Færsluflokkur: Bloggar
13.9.2015 | 20:13
Indjánasumar
Undanfarið hafa sumir fjölmiðlar talað um indjánasumar um hlýindin sem voru fyrir fáum dögum.
Hugtakið indjánasumar, indian summer, á sér amerískan uppruna. Það er notað í daglegu tali um bjarta og óvenjulega hlýja daga eftir árstíma, en svölum nóttum, á hausti eftir að kuldi hefur verið fyrir með svo miklu frosti að vöxtur gróðurs hefur stöðvast, ekki bara stöku væg næturfrost. Indian summer er ekki framlenging á sumri, en sumur geta auðvitað verið misgóð, heldur hlýindakafli eftir að óumdeilanleg hausttíð hefur verið um skeið.
Ýmis önnur lönd hafa svipuð hugtök um það þegar óvenjuleg hlýindi koma að hausti eftir að kólnað hefur.
Vafasamt finnst mér, að ekki sé meira sagt, að kalla hlýindakaflann sem kom um daginnn á Íslandi indjánasumar. Sumarið var alls ekki liðið og enginn frost höfðu verið á landinu. Hásumarið var að vísu í kaldara lagi og mjög kalt fyrir norðan en ekki gengur að tala um indjánasumar þó eftir kalt sumar,sem samt er sumar en ekki haust, komist hiti í eðlilegt horf eða jafnvel komi góður hlýindakafli. Á undan þessu íslenska "indjánasumri" vantaði almennilegan haustkulda til að það geti fallið undir þessa amerísku skilgreiningu á indjánasumri.
Og alls ótækt er að nota þetta hugtak, indian summer, um sólarglætudag í Reykjavík sem ekki var neitt sérstaklega hlýr og kom ekki einu sinni í kjölfar neinna kulda, því sumarið hefur verið alveg þokkalegt á Reykjavíkursvæinu, eins og gert var með myndefni í einum fjölmiðli í gær. Ástandið sem ríkti þegar hlýjast var um daginn þegar hiti fór víða yfir 20 stig fyrir norðan og austan var alls ekki á þvi sama plani í Reykjavík. Þar var svo sannarlega ekki neitt indian summer í sama skilningi og verið er að nota hugtakið um veðrið fyrir norðan þó sólarhringsmeðaltal hita í Reykjavík hafi verið vel yfir meðallagi árstímans.
Í sannleika sagt finnst mér ekki ganga að nota amerískt hugtak, þar sem veðurfar er allt öðru vísi en hér, alveg hrátt til að lýsa hlýindakafla að síðsumri á Íslandi.
Hitt er annað mál að kannski eru til einhver orð og hugtök um íslenskt veðurfar sem lýsa sjaldgæfum hita og blíðviðri sem kemur eftir skítatíð að sumri (sem aðallega á þó við norður og austurland hvað þetta sumar snertir).
Bloggar | Breytt 16.9.2015 kl. 18:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
10.9.2015 | 13:36
Enn hlýtt en hvassara
Í gær komst hitinn á landinu í tuttugu stig eða meira á einum fimm veðurstöðvum. Mest á mönnuðu stöðinni á Skjaldþingsstöðum, 21,6 stig en 20,0 á mönnuðu stöðinni á Sauðanesvita og á sjálfvirku stöðvunum á Ólafsfirði og Siglufirði. Á Akureyri hefur hitinn ekki náð tuttugu stigum þessa hlýju daga en þó mjög nærri því.
Það hefur ekki bara verið hlýtt norðaustan og austanlands heldur einnig ananrs staðar og sólahringsmeðaltal hita verið vel hátt alls staðar á landinu.
Úrkoman í Reykjavík þessa tíu daga er 32,2 mm sem er reyndar 2,2 mm undir meðaltali þessara daga á öldinni. Þar hefur því ekki verið mikil útkomutíð venju fremur og aðeins óveruleg fyrstu daga mánaðarins. Mest úrkoma hefur verið vestast á landinu en fremur lítil á suðurlandi og mjög lítil á norður og austurlandi og á Vestfjörðum.
Sólin hefur hins vegar lítið látið sjá sig á suðvesturlandi enda ananrs ekki að vænta í þessu veðurlagi.
Síðustu þrír dagar hafa verið þeir hlýjustu á landinu sam komið hafa í sumar að meðaltali og ekki mælst meiri hámarkshiti en í fyrradag. Þessir dagar eru ekki bara hlýir miðað við september heldur líka vel hlýir miðað við hásumardaga. Það er því mjög sterkur sumarblær á veðrinu. Jú,jú,það er þungt yfir sunnanlands og nokkuð úrkomusamt vestast á landinu en svo myndi líka vera ef sams konar veðurlag hefði komið um miðjan júlí. Það er bara einkenni þessa veðurlags sem núna er að haga sér svona á hvaða árstíð sem er. Það er ekkert dæmigert haustástand við þetta eins og sumir eru þó farnir að kalla það. En bráðum verður farið að tala um það sem haustveður (er reyndar þegar byrjað) ef rignir og blæs dálítið fyrri hluta sumars eða kemur kuldakast þá. "Það haustar óvenju snemma í ár" er verið að segja í júní í skammvinnu kuldakasti og svo áfram. Það er eins og sumir geti ómögulega ímyndað sér að veðurlag sem hefur ríkt í einhvern tíma, til dæmis í eina viku eða einn mánuð, snemma sumars eða miðsumars, geti breyst all verulega þegar á líður. -
Gat ekki stillt mig um þetta tuð eftir að hafa fylgst með athugasemdum á íslenksum veðursíðum síðustu tvö árin!
September á það til að vera breytilegri en mánuðurnir júní til ágúst hvað hita snertir. Stundum er hann ágæutr sumarauki en stundum ekki. Hann er samt óumdeilanlega fjórði hlýjasti mánuður ársins að meðaltali og alla jafna finnst mér mjög ákveðið að telja beri hann sumarmánuð en ekki haustmánuð. Hann getur auðvitað brugðist afleitlega eins og aðrir sumarmánuðir (svo sem júli núna fyrir norðan). Og hann kólnar vitaskuld jafnt og þétt allan mánuðinn. En september er miklu hlýrri í heild en október sem ég tel fyrsta raunverulegan haustmánuðinn og september er miklu líkari næstu þremur mánuðum á undan heldur en otóber. September er svo sem ekki mikið kaldari en júní á landinu og við austurtröndina er sáralitill munur á hita júni og september.
Orðið "haustlægð" er á seinni árum illilega ofnotað. Það er meira að segja farið að nota það um lægðir af dýpra tagi með nokkurri úkomu í júlí og það má heita regla um slíkar lægðir ef þær láta á sér kræla eftir að komið er fram í ágúst eða byrjun september. Reyndar er orðið "haustlægð" álíka ónotæft og orðið "páskahret". Mestanpart meiningarlaust. Nær væri að tala bara um óvenju djúpa lægð eftir árstíma (sem alltaf hljóta að koma annað slagið að sumri) eða bara lægðir og tilgreina dýptina ef hún er eitthvað verulega spes. En nú er farið að kalla lægðasyrpur sem koma í ágúst eða senmma í september sem haustlægðir, haustlægðir, haustlægðir, haustlægðir, bara ef þær koma nokkrar hver á eftir annarri en það finnst lægðum einmitt sérlega gaman að gera.
Það er eins og sé bannað að tala bara um heiðarlegar lægðir. Allar þurfa þær að vera "haustlægðir".
Og nú er bara að sjá hvort núverandi veðurlag haldi bara ekki áfram og áfram og áfram. Allt til krossmessu á vori!
Bloggar | Breytt 13.9.2015 kl. 19:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
7.9.2015 | 20:51
Enn hlýrra í dag fyrir austan en í gær
Hitinn í dag fór í 24,1 stig á Seyðisfirði. Það er reyndar mesti hiti sem mælst hefur á landinu þennan mánaðardag frá stofnun Veðurstofunnar 1920. En meiri hiti hefur þó mælst nokkrum sinnum nærri þessari dagsetningu, bæði fyrir og eftir. Mesti hiti sem mælst hefur á Íslandi í september er 26,0 á Dalatanga þann 12. árið 1949.
Í dag mældist hitinn 23,3 stig á mönnuðu stöðinni á Skjaldþingsstöðum í Vopnafirði, 23,2 í Neskaupstað og 22,2 stig á mönnuðu stöðinni á Miðfjarðarnesi. Þetta er mesti septemberhiti sem mælst hefur á Skjaldþingsstöðum síðan stöðin byrjaði 1994. Meiri septemberhiti hafði áður mælst í Vopnafjarðarkauptúni.
Á Raufarhöfn fór hitinn í 21,7 stig á sjálfvirku stöðinni en á mönnuðu stöðinni þann 12. september 1949 mældust 22,0 stig.
Hitinn í dag er því aðeins einu þrepi eða svo neðar en það mesta sem mælst hefur á norðausturlandi í september. Skilyrði voru í háloftunum fyrir enn meiri hita en mældist en sjaldan skila slík skilyrði sér fyllilega niður við jörð.
Ekki er þó hægt að segja annað en þetta hafi verið vel heppnaður dagur norðaustanlands.
Bloggar | Breytt 8.9.2015 kl. 13:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
6.9.2015 | 19:32
Mjög hlýtt austanlands
Um leið og segja má að löngu "sumarfríi" þessarar bloggsíðu sé lokið er gaman að geta þess að dagurinn var einstaklega hlýr á austanverðu landinu. Og þar var glaðasólskin.
Mestur hiti varð 22,9 stig á Seyðisfirði, 22,8 á Hallormsststað og Kollaleiru, 22,0 á Egilsstaðaflugvelli, 21,9 á Staðarhóli, 21,4 í Bjarnarey, 21,2 á Fáskrúðsfirði og 21,0 stig á Eskifirði. Víðar fór hiti yfir tuttugu stig á svæðinu frá Aðaldal austur og suður um allt til Fáskrúðsfjarðar.
Hlýindunum veldur hlý hæð suður af landinu.
Fylgiskjalið sem birtir nokkrar veðurstaðreyndir hvers dags hefur verið virkt í "fríinu" og með því að skrolla upp má sjá allt það sem af er ársins. Blað 1 er Reykjavík og landið, blað 2 er Akureyri.
Það er ekki haustlegt á landinu núna en í þessu veðurlagi er vitanlega þungt yfir á suður og vesturlandi á hvaða árstíð sem er. En sumarið er ekki búið.
Bloggar | Breytt 7.9.2015 kl. 12:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.6.2015 | 12:44
Loksins alveg snjólaust á veðurstöðvum
Í morgun var loks talin alauð jörð á Bassastöðum í Steingrímsfirði. Það er síðasta veðurathugunarstöðin sem gefur upp alauða jörð á þessu sumri.
Í fyrra varð alautt á öllum snjóaathugunarstöðvum 18. júní. Sá júní var þó afburða hlýr.
Snjór er þó auðvitað enn víða til fjalla. Haft var í útvarpsfréttum eftir fjallaleiðsögumanni að ekki hafi verið meiri snjór en nú á heiðum sunnanlands í áratugi. Og alloft heyrast svipaðar fullyrðingar um snjóalög hér og þar. Ég tek samt varlega mark á slikum fullyrðingum sem ekki er hægt að styðja með öðru en einhverri tilfinningu. Og hvað marga áratugi er átt við? Ég trúi því ekki að nú sé meiri snjór á hálendinu eða í byggð í vetur en var á árunum kringum 1990 fyrir aðeins um tveimur og hálfum áratug, að ekki sé minnst á snjólaögin um og upp úr 1970.
Meðalhitinn það sem af er mánaðar er nú kominn í 8,3 stig í Reykjavík, 0,6 stig undir meðallaginu 1961-1990 en 1,8 stigum undir meðallagi þessarar aldar sömu daga. Frá stofnun Veðurslofunar, 1920, hefur verið kaldara þessa daga í Reykjavík í eftirtöldum árum: 1992 8,2 stig, 1997 8,0, 1994 7,6, 1992 7,7, 1988 8,2, 1983 7,8, 1979 8,0, 1977 8,1, 1973 7,9, 1959 8,2, 1956 7,8, 1952 8,0. Hlýjast hefur verið: 11,3 stig 2010, 11,2 stig 2014 og 2003, 11,0 stig 2002, um 10,9 1941 og 10,6 stig 2008. Okkar öld er þarna eiginlega alveg sér á parti í hlýindunum.
Á Akureyri er meðalhitinn núna 8,1 stig eða eitt stig undir meðallaginu 1961-1990.
Á landinu er meðalhitinn kringum 7,2 og eða um 1,7 stig undir meðallagi okkar aldar. Strax í júní 2011 var um hálfu stigi kaldara en en nú en sá mánuður var tiltölulega mildastur á suðvesturlandi (8,9 stig í Reykjavík fyrstu 24 dagana).
Sólarstundir það sem af er í Reykjavík eru um 12 stundum undir meðallagi þessarar aldar.
Úrkoman í Reykjavík er aðeins rúmir 17 mm eða kringum 100 millimetrum minni en í júní í fyrra! Ef sá úrkomumikli mánuður er ekki tekinn með er úrkoman það sem af er júní í borginni aðeins ríflegur helmingur af úrkomumagni sömu daga árin 2001 til 2013.
Sem sagt kaldur, þurr og fremur sólarlítill júnímánuður.Ekki sérlega geðslegur!
Hlýna á næstu daga. Það er jafnvel ekki óhugsandi að meðalhtinn í ReykjAvík merji níu stigin þegar mánuðurinn er allur.
Bloggar | Breytt 28.6.2015 kl. 12:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.6.2015 | 19:24
Fyrsti tuttugu stiga hitinn á landinu
Í dag komst hámarkshitinn á sjálfvirku stöðinni á Torfum í Eyjafjarðardal í 20,7 stig. Það er í fyrsta sinn á árinu sem hiti einvhers staðar á landinu nær tuttugu stigum eða meira.
Meðalhitinn rýkur upp um land allt og vonandi má segja að sá kuldi sé ríkt hefur að mestu leyti frá sumardeginum fyrsta sé nú á enda.
Bloggar | Breytt 21.6.2015 kl. 19:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.6.2015 | 20:14
Hitinn er upp á við
Meðalhitinn í Reykjavík eftir gærdaginn er nú kominn upp í 7,7 stig eða 0,9 stig undir meðallaginu 1961-1990 en 2,3 stig undir meðallagi þessarar aldar.
Á Akureyri er meðalhitinn 6,8 stig eða 2,0 undir meðallaginu 1961-1990 eða 2,9 stig undir meðalhita síðustu 10 ára (-2,3 í Reykjavík þau ár, eins og á öldinni).
Þess má geta að þegar júní í fyrra var hálfnaður var meðalhtinn í Reykjavik 11,5 stig og hefur aðeins verið hærri árið 2002, 12,0 stig (seinni hluti þess mánaðar var kaldari svo mánuðurinn endaði í 10,9 stigum).
Árið 2011 var meðalhitinn þessa daga í Reykjavík 7,8 stig en 7,5 árið 2001, 7,1 stig árið 1997 og 7,2 stig árið 1994. Kaldast frá því a.m.k. 1941 var 1973, aðeins 6,5 stig. Frá 1941 hafa tíu júnímánuður, þegar hann var hálfnaður, verið kaldari í Reykjavík en nú og einn jafn kaldur.
Sólskinsstundir í Reykjavík hafa nú mælst 111,4 eða eða um 8 stundum yfir meðallagi þessarar aldar. Miklu munaði um sólskinið þann 13. sem var sá sólríkasti sem mælst hefur þann dag í Reykjavík, 18,0 stundir, og daginn eftir voru sólskinsstundirnar 17,8 eða 0,2 stundum frá dagsmetinu. Ekki voru þessir dagar þó hlýir þrátt fyrir sólina.
Meðalhitinn um allt land stefnir upp á við næstu daga.
Bloggar | Breytt 18.6.2015 kl. 12:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
11.6.2015 | 14:25
Þessi júní á sér marga bræður
Nú þegar einn þriðji af þessum júnímánuði er liðinn er meðalhitinn í Reykjavík 7,2 stig eða 1,2 stig undir meðallaginu 1961-1990 en 2,6 undir meðallagi þessarar aldar (fyrstu 10 júnídagana) en okkar öld hefur hingað til skartað langhlýjustu júnímánuðum sem hægt er að finna fyrir samfelld 14 ár í mælingasögunni. Og veður það að kallast afbrigðilegt.
Á Akureyri er meðalhitinn núna 6,9 stig eða 1,6 stig undir meðallaginu 1961-1990 og 3,0 stig undir meðallagi síðustu tíu ára en ég veit ekki enn meðalhitann á þessari öld. Verður bráðum! Á Akureyri, gagnstætt Reykjavík, hefur hitinn sótt í sig veðrið því um tíma var meðalhitnn þar um 4 stig undir meðaltalinu 1961-1990.
Ekki er þetta gæfulegt. Þó var enn kaldara fyrstu tíu dagana i Reykjavik í júní 2001, við upphaf okkar aldar, 6,7 stig, en endanleg tala fyrir þann mánuð var 8,8 stig. Og eins og ég gat um í síðasta bloggi var sá júní sá kaldasti sem af er öldinni í Reykjavík. Hugsanlega slær okkar júní hann út en við skulum þó vona að eigi eftir að hlyna hressilega áður en mánuðurinn er allur. Fyrstu 10 dagana í júní 1997 var meðalhitinn 7,0 stig, 7,2° 1994, 7,5° 1985,7,2° 1983, 7,0° 1978 (endaði í 7,8°), 6,7° 1977, 7,4° 1975, 7,0° 1970, 7,3° 1959, 6,4° 1956 og 1952, um 5,9 1946, um 7,1° 1938, svo dæmi séu tekin.
Á landinu öllu var nokkru hlyrra fyrstu tíu júnídagana 2001 en núna en frá 1949 var kaldara 1997,1994,1991, 1983,1981, 1977,1975, 1973, 1959,1952 og 1949.
Þó vissulega sé kuldatíð núna voru álíka kuldar tiltölulega algengir alveg fram á okkar öld fyrstu dagana i júní og við erum því ekki að lifa nein söguleg tímamót í kulda vegna þessara daga út af fyrir sig, hvað sem síðar verður.
Sólskinsstundir það sem af er í Reykjavík eru 55 sem er 9 stundum færra heldur en meðaltal þessara daga frá upphafi mælinga 1923. Það er nú allt og sumt. Ísland er ekki beint sólskinsland. Þetta er reyndar bara fimm stundum færra en þessa daga á okkar öld sem sólarlega hefur ekki staðið sig sérlega vel fyrstu 10 júnídagana þó annað sé uppi á teningnum fyrir allan mánuðinn. Færri sólarstundir þessa daga en nú voru 2013, (13,4 klst), 2009, 2008, 2007, 2006 og 2003. En hlýrra var yfirleitt þessa daga í þessum mánuðum en nú er.
Úrkoman núna, bæði á Akureyri og í Reykjavik, hefur verið fremur lítil og ekki til að tala um.
Á netinu hefur nokkuð borið á því að menn hér í Reykjavík séu að jafna þessum júní, 2015, saman við júní í fyrra.
Meðalhitinn í fyrra fyrstu tíu júnídagana í Reykjavik var 11,1 stig en 7,2 núna, annars vegar einn af þeim fimm hlýustu sem mælst hafa þessa daga (og allt til loka) og hins vegar okkar mánuður sem fer í flokk með þeim köldustu, miðað við það sem af er mánaðar. Reyndar var úrkoman þessa daga í fyrra helmingi meiri í Reykajvík en nú en sólarstundir voru aftur á móti sjö fleiri og þá komu tveir miklir sólardagar en aðeins einn hefur enn komið núna, alveg skítkaldur. Báðir sólardagarnir í júní í fyrra voru vel hlýir, hásuamrdagar, með 15 stiga hámarkshita. Annars þeirra, sá 6. var reyndar sólríkasti sjötti júní sem mælst hefur og hinn, sá 7., var aðeins hálftíma frá því að jafna sólskinsmetið fyrir þann dag.
Að jafna saman júní 2015 og 2014 er hreinlega út í hött.
Bloggar | Breytt 15.6.2015 kl. 19:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
4.6.2015 | 15:37
Hlýir og kaldir júnímánuðir
Það hefur víst ekki farið framhjá mönnum að maí var óvenjulega kaldur. Í Reykjavík sá kaldasti síðan 1979 en á landinu í heild svipaður og 1982. Þetta er kaldasti mánuðurinn að tiltölu sem var í vetur og í vor.
Það kemur óneitanlega nokkuð flatt upp á mann að fá svona mánuð ofan i leiðinlegan vetur eftir góðviðrið á þessari öld en ekki kemur það samt beinlínis á óvart.
Horfurnar fyrir fyrri hluta júní eru svo vægast sagt ekki gæfulegar.
Meðalhitinn í júní í Reykjavík á þessari öld er 10,4 stig en síðustu 14 ár tuttugustu aldar 9,1 stig og má heita sá sami viðmiðunartímabilið 1961-1990. Ekkert smáræðis hitastökk! Á öllum árunum 1942-2001 kom engin júní sem náði meðaltali allra júnímánaða á okkar öld, 10,4 stigum. Frá og með 2002 hafa júnímánuður verið með eindæmum hlýir, til dæmis komið þrír mánuðir sem hafa náð ellefu stigum eða meira (sá síðasti í fyrra) en aðeins tveir frá 1871-2000, árin 1941 og 1871.
Hitafarið í júní á okkar öld er því mjög óvenjulegt ástand og stendur varla óbreytt til langframa.
Nú eru Reykvíkingar þó auðvitað svo vanir því að fá júnímánuði frá svona tíu og hálfu stigi og upp fyrir ellefu stig, oft mjög sólríka líka, að mönnum mun sannarlega bregða í brún ef fara að koma svalir mánuðir, til að mynda undir 9 stigum og ég tala nú ekki um undir 8 stigum. Síðasti júní undir 9 stigum var reyndar sá fyrsti á okkar öld, 2001 en sá mánuður mældist 8,8 stig. Fimmtán kaldari mánuðir komu þó árin 1961-2000 og einn jafn kaldur. Af þessum mánuðum voru fjórir undir 8 stigum, sá síðasti 1992, 7,8 stig. Ekki er nú langt síðan i veðurfarslegu tilliti.
Kaldasti júní sem mælst hefur í Reykjavík var 1867 6,4 stig en kannski var aðeins kaldara í júní 1851 en þá var ekki mælt í Reykjavik en hins vegar í Stykkishólmi þar sem var kuldi mikill. Köldustu júnímánuðir sem miðaldra fólk ætti að muna eftir voru einmitt 1992, 7,8 stig og 1978 með sömu hitatölu. Fáir munu nú reka minni til júní 1922 sem mældist aðeins 7,4 stig.
Þó síst af öllu vilji maður spá af alvöru um framtíðina eða taka upp kuldahrollstakta, þó þeir séu nú nokkuð í tísku, kæmi manni ekki á óvart þó þessi órofnu að kalla má sumarhlýindi (og önnur hlýindi) sem ríkt hafa á landinu þessa öld fari nú að brotna eitthvað upp.
Fylgiskalið fylgist svo áfram með veðrinu í júni. Þar hefur við hliðina á meðalhita hvers dags á landinu verið bætt við meðaltali hitans fyrir hvern dag á þessari öld, 2001-2014.
Bloggar | Breytt 11.6.2015 kl. 13:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
23.5.2015 | 20:05
Marktækir og ómarktækir vitnisburðir
Tveir fyrrum ráðherrar, Ögmundur Jónasson og Jón Bjarnason, hafa bloggað um það atvik þegar þingmaður Framsóknarflokksins ældi yfir fólk í flugvél.
Báðir fullyrða að þingmaðurinn hafi ekki ekki verið ölvaður heldur fremur verið með innanmein.
Og báðir ganga algjörlega framhjá vitnisburði nafngreinds sjónvarvotts sem varð fyrir ælunni og fullyrt hefur á netmiðlum að þingmaðurinn hafi varla staðið á löppunum vegna ölvunar. En þessi sjónvarvottur er óþekkt persóna og fullkomlega áhrifa og valdalaus. Og hefur líkast til aldrei tekið þátt í opinberri umræðu en var svo óhepinn að vera í umræddu flugi.
En ég spyr nú samt:
Hvers vegna ætti að taka fremur mark á vitnisburði þessara fyrrum ráherra, sem ekki voru á staðnum, fremur en sjónarvotts sem ekki aðeins var á staðnum heldur varð fyrir innvolsi þingmannsins?
Afhverju láta báðir þessir virðulegu stjórmálamenn sem vitnisburður sjónvarvottsins sé ekki til? Það þarf ekki að segja manni að þeir viti ekki af honum.
Afsakið, en ég get ómögulega tekið sjálfkrafa minna mark á vitnisburði hans heldur en orðum ráðherranna sem eru að verja vin sinn og félaga á alþingi Íslendinga. En auðvitað veit ég ekki hvernig málið var vaxið. Vitnisburðir eru misvísaandi. Ekki samhljóða.
Varla vissi ég að þingmaðurinn væri til áður en þetta atvik gerðist eða í hvaða flokki hann væri eða hverjar eru hans stjórmálahugsjónir. Hvað þá hvernig heilsufari hans er háttað. Þessir þættir koma mér bara ekki rassgat við, svo ég noti sjóðheitt orðfæri beint úr evrópsku söngvakeppninni. Það eina sem hreyfir við mér í öllu þessu uppsöluveseni er sú staðreynd að tveir áhrifamiklir stjórnmálamenn og fyrrum ráðherrar skuli alveg hiklaust með orðum sínum stimpla nafngreindan sjónvarvott ómarktækan. Láta bara ens og hann sé ekki til en gefa samt illgirni í skyn.
Það finnst mér ekki sérlega traustvekjandi. Og segja ýmislegt um hug valdafólks til alþýðunnar. Ef ekki væri þessi nafngreindi vitnisburður og ráðherrarnir hafi á sinn hátt gert lítið úr honum, strikað bara algerlega yfir hann, hefði maður ekki sagt eitt einasta orð um þetta leiðinda mál. En ekki er hægt að taka því ranglæti alveg þegjandi að áhrifamiklir stjórnmálamenn valti í ráðherraritstíl yfir fólk þó það sé óþekkt og ekki í þeirra röðum.
Hvorugur þessara heiðursmanna leyfir athugasemdir við bloggfærslur sínar. Ég fylgi þá í þeirra göfugu fótspor og set lok lok og læs fyrir þær líka.
Færsluflokkar
- Allt í plati
- Blogg
- Bloggar
- Bækur
- Efnisyfirlit um veður
- Ég
- Guð sé oss næstur
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Hlýustu og köldustu mánuðir
- Íslensk veðurmet
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Mali
- Mannlífið
- Mánaðarvöktun veðurs
- Menning og listir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Veðurfar
- Veður í annálum og öðrum gömlum heimildum
- Veður um allan heim
- Vísindi og fræði
Tenglar
Blogg
Ýmsir vefir
- Gjósandi eldfjöll
- Kantötur Bachs
- Schubert
- Stjörnuskoðun
- Nótnasafnið
- Torfusamtökin
- Lilta-Ávík
- Blogggáttin
- Doctor E
Blogg
Síður
- Sólarminnstu júlímánuðir
- Þíðukaflar að vetrarlagi í Reykjavík
- Jóla og áramótaveðrið frá 1880
- Sólrík sumur og sólarsnauð
- Sólskin á Íslandi
- Hámarkshiti á landinu um verslunarmannahelgina frá 1949 og veðrið í Reykjavík
- Slær júlí hitamet í Reykjavík
- Óvenju hlý júlíbyrjun
- Nokkrir kaldir janúarmánuðir og kuldadagar
- Hret og snjóar í ágúst
- [ Fleiri fastar síður ]
Eldri færslur
- Desember 2024
- Mars 2023
- Ágúst 2019
- Desember 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Desember 2017
- Júlí 2017
- Maí 2017
- Febrúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- September 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006