Lítum á björtu hliðarnar

Íslendingar töpuðu 5:0 í landsleik gegn Svíum. Svona fer okkur sífellt fram. Einu sinni var það 14:2. Nú er það bara 5:0.

Við skulum svo líta enn frekar á björtu hliðarnar. Nýlega náði liðið glæsilegu jafntefli við feikna grimmt lið frá ofurríkinu Frankenstein þó ætla mætti að við algjört ofurefli hafi verið að etja.  

Við eigum þó auðvitað fyrst og fremst að leika við jafningja okkar. Og nú stendur víst til að næsti leikur liðsins verði við Páfagarð þar sem búa fáeinir andlegir og líkamlegir geldingar. Sagt er að sjálfur páfinn muni leika í liðinu og verði klettur í vörninni eins og embætti hans gefur vissulega tilefni til. 

Og þá er að duga eða drepast ef Íslendingar vilja komast áfram í flokk hinna útvöldu í knattspyrnunni.  


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Valur Jensson

Hér var antisportistinn aldeilis í essinu sínu !

En ósómi hjá þér að kalla Páfagarðsmenn "andlega geldinga".

Jón Valur Jensson, 7.6.2007 kl. 00:53

2 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Ég vissi það! En þetta er bara í stíl við hitt sem hér er bullað í þessari færslu. Þorsteinn Gylfason var alltaf með það öll álit frá páfagarði væru svo óvenjulega klár og vel hugsuð hvort sem menn væru sammála þeim eða ekki. Og ég trúi því alveg. Og í rauninni er ég heldur ekki neinn antisportisti. Ég bara læt svona! Ég hlakka t.d. að fylgjast með gullmótunum. Þú tekur lífið full alvarlega Jón Valur!

Sigurður Þór Guðjónsson, 7.6.2007 kl. 01:03

3 Smámynd: Guðríður Pétursdóttir

Guðríður Pétursdóttir, 7.6.2007 kl. 07:26

4 Smámynd: Svavar Alfreð Jónsson

Vatican United er sýnd veiði en ekki gefin. Var ekki fyrrum páfi þjóðkunnur markvörður í Póllandi? Þetta er alveg rétt hjá þér, Sigurður. Það er annaðhvort að deyja eða drepast.

Svavar Alfreð Jónsson, 7.6.2007 kl. 09:20

5 Smámynd: Jón Valur Jensson

Jæja, þið gerið að gamni ykkar -- allt í góðu með það, enda grunaði mig þetta í aðra röndina.

Jón Valur Jensson, 7.6.2007 kl. 10:26

6 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

 

Já, auðvitað Jón Valur. Ég dáist að þreki þínu og elju að halda uppi rökræðum á þnni síðu. En ég finn mig ekki í því á mínu bloggi því mér finnst það svo lýjandi. Mér finnst meira gaman að leika mér í bland við smá alvöru. Hver hefur sinn háttinn á. En auðvitað má maður ekki fara yfir strikið í leiknum. 

Svavar: Vatican United er áreiðanlega ekki til að spauga með! Sérlega ánægjulegt að fá prest hér á síðuna. Vonandi koma þeir bara sem flestir.

Sigurður Þór Guðjónsson, 7.6.2007 kl. 11:20

7 Smámynd: Heiða B. Heiðars

Nei Vatican United er sko ekkert spaug! Hugsið ykkur bara leikmennina sem þeir hefðu efni á að kaupa!! Og algerlega án þess að verða varir við að seilst hafi verið í pyngjuna

Heiða B. Heiðars, 7.6.2007 kl. 17:30

8 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Og allir yrðu hafnir í dýrlingatölu þegar þeir burstuðu íslensku heiðingjanna!   

Sigurður Þór Guðjónsson, 7.6.2007 kl. 18:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband