Færsluflokkur: Bloggar
23.5.2015 | 14:44
Vorkuldi og forlagatrú
Það er synd að segja að vori vel. Meðalhitinn í Reykjavík er nú 3,8 stig eða 1,9 stig undir meðallaginu 1961-1990 en 2,6 stig undir meðallagi þessarar gósenaldar. Á Akureyri er meðalhitinn 2,0 stig eða 1,2 stig undir meðallaginu 1961-1990.
Ekki hefur verið kaldara fyrstu 22 tvo dagana í maí síðan 1979 sem á kuldametið fyrir þá daga síðan Veðurstofan var stofnuð 1920, 0,7 stig. Kaldara var líka í hafísamaímánuðinum mikla 1968, 3,6 stig og sama í maí 1949, en 1943 var hitinn þessa daga um 2,9 stig. Líklega var einnig kaldara 1920 þegar hitinn var eitthvað i kringum 3,3, stig þessa daga en svipað 1924 en dagshitinn fyrir þessi síðast töldu ár er ekki eins öruggur og hin árin.
Þetta eru sem sagt einhverjir köldustu maídagar það sem af er síðan 1920. Ástand gróðurs er að minnsta kosti hálfum mánuði á eftir meðallagi syðra, hvað þá annars staðar.
Sólskinsstndir eru nú orðnar 232,2 í Reykjavík og hafa fyrstu 22 dagana í maí aðeins orðið fleiri árið 1967, 238,2 klst, og 1958, 250,5 stundir. Maí 1958 var þegar upp var staðið sá sólríkasti sem mælst hefur í Reykjavik og 1967 sá þriðji sólríkasti en voru að öðru leyti hinir ógæfulegustu. Næst sólríkasti maí í sögunni í Reykjavík var 2005 og var hann sá kaldasti á okkar öld!
Þó nú virðist mikil tíska á netmiðlum að gera ráð fyrir því að það veður sem ríkt hefur í maí haldi bara út allt sumarið nokkurn veginn í sama stíl er það í hæsta máta ólíklegt og er sú forlagatrú öll hin undarlegasta.
En ef það gerist nú eigi að síður mætti kalla síðasta sumar hreina sælutíð í samanburði. Búast má samt við því að forlagatrúarmennirnir skynji svo sem engan mun enda er nú sagt á æðstu stöðum að þjóðin skynji ekki lengur veruleikann eins og hann er heldur lifi í einhverri dularfullri fantasíu!
14.5.2015 | 20:02
Fyrstu tíu stigin í Reykjavík
Í dag fór hitinn í 10,0 stig í Reykjavík. Þar eru það fyrstu tíu stigin á árinu og reyndar frá 21. nóvember í fyrra. Mesti hiti á landinu varð 12.2 stig á Staðarhóli i Aðaldal og mesti hitinn í gær á landinu var líka 12,2, stig.
Þetta er góð breyting frá þeim kulda sem ríkt hefur en eru í sjálfu sér varla nein hlýindi miðað við árstíma. Það er nú einu sinni kominn 14. maí. Sá dagur er eini dagurinn sem Reykjavík er með dagshitametið yfir allt landið, 20,6 stig og þetta er líka að meðalhita hlýjasti maídagur þar í sögu mælinga.
Um þessa alvöru hitabylgju má lesa um hér í gamalli bloggfærslu.
En nú eru líka 60 ár frá einhverju mesta kuldakasti sem komið hefur um miðjan maí, 1955. Þann dag var meðalhitnn í Reykjavík -1,3 stig og hefur þar ekki orðið lægri þennan dag á síðari áratugum.
Veðráttan getur verið býsna breytileg.
En sumarið er sem sagt að sækja nokkuð í sig veðrið þessa dagana þó maður finnist að það mætti vel gera betur.
Bloggar | Breytt 22.5.2015 kl. 13:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
12.5.2015 | 19:58
Loksins tíu stiga hiti á landinu
Í dag mældist hitinn mestur á landinu 10,9 stig á Árnesi, 10,5 á Þingvöllum, 10,1 á Húsafelli og Kálfhóli og 10,0 stig í Stafholtsey. Síðasttalda mælingin er á kvikasilfursmæli á mannaðri stöð en allar hinar eru frá sjálfvirkum veðurstöðvum. Þetta er í fyrsta sinn í mánuðinum sem hiti fer einhvers staðar í tíu stig eða meira.
Og var kominn tími til.
Þrátt fyrir sólina var ekki hægt að hrópa húrra fyrir hitanum í Reykjavík sem þar varð mestur í dag aðeins 5,8 stig. Meðalhitinn í borginni eftir gærdaginn er einungis 1,8 stig og frá stofnun Veðurstofunnar 1920 hefur ekki verið kaldara fyrstu ellefu dagana í maí nema 1982 (1,6°), 1979 (-0,7°!) og 1943 (um 0,4 stig). Eftir fyrstu 11 dagana í maí 1924 var hitinn líklega svipaður og núna en dagameðaltöl liggja ekki á lausu.
Sólin hefur skinið í 144,2 stundir í höfuðborginni og aldrei meira fyrstu ellefu maídagana frá því mælingar hófust. Í 19 maímánuðum hefur mælst minna sólskin allan mánuðinn í Reykjavík en það sem af er þessum, síðast í maí 2008!
Á Akureyri er meðalhitinn enn undir frostmarki,-0,3 stig, og sömu sögu er að segja af flestum stöðvum á norður og austurlandi. Þar er hitinn einfaldlega enn undir frostmarki.
Reyndar er meðalhitinn í uppsveitum suðurlands og vesturlands, þrátt fyrir sólskinið litlu skárri, aðeins um frostmark.
Þar er þó enginn snjór en það er samt ekki hægt að segja að nokkuð vor sé þar í lofti, hingað til, eins og fjölmiðlar tala þó um dag eftir dag, samkvæmt því furðulega veðurskyni að sólskin sé eini mælikvarðinn á veður. Það sé bara sumar og sól ef sólin skín glatt um hádaginn þrátt fyrir mikilð næturfrost og sólahringsmeðaltöl sem rétt merja að vera yfir frotmarki.
Það sem af er maí er sem sagt með kaldasta móti alls staðar. Það er ekki hægt að segja að vor sé syðra en vetur fyrir norðan og austan.
Það hefur bara alls staðar verið vetur, marslegt hitafar, en í norðanátt snjóar ekki á suðurlandi.
En nú fer þetta víst að lagast.
Bloggar | Breytt 14.5.2015 kl. 14:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.5.2015 | 19:10
Metsólskin í Reykjavík í kuldanum
Þessi maí byrjar að vísu ekki með látum en meira sólskini í Reykjavík en dæmi eru um áður fyrstu dagana í maímánuði síðan sólskinsmælingar hófust þar fyrir um 90 árum. Sólarstundirnar eru nú orðnar næst flestar sem mælst hafa fyrstu fimm dagana, 74,3 en voru 76, árið 1931. Eftir daginn í dag munu sólskinsstundirnar liklega slá út fyrstu fimm maídagana 1931, ef við reiknum með 15 stundum, og munu þá slá út fyrstu sex dagana í maí 1924 og 1931 sem sólríkustu fyrstu sex dagarnir í maí í Reykjavík í sögu mælinga.
Í fyrradag mældist meira sólskin í höfuðborginni en nokkru sinni hefur mælst þennan dag, 16,0 stundir og þann þriðja var metjöfnun fyrir þann dag, líka 16,0 klukkustundir af sólskini.
Hitanum er þó ekki fyrir að fara. Meðalhitinn í Reykjavík er 2,3 stig undir meðallaginu úrelta 1961-1990 en 3,0 stig undir meðallagi þessarar aldar. Það er alls ekki einsdæmi en vel samt í sjaldgæfara lagi
Á Akureyri er meðalhitinn -0,1 stig, þrjú stig undir meðallaginu 1961-1990. Meðalhitinn er undir frostmarki alveg frá Skagafirði austur og suður um til sunnanverða austfjarða.
Viðbót 7.maí kl. 19. Sólarstundir í gær, þ. 6., í Reykjavík voru 16,1 klst og hafa aldrei mælst fleiri 6. maí. Og þar með er það staðfest að fyrstu sex dagarnir í maí eru þeir sólríkustu í mælingasögunni, 90,4 stundir en gamla metið var 85,2 í maí 1924. Í dag, þ. 7. má gera ráð fyrir að sólskinsstundirnar verði 15-16 og á morgun verður þá komið sólskinsmet fyrir fyrstu 7 dagana í maí. Þetta er því óneitanlega einstök sólskinstíð. En meðalhitinn það sem af er mánaðarins hefur enn lækkað, bæði í Reykjavík og á Akureyri enda var gærdagurinn sá næst kaldasti á landinu sem komið hefur í þessum maí. Ekki bætir svo dagurinn í dag úr skák. Þó dagurinn sé ekki búinn er hann með minnsta hámarkshita þessa daga í maí bæði á landinu og í Reykjavík og meðalhitinn verður ekki til að hrópa húrra fyrir.
Bloggar | Breytt 12.5.2015 kl. 19:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
28.4.2015 | 12:53
"Kuldaskeið"
Ef maður les netmiðla, það er að segja fréttamiðla á netinu, blogg og fasbók, er alveg sláandi að svo virðist sem fjöldi manns, kannski flestir, standi í þeirri trú að nýtt "kuldaskeið" sé framundan. Og muni standa í nokkra áratugi.
Nú er það staðreynd að á þessari öld hafa verið svo mikil hlýindi að þess eru engin dæmi í samfellt jafn mörg ár. Fyrstu 14 ár þessarar aldar eru um 0,8 stigum hlýrri á landinu hvað ársmeðalhita snertir en síðustu 14 ár 20. aldar, vetarhitinn um 1,1 stigi en sumarhitinn um 0,7 stigum hlýrri. Og það er varla raunhæft að vænta þess að hlýindi af slíkri stærðargráðu haldi áfram af sama krafti alveg von úr viti. Einhver kólnun virðist óumflýajanleg en fall úr allra hæstu hæðum er ekki það sama og kuldatíð.
Af 20 hlýjustu árum á landinu sem hafa mælst alla mælingasöguna hafa 8 verið á okkar öld, þeirra á meðal þau tvö allra hlýjustu og var árið í fyrra annað þeirra! Varla sterkur fyrirboði kuldaskeiðs! Kaldasta árið á þessari öld á landinu, 2005, var hlýrra en öll ár 1987-2000 nema tvö en eitt var svipað.
Séu þessi 14 ár okkar aldar hins vegar borin saman við það langtímameðaltal hita sem enn er miðað við, 1961-1990, er munurinn á ársmeðalhita meiri en heilt stig, svo ótrúlegt sem það hljómar. Öll 30 árin á því skeiði voru kaldari en 2005 nema fimm. En vitaskuld ber þess þá að gæta að þarna eru 14 ár borin saman við 30. Þetta sýnir samt hve mikil hlýindi við búum nú við og hvers konar hitafar er sterkast í minni og upplifun fólks.
Í ljósi þeirra óvenjulegu hlýinda sem ríkt hafa á þessari öld má svo spyrja hvers konar ástand beri að kalla "kuldakskeið" þó eitthvað kólni frá þeim methlýindum. Ef næstu 14 ár væru t.d. að ársmeðalhita 0,4 stigum kaldari en það sem af er á þessari öld, væru þau samt sambærileg við hlýindaskeiðið 1931-1960. Væri þá hægt að kalla það raunverulegt "kuldaskeið"? Að mínu að vísu takmarkaða viti ber að tala fremur gætilega og af varakárni í alvöru umræðum um veðurfarsbreytingar. Jafnvel orðin sjálf sem notuð eru geta verið varasöm eða jafnvel villandi.
Svo má líka deila um það hvenær núverandi hlýindaskeið hófst, sumir segja 1996, aðrir vilja miða við upphaf okkar aldar en frá þeim tíma hafa til dæmis ÖLL árin í Reykjavik náð meira en fimm stigum í meðalhita og þar með verið hlýrri en árin voru þar að meðaltali á hlýindaskeiðinu 1931-1960 nema árið 2013 sem var í þó alveg í því meðallagi. Að teygja núverandi hlýndaskeið aftur um 25 ár eins og gert er þarna í yfirliti Morgunblaðsins (í blaðinu sjálfu) finnst mér nokkuð langsótt þó þá væri tekið að mildast frá því kuldaskeiði 20. aldar sem hófst með hafísárunum.
Já, "kuldaskeiðið". Eins og ég gat um áðan er engu líkara af netmiðlum en að margir standi í þeirri trú að það SÉ framundan. Eins og það sé bara óhjákvæmilega framtíðin.
Ástæðan er sú að einn ágætur veðurfræðingur og aðeins einn hefur boðað nýtt "kuldaskeið" sem muni vara í ein 30 ár. Þetta hafa fjölmiðlar haft eftir honum hvað eftir annað undanfarið. Ekki hefur þeim samt dottið í hug að leita álits annarra íslenskra veðurfræðinga um þetta atriði. Þetta má því með kalla dálitla kranablaðamennsku, að endurtaka spurningalaust í sífellu eitt sjónarmið og láta sem önnur séu ekki til.
Af þeim kveinstöfum sem margir hafa verið með hástöfum eftir að loksins núna kom vetur í kaldara lagi miðað við þessa öld (þó ekki kaldari en svo að mesta frost vetrarins í Surtsey var -4,9 stig og mældist fyrir fáum dögum!) finnst mér það eiginlega ábyrgðarhluti að fjölmilar séu hvað eftir annað að birta algjörlega einhliða framtíðarsjónarmið um veðurfar og reyni ekki að leita annarra viðhorfa.
Spár eru auðvitað spár en ekki raunveruleiki og menn geta bollalagt um þær í mismikilli alvöru. En með algjörlega einhliða upplýsingum um spár um veðurfar, en reynslan í vetur sýnir sannarlega að veðurfar skiptir fólk miklu máli, má hæglega skapa andrúmsloft, stemningu og væntingar, sem mótar heilt þjóðfélag, ef dæma má eftir þeim glugga sem netmiðlar og aðrir fjölmiðlar eru inn í samfélagið.
Það væri því ekki út í hött að fjölmiðlar spyrðu fleiri en einn íslenskan veðurfræðing hreint út um það hvaða framtíðarsýn þeir hafi um veðurfar næstu ára eða áratuga og þeir færi rök fyrr máli sínu byggð á staðreyndum, gögnum og skynsamlegum líkum. Það yrði mörgum eflaust kærkomið til fróðleiks og pælinga. Og gæti jafnvel hreinlega komið í veg fyrir að þjóðin fari nú alveg af hjörunum af ótta við meint harðindi og hallæri! Íslenskir veðurfræðingar skipta tugum, hver öðrum sprenglærðari og snjallari!
Er það eitthvað tabú eða feimnismál að fram komi í fjölmiðlum fleiri en eitt álit um framtiðarhorfur veðurfars?
Það er varla neitt einhuga samkomulag um þær horfur, sem hægt er að gera að nokkurs konar opinberum sannleika af því ekkert annað kemur fram, nema þá um undirliggjandi almenna hlýnun vegna aukinna gróðurhúsaáhrifa á okkar mjög svo veðurfarslega breytilega landssvæði.
Nýtt kuldaskeið gæti tekið við | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt 3.5.2015 kl. 13:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (19)
26.4.2015 | 19:10
Hlánar ekki í Reykjavík
Í dag fór hámarkshiti í Reykjavík ekki hærra en í -0,9 stig. Hámarkshiti 26. apríl hefur ekki verið lægri þar síðan 1969 en þá var hann -3,9 stig og 1927 þegar hann var -1,3 stig.
Þetta er því ekki beinlínis hversdagslegt en þó eru nokkur dæmi um annað eins um þetta leyti og enn síðar á vori. Þann 29. apríl 1975 var hámarkshitinn -5,3 stig og -3,5 stig 30. apríl 1982. Fyrstu þrjá dagana í maí 1982 hlánaði svo ekki í Reykjavik og ekki tvo fyrstu maídagana 1979. Svo seint sem 7.-9 maí 1943 hlánaði ekki heldur í Reykjavík í hrikalegu kuldakasti. Síðasti dagurinn frma á vorið sem ekki hefur hlánað Reykajvík allan sólarhringinn eftir að Veðurstofan var stofnuð 1920 er hins vegar 10. maí 1955 þegar hitinn fór ekki hærra en -0,3 stig.
Síðast að vori sem ekki hefur hlánað á öllu landinu var 21. apríl árið 1949 þegar frostið varð hvergi minna en 1,5 kuldabolastig. Þann 8.maí 1943 var mesti hiti á landinu, 0,0 stig, lesinn á mæli kl 17 í Grindavík en hvegi hlánaði á veðurstöðvum þann dag þar sem voru hámmarkshitamælingar sem ekki voru Grindavík.
Víða á landinu hefur ekki hlánað í nokkra daga í þessu kuldakasti núna.
Sólarhringsmeðaltalið í kulda í Reykjavík þessa köldu daga hefur ekki verið í hættu.
Slæmt er það en gæti verið verra!
Bloggar | Breytt 14.5.2015 kl. 14:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.4.2015 | 12:50
Snjór eykst í sumarbyrjun
Snjólítið var á landinu síðasta vetrardag eftir nokkuð löng hlýindi. Á suður og vesturlandi mátti heita alveg snjólaust á snjóathugunarstöðvum og einnig víðast hvar á austurlandi og víða um norðurland. Jörð var flekkótt víða á vestfjörðum, kringum Tröllaskaga, í hálendisbyggðum á norðausturlandi og á stöku öðrum stöðum. Hvergi var alhvítt nema ef til vil í Súgandafirði (þaðan bárust ekki upplýsingar)og svo í Vaglaskógi þar sem mældist mest snjódýpt á landinu, 51 cm.
Í gær, sumardaginn fyrsta, var hins vegar orðið alhvítt allvíða á norðurlandi,við Ísafjarðardjúp og reyndar einnig í Breiðdal fyrir austan.
Í morgun hefði enn bætt við snjóinn. Þá var orðið alhvítt víðast hvar á norðurlandi, nema í hálendisbyggðum þar sem áfram var flekkótt jörð af snjó og sömuleiðis var alhvítt frá Vopnafirði suður til Seyðisfjarðar, á Ströndum, sums staðar við Ísafjarðardjúp og alveg suður í Dali. Snjódýptin í Vaglaskógi var kominn upp í 72 cm og var sem fyrr sú mesta á landinu. Flekkótt jörð var á sunnanverðu Snæfellsnesi og á Mýrum en annars staðar má heita snjólaust á suður og vesturlandi og sunnanverðum austfjörðum.
Meðalhitinn það sem af er mánaðar féll í gær í Reykjavík um 0,2 stig á einum degi. Sumardeginum fyrsta!
En sólin skein í gær í tólf og hálfa klukkustund! Frostið í nótt var -3,3 stig í Reykajvík en -7,4 stig í Svartárkoti. Á hádegi í dag var alls staðar frost nema með suðaustur og suðurströndinni, frá Berufriði og vestur um til Reykjavíkur þar sem hitinn var slétt eitt stig. Og sólin skein og skein!
Sumarið er þá víst komið!
Enda fögnuðu ýmsir á fasbók veðrinu í gær alveg óskaplega. Sögðust ekki muna dýrlegri fyrsta sumardag!
Bloggar | Breytt 26.4.2015 kl. 12:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.4.2015 | 19:23
Kaldur sumardagurinn fyrsti
Í dag varð mesti hiti á landinu 6,7 stig í Skaftafelli. Það er fyrsti dagurinn í tíu daga í röð sem hámarkshiti landsins nær ekki tíu stigum.
Það er sem sagt búið að vera eins konar sumar í tíu daga! En nú hefur sumarið farið í sumarfrí í bili.
Oft hefur samt verið kaldara sumardaginn fyrsta í Reykjavík og á landinu. En líka miklu hlýrra, sannkölluð vorblíða. Þennan dag er veðrið breytilegt eins og alla aðra daga.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
17.4.2015 | 13:18
Óboðleg og óþolandi frekja
Eigandi American Bar er auðvitað í fullum rétti að flagga amerískum fána til að vekja athygli á starfsemi sinni og hvers eðlis hún er.
Alþingismenn hafa ekkert boðvald yfir sjálfstæðum atvinurekstri.
Það er Frekja og Ofríki með stórum staf að þeir skuli samt skipta sér af honum með stóryrðum og í raun segja honum fyrir verkum. Vilji deila og drottna yfir öðrum.
Og þetta er það sem er óboðlegt og óþolandi í þessu máli.
Hvernig geta þingmenn annars þolað það að ganga inn og út úr alþingishúsi sem skartar skjaldarmerki erlends konungsríkis?
Eru þessir vanstilltu frekjudallar líka fífl?
Algjörlega óþolandi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
10.4.2015 | 13:20
Loftslagsumræðan
Enginn er ég framsóknarmaður. Og ekki efa ég að hlýnun jarðar af völdum aukinna gróðurhúsaáhrifa af mannavöldum sé staðreynd og menn eigi að reyna að sporna við henni. Ég hef þó lítið sem ekkert í alvöru tekið þátt í umræðum um veðurfarsbrytingar, komið einstaka sinnum með smáskot, stundum bara í stríðni. Þessi umræða hefur mér sýnst að stórum hluta svo vanhugsuð, óstillt, ofsafengin og öfgakennd á flesta kanta að hún er ekki fyrir viðkvæma. Ekki batnar það svo þegar umræðan tengist beinlínis pólitískum flokkadráttum og pólitískri óvild.
Frábært dæmi um þetta er hvað gerðist þegar Framsóknarflokkurinn lýsti því yfir í drögum að ályktun að spennandi yrði að geta nýtt þau tækifæri sem hlýnun veðurfars hefði hér á landi fyrir landbúnaðinn. Orðið "spennandi" er fremur óheppilegt og verður vonandi fellt út í lokagerð ályktunarinnar en það á ekki algerlega að skyggja á meginhugunina: Að nýta einfaldlega þau jákvæðu "tækifæri" sem hlýnunin þó veitir á okkar svæði og eru mjög raunveruleg. Hlýnunin hér á þessari öld er um eitt stig yfir árið sem er eiginlega bylting og gróður landsins hefur brugðist vel við eftir því. En reyndar er ólíklegt að hlýnunin haldi áfram lengi af alveg sama krafti þrátt fyrir undirliggjandi hlýnun jarðar. Hún sýnir samt hvað hlýnun á Íslandi við ysta haf, af hverju sem hún stafar, er afdrifarík fyrir gróður og landbúnað miðað við það að ekki hefði hlýnað eða þá beinlinis kólnað eins og gerðst til dæmis á hafísárunum. Ef ekki má sjá þessa staðreynd og tala um að nýta sér það sem hún býður upp á þó áhrif hlýnunar séu víða vond annars staðar á jörðunni og vinna beri þess vegna almennt gegn henni, ef ekki má nefna þetta sem vissan ábata án þess að menn fyllist afskaplegri vanþóknun og fordæmingu með mjög sterku pólitísku ívafi þá er það í mínum huga einfaldlega enn ein sönnun á þeirri óstillingu og hatursfengna ofstæki sem einkennt hefur umræðuna um loftslagsbreytingarnar hér á landi og miklu viðar þrátt fyrir fáeinar heiðarlegar undantekningar.
Þetta heiftarlega fanatíska upphlaup á netmiðlum um drögin að ályktun Framsóknarflokksins um landbúnaðarmál er ekki nein sönnun á siðleysi Framsóknarflokksins eins og látið hefur verið í veðri vaka, hvaða skoðun sem menn annars hafa á þeim flokki, heldur miklu fremur sönnun á ónýtri og vanstilltri umræðuhefð sem hér er ríkjandi um loftslagsmál.
Hógvær eftirþanki: Landsmenn hafa aldeilis nýtt sér út í ystu æsar þau spennandi tækifæri sem hlýindi og veðurblíða þessarar aldar hefur skapað í útivist, strolli og lattelapi undir berum himni og ætla nú alveg vitlausir að verða þegar smábreyting er orðin á.
Færsluflokkar
- Allt í plati
- Blogg
- Bloggar
- Bækur
- Efnisyfirlit um veður
- Ég
- Guð sé oss næstur
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Hlýustu og köldustu mánuðir
- Íslensk veðurmet
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Mali
- Mannlífið
- Mánaðarvöktun veðurs
- Menning og listir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Veðurfar
- Veður í annálum og öðrum gömlum heimildum
- Veður um allan heim
- Vísindi og fræði
Tenglar
Blogg
Ýmsir vefir
- Gjósandi eldfjöll
- Kantötur Bachs
- Schubert
- Stjörnuskoðun
- Nótnasafnið
- Torfusamtökin
- Lilta-Ávík
- Blogggáttin
- Doctor E
Blogg
Síður
- Sólarminnstu júlímánuðir
- Þíðukaflar að vetrarlagi í Reykjavík
- Jóla og áramótaveðrið frá 1880
- Sólrík sumur og sólarsnauð
- Sólskin á Íslandi
- Hámarkshiti á landinu um verslunarmannahelgina frá 1949 og veðrið í Reykjavík
- Slær júlí hitamet í Reykjavík
- Óvenju hlý júlíbyrjun
- Nokkrir kaldir janúarmánuðir og kuldadagar
- Hret og snjóar í ágúst
- [ Fleiri fastar síður ]
Eldri færslur
- Desember 2024
- Mars 2023
- Ágúst 2019
- Desember 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Desember 2017
- Júlí 2017
- Maí 2017
- Febrúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- September 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006