna hefir verið blæja logn og allan fyrri partinn þokumugga dag og nótt og við og við nokkur rigning; siðustu dagana hefir verið hið fegursta og bjartasta veður með vægu frosti. Hjer er svo að kalla auð jörð. Í dag 27. blæja logn og heiðskírt lopt. Í sjónum talsverð harka. (28. des.) - Þokumuggan og lognið, sem var hjer alla fyrri vikuna, hjelzt við 3 dagana framan af þessari viku ; að morgni h. 31. gekk hann til norðurs og gjörði brátt ákaflegt norðanrok, sem hefir haldizt til aðfaranóttar h. 3. er hann gekk til austur-landnorðurs hjer innfjarðar (hvass enn á norðan til djúpa). Sjóharkan mikil og er nú sem stendur íshroði út á miðja skipalegu. Jörð hjer svo að kalla alauð. (4. jan. 1888).
Þann 28. hélt Bríet Bjarnhérðinsdóttir fyrirlestur í Góðtemplarahúsinu og var það fyrsti opinberi fyrirlestur sem kona hélt hér á landi. Óperan Óþello eftir Verdi var frumflutt þann annan í Napólí.
1909 (-3,6) Fyrir sunnan var tíð talin hagstæð en fyrir norðan snjóaði allmikið. Fyrstu vikuna var norðanátt með snjókomu og kulda fyrir norðan. Hæð var þá yfir Grænlandi en víðáttumikil lægðasvæði fyrir austan land. Þann 9. fórust tveir menn í snjóflóði í Skriðuvíkurgili milli Njarðvíkur og Borgarfjarðar eystra. Nokkru fyrr urðu skemmdir á símalínum á austurlandi vegna snjóflóða. Það brá til suðaustanáttar þann 11. með mikilli úrkomu á austfjörðum og síðan til sunnanáttar með talsverðum hlýindum. Komst hitinn í 13,3 stig á Seyðisfirði þ. 13. en daginn eftir í 10 stig á Teigarhorni og daginn þar á eftir einnig í 10 stig í Vestmannaeyjum. Vindur snérist til norðvestanáttar þ. 16 og síðan til norðanáttar sem hélst að mestu næstum því til mánaðarloka. Var þá aftur hæð yfir Grænlandi en lægðir við Noreg. Eftir þann 16. hlánaði ekki víðast hvar fyrr en þ. 29. nema sunnarlega á landinu. Syðra snjóaði á jóladag. Kaldast varð -27,0 stig í Möðrudal og -26,4 Grímsstöðum. Á Akureyri fór frostið í tuttugu stig. Úrkoman var minni en þrír fjórðu af meðalúrkomu og tiltölulega minnst á suðurlandi.
Tónskáldið Gústav Mahler lauk í þessum mánuði við verk sitt Das Lied von der Erde (Ljóð jarðar) fyrir einsöngvara og hljómsveit.
1917 (-3,6) Á Vestfjörðum er þetta kaldasti desember sem þar hefur mælst, frá 1898, -6,3 stig á Bolungarvíkursvæðinu, hálfu öðru stigi kaldara en 1973. Loftþrýstingur mánaðarins var 1016,2 hPa í Stykkishólmi og í desember hefur hann aðeins verið hærri árið 1878. Þessi mánuður var kannski eins konar upptaktur fyrir frostaveturinn mikla 1918. Hann er sjálfur sjöundi kaldasti desember eftir 1865 og í honum mældist mesta frost sem mælst hefur á landinu í desember og einnig mesti loftþrýstingur. Það var 1054,0 hPa í Stykkishólmi að morgni þess sextánda. Þá var þar logn og léttskýjað en -18 stiga frost. Á sama tíma var stíf norðanátt og 15 stiga frost á Teigarhorni í léttskýjuðu veðri. Á Akureyri mældist frostið daginn eftir -22,0 stig sem er desembermet en á Möðruvöllum í Hörgárdal var frostið -22,3 stig. Ekki voru lágmarksmælingar í Reykjavík en Vísir segir þann 17. að frostið þar hafi komist í 19 stig í bænum, 22 á Vífilsstöðum en yfir 20 stig á Kleppi. Hæð hafði byggst yfir Grænlandi í nokkra daga með norðanátt á Íslandi og síðan teygt sig til Íslands. Hæðin varð samt mjög skammlíf því strax þ. 17. fór lægð norðaustur um Grænlandssund og varð þá víða frostlaust. Mánuðurinn hófst raunar með norðanátt og stórhríð fyrir norðan en síðan skiptust á austan eða norðanátt, litlar suðvestanhlákur og breytilegt veður þar til hæðin mikla lét til sín taka. Inni í þessu gerðist það, í kjölfar norðanáttar í lok fyrstu viku mánaðarins, að minniháttar hæðarhryggur byggðist upp yfir landinu. Þann 9. var komið logn á hálendinu norðaustanlands og bjart um tíma og um kvöldið mældist í Möðrudal mesta frost sem mælst hefur á Íslandi í desember, -34,5 stig en -30,0 á Grímsstöðum. Ekki stóð þessi kuldi lengi því daginn eftir hlánaði síðdegis á Fjöllunum í austanátt og snjókomu sem var drjúg þennan mánuð fyrir norðan. Í Húnavatns-og Skagafjarðarsýslum var sagður meiri snjór en menn mundu, að sögn Vísis 14. desember. Eftir stóru hæðabóluna þ. 16. varð hrunið óhjákvæmilegt og voru nokkrir umhleypingar til jóla. Á jólunum sjálfum var hins vegar suðvestan hláka um land allt á láglendi. Komst hitinn í 10,2 stig á Teigarhorni bæði á jóladag og gamlársdag. Ísafold skrifar þ 29.: ,,Með jólunum gerði mikla hláku, sem haldist hefir óslitin að heita má síðan, til mikillar hagsældar, jafnt búand sem bæjarmönnum og er hlákan sögð ná um land allt.'' Vísir sagði að rauð jól hafi verið í höfuðstaðnum og grennd. Víðast um landið var orðið snjólaust eða snjólitið um áramót ef marka má dagblöðin. Hafís var talsverður fyrir norðurlandi þennan mánuð og t.d. var mikill ís á Ísafjarðardjúpi í árslok en ísinn teygði sig alveg að Melrakkasléttu. Hálofthæð var suðvestur af landinu í þessum mánuði og vestanvindar algengastir á landinu við jörð.
Finnar lýstu yfir sjálfstæði þ. 8. frá Rússum en þ. 16. sömdu Rússar frið við Þjóðverja. Í Nýja biói var verið að sýna fyrstu kvikmyndina sem var með íslenskum texta.
1916 (-3,3) Norðaustan eða norðanátt var næstum því einráð í þessum mánuði en dagana 4. -5. var þó sunnan og suðvestanátt með vægum hlýindum. Komst hitinn í 8,6 stig á Seyðisfirði þ. 5. Þann dag rigndi hressilega í Vestmannaeyjum og mældist þar úrkoman 39 mm næsta morgun. Hæð var alla jafna yfir Grænlandi en lægðasvæði milli Íslands og Skotlands. Mildast var á suðausturlandi þar sem skemmst var í mildara loft en kaldast á Vestfjörðum. Úrkoma á landinu var þó minni en hálf meðalúrkoma í mánuðinum og sérstaklega var hún lítil sunnanlands og vestan. Ekki voru úrkomumælingar í Reykjavík en á Vífilsstöðum voru aðeins fjórir úrkomudagar. Hins vegar var úrkoman vel yfir meðallagi allmargra ára á þessu skeiði á Möðruvöllum í Hörgárdal, 80 mm. Í Vestmannaeyjum var oft bjart yfir og úrkoman var er sú þriðja minnsta í desember. Sólskinsstundir voru þó einungis 8 á Vífilsstöðum. Sérlega kalt var dagana 9. til. 12. og aftur 20. til 22. Ofsarok var í Reykjavík þann 11. Síðdegis þ. 19. fór að hvessa meira í norðanáttinni en verið hafði og var víða hvasst næstu daga með hríðarveðri. Frostið í Möðrudal fór í -22,0 stig en á Grímsstöðum í 19,0 stig þ. 21. Þar snjóaði eitthvað alla daga mánaðarins. Í árslok voru stillur í höfuðstaðnum.
Framsóknaraflokkurinn var stofnaður þ. 16. Átökunum við Verdun, einhveri alræmdusta orustu allra tíma, lauk þ. 18. og rússneski munkurinn Rasputin var myrtur þ. 30.
1906 (-3,1) Úrkoma í Reykjavík var 113 mm sem er drjúgt yfir meðallagi. Annars staðar var hún kringum meðalag en þó vel undir því á Teigarhorni. Stór hluti úrkomunar í Reykjavík féll á aðeins tveimur dögum, 31 mm þ. 21. og 33 mm daginn eftir. Hitinn fór þann sjötta í 10,8 stig á Seyðisfirði en 7,5 í Reykjavík. Æði var umhleypingasamt en oftast svalt eða kalt nema í fyrstu vikunni og fimm daga upp úr miðjum mánuðinum. Víða var fremur snjólítið. Mikill snjór var þó á Seyðisfirði fyrstu dagana, segir Ísafold þann 6. Og um miðjan mánuðinn (15.) kvartaði blaðið um hvassviðri síðustu vikuna í Reykjavík og sagði að snjór væri töluverður. Á Þorláksmessu skall á mikið kuldakast sem stóð sums staðar til mánaðarloka. Jólin og áramótin voru því ansi köld með hríðarveðri fyrir norðan. Fór frostið í -30,0 í Möðrudal og -21 stig á Holti í Önundarfirði en -20 í Hreppunum. ,,Alhvít jól og eftir því köld. Hvassvirði af ýmsum áttum'', segir Ísafold þann 29. Í Skagafirði og víðar fyrir norðan var mikill snjór, segir Austri á gamlársdag. Jónassen var nú kominn yfir á Þjóðólf og lýsti veðurfarinu í Reykjavík 4. janúar 1907:
Í þessum mánuði hefur verið óvenjul. kalt og snjór mikill á jörðu, Austan-gola um tíma framan af,svo logn og síðan optast útsynningur. Loptþyngdarmælir komst óvenjul. hátt, 782,3 millim. [1043 hPa]; hefur eigi komist svo hátt í mörg ár, var þá norðanátt, nokkuð hvass um tíma.
Austan-landnorðan að morgni h. 30., ofanhríð eptir hádegi og nokkuð hvass á norðan um kveldið; hægur 4 austan fyrri part dags h. 1., en gekk svo í útsuður með bleytusletting um kveldið og aðfaranótt h. 2. bálhvass 4 útsunnan með svörtum jeljum; gekk svo allt í einu til norðurs síðari part dags, rokhvass með blindbil; var svo bálhvass með ofanhríð að morgni h. 3. og hjelzt norðanveðrið með talsverðu frosti þar til hann lygndi síðari part dags h. 5. Má síðan heita að hafl verið logn. Í morgun (7.) svört þoka. (7. des.) - Hinn 7. var hjer logn með þoku; fór að snjóa síðast um kvöldið; svo logn og dimmur h. 8. með ofanhríð um kveldið. Hægur á landsunnan h. 9. með rigningu. Í morgun (10.) austan koldimmur með regni. (10. des) - Dimmur með regni að morgni h. 10. en gekk svo síðari part dags til norðurs með ofanhríð; bjartur h. 11. en hægur á norðan og sama veður h. 12. en 13. hvass á norðan með blindbyl allan fyrri part dags, koldimmur; lygndi svo rjett allt í einn um kl. 2-3 og birti upp og ýrði regn úr lopti um tíma, logn um kvöldið. Í morgun (14.) hægur á austan (ísing). (14. des) - Hægur á austan hinn 14.; rjett logn og hjart veður h. 15. þar til síðast um kveldið að gjörði hæga ofanhríð; aðfaranótt h. 16. varð snöggvast mjög kalt en var um það frostlaust um fótaferðatíma og blindbilur af austrí og stytti eigi upp fyrr en eptir miðjan dag og gekk til norðurs síðast um kveldið með vægu frosti. Í morgun (17.) hægur, dimmur, ofanhríð. (17. des.) - Hinn 17. landnorðan, hægur; hinn 18. hvass á norðan með ofanhríð en lygndi um kvöldið; logn og bjart veður h. 19., hæg austangola um kvöldið; hvass á austan og dimmur með ofanhríð um tíma h. 20. Í morgun (21.) austanátt, dimmur. Um þetta leyti í fyrra gengu hjer miklar rigningar af landsuðri, opt rokhvass; hjer var þá lítið föl á jörðu (fjell að aðfaranótt h. 19. af útsuðri). (21. des.) - Undanfarna daga hefir verið hæg austanátt með þíðu, svo snjó hefir tekið mikið. Í morguu (24.) sama veður, þíðvindi af austri, hægur. (24. des.) -Austanátt með þíðu, hefir rignt talsvert með köflum, svo að snjór er að hverfa. Í morgun (28.) landsynningur með rigningu, dimmur mjög 6 stiga hiti kl. 9 f. h. (28. des.) - Bezta veður undanfarna daga, optast austanátt, opt með regnskúrum, svo hjer er nú við það auð jörð. (4. jan. 1893)
Í þessum svala mánuði voru svokölluð Skúlamál í algleymingi. Þau snérust um Skúla Thoroddsen sýslumann á Ísafirði en Lárus H. Bjarnason var settur honum til höfuðs vegna einkennilegs máls sem upp kom vegna manndráps. En í raun voru þetta pólitískar ofsóknir á hendur Skúla sem loks var a fullu sýknaður fyrir rétti af hvers kyns embættisglöpum. Í St. Péturborg var ballettinn Hnotubrjóturinn eftir Tjækovski frumfluttur þ. 18.
Fyrir 1866 má finna nokkra mjög kalda desembermánuði. Í desember 1824 var meðalhitinn reiknaður -6,7 stig í Reykjavík. Það mun þá vera næst kaldasti desember sem mælst hefur þar. Kom hann á eftir kaldasta október og kaldasta nóvember sem hægt er að finna. Mjög snjóþungt var.
Árin 1856 og 1859 var meðalhitinn í Stykkishólmi og einnig á Akureyri svipaður og 1973. Desember 1805 var áþekkur að kulda. En árin 1809, 1810 og 1811 var desember kaldari á Akureyri en í nokkrum öðrum mældum desembermánuðum þar með meðalhita upp á -8,3 stig árið 1809 en -7,6 stig bæði hin árin. Frost voru oft mikil þessa mánuði á Akureyri, stundum yfir -20 stig, og mest -25,4 stig þ. 30. árið 1809. Þessir mánuðir virðast samt hafa verið hlýrri en desember 1880. Hann er kuldakóngurinn.
Trausti Jónsson: Upplýsingar um desember 1917; Frostaveturinn mikli 1880-1881, Náttúrufræðingurinn 1, 1977; Jón Helgason: Árbækur Reykjavíkur, Leiftur, Reykjavík, 1936; Suðurnesjaanáll Sigurðar B. Sívertsen, Rauðskinna III; Almanak hins Íslenska Þjóðvinafélags.
Í fylgiskjalinu má sjá meðalhita stöðvanna níu sem landsmeðaltalið er hér miðað við í öllum þeim mánuðum sem hér er minnst á og ýmislegt fleira. Seinna fylgiskjalið sýnir hins vegar kuldann í Reykjvik í desember 1880. Og hann var ekki fyrir neinar nútíma veimiltítur!
Meginflokkur: Hlýustu og köldustu mánuðir | Aukaflokkar: Bloggar, Veðurfar | Breytt 17.12.2011 kl. 20:17 | Facebook
Færsluflokkar
- Allt í plati
- Blogg
- Bloggar
- Bækur
- Efnisyfirlit um veður
- Ég
- Guð sé oss næstur
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Hlýustu og köldustu mánuðir
- Íslensk veðurmet
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Mali
- Mannlífið
- Mánaðarvöktun veðurs
- Menning og listir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Veðurfar
- Veður í annálum og öðrum gömlum heimildum
- Veður um allan heim
- Vísindi og fræði
Tenglar
Blogg
Ýmsir vefir
- Gjósandi eldfjöll
- Kantötur Bachs
- Schubert
- Stjörnuskoðun
- Nótnasafnið
- Torfusamtökin
- Lilta-Ávík
- Blogggáttin
- Doctor E
Blogg
Síður
- Sólarminnstu júlímánuðir
- Þíðukaflar að vetrarlagi í Reykjavík
- Jóla og áramótaveðrið frá 1880
- Sólrík sumur og sólarsnauð
- Sólskin á Íslandi
- Hámarkshiti á landinu um verslunarmannahelgina frá 1949 og veðrið í Reykjavík
- Slær júlí hitamet í Reykjavík
- Óvenju hlý júlíbyrjun
- Nokkrir kaldir janúarmánuðir og kuldadagar
- Hret og snjóar í ágúst
- [ Fleiri fastar síður ]
Eldri færslur
- Desember 2024
- Mars 2023
- Ágúst 2019
- Desember 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Desember 2017
- Júlí 2017
- Maí 2017
- Febrúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- September 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
Athugasemdir
Það verður fróðlegt að sjá hvernig núverandi desember kemur út í þessum samanburði. Desember 1973 má fara að vara sig.
Emil Hannes Valgeirsson, 12.12.2011 kl. 01:23
Já, það verður fróðlegt ef þessu heldur áfram sem allar líkur eru til. En kaldur má hann vera ef hann ætlar að koma ársmeðaltalinu niður fyrir 5 stig í Reykjavík.
Sigurður Þór Guðjónsson, 12.12.2011 kl. 10:40
Já, hvaða áhrif er þetta kuldakast að hafa á ársmeðaltalið?
Hvernig er útlitið að þínu mati Sigurður?
Höskuldur Búi Jónsson, 12.12.2011 kl. 12:47
já, 'Hvernig er útlitið að þínu mati Sigurður bróðir?'
Eru kolefnispokaprestarnir farnir að skjálfa í hnjáliðunum? Durban hvað?
Hilmar Þór Hafsteinsson (IP-tala skráð) 12.12.2011 kl. 14:47
Hilmar - hefurðu eitthvað til málanna að leggja?
Þetta er réttmæt og skiljanleg spurning hjá Höska og það þarf ekkert að misskilja hana í sjálfu sér. Ég tel nú ekki að hægt sé að flokka Sigurð í hóp okkar "kolefnisprestanna"...ef svo má að orði komast. Ef ég skil hann rétt, þá vill hann helst ekki vera bendlaður við skoðanir okkar Höska (sem eru þó byggðar á vísindalegri þekkingu).
Hitt er svo annað mál að Höski er að spyrja spurningar varðandi hitastig á Íslandi, sem er ekki það sama og hnattrænn hitastig - en fróðlegt samt og alltaf gaman að lesa vangaveltur Sigurðar um þau mál, þó hann sé nú ekki alltaf sammála okkar eigin vangaveltum varðandi loftslagsmálin...
Sveinn Atli Gunnarsson, 12.12.2011 kl. 16:03
Sveinn Atli Gunnarsson, 12.12.2011 kl. 16:03: Sæll félagi. Já, ég þykist nú reyndar hafa ýmislegt til þessara mála að leggja. Bendi ykkur í því sambandi vinsamlegast á bloggið mitt sem ætti reyndar að vera skyldulesning hjá ykkur félögum. Það er svo auðvitað visst áhyggjuefni fyrir ykkur ef desembermánuður 2011 reynist slá flest, ef ekki öll, kuldamet síðustu 100 ára. Eitthvað hlýtur það að segja ykkur, er það ekki? Er ekki að kólna dálítið?
Hilmar Þór Hafsteinsson (IP-tala skráð) 12.12.2011 kl. 16:46
Allt útlit er fyrir að hlýnun jarðar springi á limminu með þessum desember!! En svo má líka segja að meðalhitinn í Reykjavík sé í lok nóvember 1,3 stig yfir meðallaginu 1961-1990 en verði hitinn í nákvæmu meðallagi í desember, -0,3°, verður árshitinn 1,2° yfir meðallagi. Verði meðalhitin í des hins vegar sá sami og 1973 verður árshitinn 0,9 stig yfir meðallagi, en verði desemberhitinn eins og hann hefur kaldastur orðið, -7,0°, verður ársmeðalhitinn eigi að síður 0,6 stig yfir meðallaginu 1961-1990 og fer þá niður í 4,9°, eiginlega alveg sama ársmeðalhita og var 1931-1960.
Allir ættu því að geta vel við unað hvernig sem þetta fer!
Sigurður Þór Guðjónsson, 12.12.2011 kl. 16:57
Takk fyrir það Sigurður.
Höskuldur Búi Jónsson, 12.12.2011 kl. 17:48
Höskuldur Búi Jónsson, 12.12.2011 kl. 17:48: Einmitt, Höski minn! Eigum við ekki frekar að þakka náttúrunni fyrir að leiðrétta bullið í ykkur? Nýjustu fréttir herma að meðalhiti hafi staðið í stað á jörðinni sl. 10 ár - og nú er greinilega byrjað að kólna. Er ekki rétt að agentera fyrir upptöku H2O-skatts (þ.e. í föstu formi)?
Hilmar Þór Hafsteinsson (IP-tala skráð) 12.12.2011 kl. 17:56
Hin manngerða loftslagsbreyting samanborin við hina náttúrulegu
Höskuldur Búi Jónsson, 12.12.2011 kl. 18:11
Hilmar:
Staðreyndin er sú að hitastig hefur verið að hækka á undanförnum árum og áratugum, og til að mynda eru 2005 og 2010 þau heitustu síðan mælingar hófust samkvæmt tölum frá NASA GISS - og önnur gagnasöfn segja svipaða sögu.
Endurtekning rangfærslna varðandi kólnun er eitt af því sem þeir sem afneita vísindum gera og það truflar umræðuna. Rangfærslur verða ekki réttari þó þær séu endurteknar 100 sinnum.
Hitt er svo annað mál (eins og áður hefur komið fram) er að kuldakast um vetur á Íslandi breytir ekki hnattræna hitastiginu sem nokkru nemur...en er þó áhugavert í sjálfu sér - havð sem öðru líður.
Sveinn Atli Gunnarsson, 12.12.2011 kl. 18:13
Ágætu félagar Höski og Svatli. Vinsamlegast kíkið á glænýjar upplýsingar um raunverulega stöðu hnatthlýnunarinnar ykkar. Meðalhitastig hefur staðið í stað síðustu 10 ár - og nú er sannarlega byrjað að kólna.
Elementary, my dear Watson...
Hilmar Þór Hafsteinsson (IP-tala skráð) 12.12.2011 kl. 18:47
Að efast um BEST
Höskuldur Búi Jónsson, 12.12.2011 kl. 19:19
Óvenju kaldur vetur framundan:
http://notrickszone.com/2011/09/06/another-cold-central-european-winter-early-forecasts-show/
http://notrickszone.com/2011/10/13/global-warming-bringing-avalanche-of-bitter-cold-winter-forecasts/
http://www.c3headlines.com/2011/07/the-southern-hemisphere-it-has-not-warmed-in-over-15-years-another-brutal-winter-happens.html
http://reasonabledoubtclimate.wordpress.com/2011/07/21/global-warming-winter-2011/
http://unofficialnetworks.com/winter-weather-forecast-20112012-extreme-winter-parts-31096/
... en svo geta kolefnispokaprestarnir auðvitað haldið áfram að efast um að jörðin sé að kólna.
Hilmar Þór Hafsteinsson (IP-tala skráð) 12.12.2011 kl. 20:24
Vel að merkja: Hefur enginn neitt að segja um efni pistilsins og þeirra 23ja sem á undan honum hafa farið um hlýjustu og köldustu mánuði? Má vera níð! Allt er skárra en þetta endalausa kolefniskjaftæði hve nær sem minnst er á veðurfar.
Sigurður Þór Guðjónsson, 12.12.2011 kl. 20:36
Fyrirgefðu Sigurður - það var ekki meiningin hjá mér að stela athugasemdunum, en einhverra hluta vegna þurfti Hilmar að draga mig inn í eitthvað slíkt, eins og þú sérð kannski :)
Höskuldur Búi Jónsson, 12.12.2011 kl. 20:57
Ég hef nú reynt að koma efni pistilsins að, en Hilmar virðist ætla að kaffæra okkur með rangfærslum, sem eru í sjálfu sér ekki svara verðar... En svona virðast hinar svokölluð "efasemdir" oft stela athyglinni með endalausum rökleysum - það væri nú fínt ef fleiri en við "kolefnisprestarnir" myndum sjá rökleysur manna eins og Hilmars...
Hitt er svo annað mál að mér þykir þetta kuldakast sem er í gangi á Íslandi athyglivert. Það er svo sem ekkert nýtt í því að það komi kuldaköst og þau munu halda áfram að dúkka upp, hvað sem líður "kolefniskjaftæði" eða öðru því kjaftæði sem má láta sér detta í hug í hvert og eitt skiptið...enda er það gott dæmi um veður og það meira að segja áhugavert veður.
Spurning hvort við eigum að reyna að halda með mánuðinum eins og stundum hefur verið í gangi hér í þau fjölmörgu skipti sem hitametin hafa verið í hættu..? Reyndar tel ég ekki að metið sé í mikilli hættu, en hvað um það, hægt að vera með smá hvatningu fyrir því ;)
Sveinn Atli Gunnarsson, 12.12.2011 kl. 21:17
Sigurður Þór Guðjónsson, 12.12.2011 kl. 20:36: Gæti ekki verið meira sammála þér Sigurður um 'kolefniskjaftæðið'.
Eins og þú sérð glögglega þá er þessi athugasemdastuldur alfarið Svatla og Höska að kenna, enda kolbikasvartir kolamolar báðir tveir.
Hilmar Þór Hafsteinsson (IP-tala skráð) 12.12.2011 kl. 22:29
Þú ert nú svo sem engill heldur Hilmar Þór! En þú hefur samt greinilega heilmikinn húmor. Mér finnst bara svo einkennilegt - og leiðinlegt- að athugasemdir um skrif um veðurfar fara svo oft út í almennar deilur um gróðurhúsaáhrifin og hlýnun jarðar þó efni viðkomandi færslu sé alls ekki um það. Hef vikið að þessu áður.
Sigurður Þór Guðjónsson, 12.12.2011 kl. 23:44
Vá hvað það er ljóst að það er sama hvað kemur frá mér (og Sveini Atla) - það erum alltaf við sem eigum stærstan hlutinn í því að draga umræðuna yfir í loftslagsumræðuna að þínu mati.
Ég t.d. margreyndi að forðast að fara yfir í þessa umræðu og lét loks tilleiðast eftir að Hilmar beindi spjótum sérstaklega að mér og setti þá bara inn tengla sem sérstaklega svöruðu ruglinu í honum.
En það er greinilega ekki sama hver er.
Höskuldur Búi Jónsson, 13.12.2011 kl. 07:57
Eins og þessi síða ber með sér finnst mér gaman að skrifa um veðurfar sem þegar er orðið en ekki það sem eftir á að koma eins og breytingar á veðurfari jarðar. Ég hef engar forsendur til að sjá fram í tímann. En það hefur lítið verið um athugasemdir. Það er bara staðreynd t.d. að um mánaðarpislana eru næstum því engar athugasemdir. Og ég stend alveg við það sem ég hef áður sagt að varla er hægt að tala um veðurfar án þess að menn virði alveg að vettugi þar sem um var verið að skrifa en einbeiti sér að því sem ekki var verið um að skrifa: lofslagsmálunum svonefndu. Og ég sagði einu sinni, sem er auðvitað nokkrar ýkjur en ekki mjög miklar, að loftslagsumræðan væri að drepa allar aðrar umræður um veðurfar.
Mér finnst það leiðinlegt vegna þess að ég hef ánægju af skynsamlegum umræðum um veðurfar og þær eru alltaf áhugaverðar og ég hef t.d. saknað athugasemda og ábendinga um mánaðarpistlana.
Við þetta stend ég og hreinlega áretta það. Það er ekki meiningin að móðga nein en ég get ekki látið vera að koma þessari ábendingu á framfæri.
Reyndar nefndi ég hér aðeins eitt nafn í athugasemdinni að ofan. Og getiði hvern: Svatla, Höska? Ó, nei. Þða var Hilmar Þór Hafsteinsson. Athugasemdir hans eru því miður sjaldnast í tenglsum við það sem verið er að skrifa um heldur einblína á loftslagsumræðuna með þeim fornerkjum sem hann setur fyrir hana. Hann er eiginlega með hana á heilanum eins og fleiri og getur ekki séð minnst á veður án þess að koma skoðunum sínum á henni þar að.
Ég ætla svo ekki að deila um þetta frekar við neinn. En ég árétta enn einu sinni að mér finnst leriðinlegt að svo sé komið að nánast (ekki alveg samt) sé ekki hægt að skrifa lengur eða blogga um veðurfar án þess að menn hundsi efnislega það sem verið er að skrifa um en helli sér í loftslagsumræðuna, hvort jörðin sé að hlýna af mannavöldum eða ekki.
Það er það sem ég vil hér koma á framfæri.
Love and Peace.
Sigurður Þór Guðjónsson, 13.12.2011 kl. 12:43
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.