Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2009
30.4.2009 | 13:41
Afhverju voru Knud Hamsun og Ezra Pound ekki skotnir
Fasistar og nasistar voru ekki nein lömb við að eiga og stríðsárin voru ekki tímar mildi og miskunnsemi. Föðurlandssvik voru litinn alvarlegum augum. Þau voru verri en allt annað.
Föðurlandssvikarar voru teknir af lífi.
Knud Hamsun og Ezra Pound kusu sér vitandi vits hlutskipti föðurlandssvikara og jafnvel glæpamanna gegn mannkyninu.
Þeir nutu frægðar sinnar. Í stað þess að vera skotnir voru þeir úrskurðaðir geðveikir.
Listamenn um allan heim hafa emjað yfir því hvað illa var farið með þá að þeirra áliti.
En það var einmitt farið vel með þá.
Það er í rauninni ranglátt með tilliti til þess hvernig komið var fram við aðra föðurlandssvikara.
Það átti auðvitað að skjóta þá eins og hina ef jafnræðis og sanngirnis hefði verið gætt.
(Ég er samt persónulega skilyrðislaust á móti dauðarefsingum).
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (23)
30.4.2009 | 11:10
Úrkomumet í apríl
Ég fæ ekki betur séð en að í þessum apríl hafi mælst meiri úrkoma á mannaðri veðurstöð í það minnsta en áður hefur mælst á veðurstöð á Íslandi. í þessum mánuði. Á Kvískerjum mældust 523,7 mm en gamla Íslandsmetið var 520,7 mm frá 1984 og var það einnig á Kvískerjum.
En það féllu fleiri úrkomumet stöðva í mánuðinum. Hér koma nokkur sem ég veit um en gömlu metin innan sviga og ártal sem sýnir hvenær mælingar hófust.
Vík í Mýrdal 311,4 mm (289,3, 1955;1925).
Stórhöfði í Vestmannaeyjum 218,1 (214,7, 2002;1922, áður mælt í kaupstaðnum frá 1881-1921).
Eyrarbakki 199,3 að minnsta kosti (190,0, 1883; 1881-1911, 1926).
Mýri í Bárðardal 59,7 (49,2, 1979;1957).
Hugsanlega geta verið villur í þessum nýju tölum upp á smábrot en metin eiga að vera rétt.
Í Reykjavík var úrkoman 99,9 mm og mun þetta þá vera tíundi úrkomumesti apríl þar frá upphafi mælinga ef öll tímaskeið eru talin með, líka mælingar Jóns Þorsteinssonar á nítjándu öld. Frá stofnun Veðurstofunnar er þetta sjötti úrkomumesti apríl sem mælst hefur.
Meðalhiti mánaðarins er á góðu róli. Mun verða um 5 stig í Reykjavík eða meira en tvö stig yfir meðallagi.
En veðurlag hefur vægast sagt verið óvenjulegt eins og sést á þessum úrkomumetum.
Veðurfar | Breytt 8.5.2009 kl. 18:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
29.4.2009 | 19:28
Afsökun og fyrirgefning
Afsökunarbeiðni er ekki það sama og fyrirgefning.
Einhver biður annan afsökunar á misgjörðum sínum í hans garð.
Fyrirgefningin er hins vegar á valdi þess sem brotið hefur verið á.
Stundum er fyrirgefningar krafist með hálfgerðri frekju. Og ef einhver vill þá ekki fyrirgefa á hann á hættu að breytast í vonda gaurinn. Kærleikslausan mann sem ekki vill fyrirgefa.
Fórnarlambið breytist í sökudólg.
Við eigum svo erfitt með að horfast í augu við erfið mál, til dæmis kynferðislega misnotkun.Þess vegna heimta sumir fyrirgefningu og þá á málið að vera leyst.
Fyrirgefning er ekki nauðsynleg fyrir þolendur misgjörða. Það er nauðsynlegt að ná sér eftir þær vinna sig frá þeim, láta þær ekki yfirskyggja sig. Verða frjáls. Það gera menn með sálrænni úrvinnslu hvort sem hún er einkaleg eða undir handarjaðri fagfólks.
Fyrirgefning er aðallega guðfræðilegt hugtak.
Það hefur ekkert upp á sig í sálrænni vinnu vegna áfalla.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (23)
29.4.2009 | 16:31
Uppljóstrun um hlýnunarspursmálið
Sá auðmjúki bloggari sem hér bloggar viðurkennir að hann er hallari undir kenningarnar um hlýnun jarðar af mannavöldum en hann hefur hingað til látið almennilega uppi.
Hins vegar fer það óskaplega í taugarnar á honum þegar allir vitringar heimsins eru orðnir sammála um eitthvað. Þá vill hann ólmur verða ósammála þeim.
Svo fer það líka í taugarnar á honum hvernig allir veðurfarsatburðir eru umsvifalaust skrifaðir á reikning gróðurhúsaáhrifanna.
En langmest fer það í taugarnar á honum að veðurfarið, hans góða og gamla áhugamál, er orðið pólitískt æsingmál hjá ótrúlegasta fólki, jafnvel listamönnum sem fæstir vita af hvaða átt hann blæs.
Fölmargt annað í lífinu, stórt og smátt, fer í taugarnar á bloggarnum þó hann hafi að vísu stáltaugar, en verður hér ekki upptalið.
Það gæti farið í taugarnar á einhverjum.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
29.4.2009 | 10:52
Sparnaður
Það ætti að verða eitthvert fyrsta verk nýrrar ríkisstjórnar að leggja niður þetta hallærislega forsetaembætti.
Það ætti líka endilega að leggja niður Þjóðkirkjuna á fjárlögum.
Við höfum ekki efni á neinu bruðli.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (60)
28.4.2009 | 19:52
Svínvirkar
Flensan svínvirkar og fer sigurför um heiminn.
Manneskja sem kemur til Íslands beint frá Mexíkó hlýtur að vera mögulegur smitberi þó hún kenni sér einskis meins.
Einmitt þannig berst smit milli landa.
Flensan gæti alveg eins þegar verið komin til landsins.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
28.4.2009 | 16:05
Heimsk þjóð
Undir meðaltali í námsgreinum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (17)
28.4.2009 | 11:46
Veðurvaktin
Hvað er hann Einar Sveinbjörnsson eiginlega að hugsa? Kosningarnar eru búnar en samt er hann ekki aftur byrjaður að blogga um veðrið.
Við svo búið má ekki lengur standa.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.4.2009 | 00:12
Fíflalæti
Atli Gíslason vill láta mynda þjóðstjórn.
Voru þá kosningarnar bara til þess að draga dár að kjósendum?
Þeir ætlast til að stjórnarflokkarnir einbeiti sér að því að takast á við brýnustu vandamál þjóðarinnar.
En ekki láta eins og fífl.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
27.4.2009 | 19:25
Flensan kemur
Svínapestin er nú kominn til Danmerkur og Svíþjóðar samkvæmt fréttum Ríkisútvarpsins.
Eftir viðtali við Harald Briem er dánartala veikinnar hærri en í spönsku veikinni 1918.
Það er tímaspursmál hvenær pestin kemur hingað.
Enda virðist ekkert vera gert til að hindra það. Menn bíða bara tvístígandi.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 19:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (38)
Færsluflokkar
- Allt í plati
- Blogg
- Bloggar
- Bækur
- Efnisyfirlit um veður
- Ég
- Guð sé oss næstur
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Hlýustu og köldustu mánuðir
- Íslensk veðurmet
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Mali
- Mannlífið
- Mánaðarvöktun veðurs
- Menning og listir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Veðurfar
- Veður í annálum og öðrum gömlum heimildum
- Veður um allan heim
- Vísindi og fræði
Tenglar
Blogg
Ýmsir vefir
- Gjósandi eldfjöll
- Kantötur Bachs
- Schubert
- Stjörnuskoðun
- Nótnasafnið
- Torfusamtökin
- Lilta-Ávík
- Blogggáttin
- Doctor E
Blogg
Síður
- Sólarminnstu júlímánuðir
- Þíðukaflar að vetrarlagi í Reykjavík
- Jóla og áramótaveðrið frá 1880
- Sólrík sumur og sólarsnauð
- Sólskin á Íslandi
- Hámarkshiti á landinu um verslunarmannahelgina frá 1949 og veðrið í Reykjavík
- Slær júlí hitamet í Reykjavík
- Óvenju hlý júlíbyrjun
- Nokkrir kaldir janúarmánuðir og kuldadagar
- Hret og snjóar í ágúst
- [ Fleiri fastar síður ]
Eldri færslur
- Mars 2023
- Ágúst 2019
- Desember 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Desember 2017
- Júlí 2017
- Maí 2017
- Febrúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- September 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006