Færsluflokkur: Veðurfar
11.5.2014 | 13:34
Hlý vorbyrjun
Ekki er hægt að kvarta yfir þessari vorbyrjun. Í Reykjavík er spretta gróðurs líklega hálfum mánuði fyrr en venjulega.
Meðalhitinn i Reykjavík er nú 8,15 stig eða 3,4 stig yfir meðallaginu 1961-1990 en 0,3 stig yfir meðallagi þessarar aldar fyrir fyrstu tíu daga maímánaðar. Aðeins var hlýrra þessa daga að meðaltali árin 2011, 2006, 1961 og 1935. Nærri því eins hlýtt var 2008
Ómögulegt er þó að segja til um hvernig mánuðurinn mun reynast í hitanum þegar hann er allur. Maímánuðirnir 2011 og 2006 voru aðeins í kringum meðallagið 1961-1990 en 1961 var með hlýjustu mánuðum og 1935 er hlýjasti maí sem mælst hefur í Reykjavík. Maí 2008 varð vel hlýr. Ef okkar mái héldi núverandi hitafráviki hvers dags upp á við til loka myndi hann þó sló 1935 út og verða hlýjasti maí sem mælst hefur í Reykjavík. En það mun líklega ekki verða.
Á Akureyri er meðalhitinn núna 6, 2 stig eða 2,7 stig yfir meðallaginu 1961-1990.
Úrkoman sem af er má heita í meðallagi bæði í Reykjavík og á Akureyri og það hjálpar auðvitað til með gróðurinn að úrkoman sé nægjanleg.
Sólskinsstundir i Reykjavík eru níu fleiri en meðaltalið fyrstu tíu dagana segir til um.
Ekki hægt að kvarta yfir þessu. Svo er bara að sjá hvað verður með framhaldið.
Veðurfar | Breytt 13.5.2014 kl. 18:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
23.4.2014 | 20:15
Hlýindi
Það hefur víst ekki farið framhjá hinum vorþyrstu að hlýtt hefur verið á landinu í gær og í dag. Í gær komst hitinn mest í 18,1 stig í Skaftafelli en í dag 16,3 á Húsafelli. Ekki eru þetta þó dagsmet, hvað þá mánaðarmet. Hiti hefur nokkrum sinnum komist yfir 20 stig á landinu í apríl og það svo snemma sem þann þriðja.
Slkilyrði hafa verið í háloftunum fyrir um 17 stiga hita eða jafnvel meira á Reykjavíkurvæðinu og víðar en ekki hefur það skilað sér til jarðar. En þetta er sá hiti sem við bíðum eftir hér í Reykjavk að fari að koma í apríl. Mesti hiti sem mælst hefur í Reykjavík í apríl eru snautleg 15,2 stig. þ. 29. árið 1942. En talsvert meiri hiti hefur mælst víða á suður og vesturlandi. En tuttugu stiga hiti hefur aldrei mælst í apríl nema austan til á landinu á nokkrum stöðum. Í dag fór hitinn í Reykjavik í 13,1 stig og 11,1 í gær en á Akureyri komst hitinn í dag í 14, 5 stig en 13,5 í gær. Mesti hiti sem mælst hefur í Reykjavík á sumardaginn fyrsta er 13,5 stig.
Þó engin met hafi hafi verið slegin er þetta svo mikill hiti að hann mun ekki standa nema í fáa daga. Meðaltal hámarkshita í Reykjavík 23. apríl. nær ekki sjö stigum. Í Reykjavík er það ekki fyrr en um 20. maí sem hámarkshiti að staðaldri nær tíu stigum að meðaltali hvern dag og það stendur fram undir 20. september. Það er hins vegar mjög um þetta leyti, kringum sumardagin fyrsta, sem hámarkshiti á landinu að staðaldri nær 10 stigum og stendur fram í miðjan október. En auðvitað geta hlýir dagar komið og farið snemma vors og á haustin.
Meðalhiti þessa mánaðar er tvö stig yfir meðallagi í Reykjavík en tvö og hálft á Akureyri, miðað við 1961-1990, en rúmlega eitt stig á báðum stöðunum miðað við síðustu tíu ár. Næstu daga mun meðalhitinn enn rísa.
Snjólaust hefur verið á Akureyri í um það bil viku og víða annars staðar norðanlands er enginn snjór eða bara flekkótt jörð, jafnvel á Hólsfjöllum og við Mývatn, en alhvít jörð er þó enn á stöku stað.
Fylgiskjalið fylgist með.
Veðurfar | Breytt 10.5.2014 kl. 13:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
12.4.2014 | 13:32
Hlý aprílbyrjun í Reykjavík
![]() |
Páskahretið verður á sínum stað |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Veðurfar | Breytt 23.4.2014 kl. 12:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
1.4.2014 | 14:06
Veturinn er búinn
Þá er vetri lokið samkvæmt hefðbundinni skilgreiningu Veðurstofunnar. Hann er talinn frá desember til mars.
Ekki er hægt að segja annað en veturinn hafi kvatt fremur hlýlega í höfuðborginni. Þar komst hitinn í 10,6 stig í gær og er það enn sem komið er mesti hiti ársins þar á bæ. Meðalhitinn var 2,1 stig eða 1,6 stig yfir meðallaginu 1961-1990 en 0,3 stig yfir meðallaginu það sem af er þessarar aldar. Á Akureyri var meðalhitinn 0,9 stig sem er 2,1 stig yfir meðallaginu 1961-1990 en 0,5 yfir meðallagi aldarinnar. Á landinu er hitinn alls staðar hátt yfir meðallaginu 1961-1990 og vel yfir meðallagi okkar aldar.
Hið sama er að segja um veturinn í heild. Allir vetrarmánuðirnir voru hlýrri en meðaltal þessarar aldar nema desember sem var ansi kaldur. Janúar var hins vegar sá tíundi hlýjasti sem mælst hefur en janúar í fyrra var reyndar sá 8. hlýjasti.
Veturinn í ár var talsvert kaldari en í fyrra en mun samt vera sá fjórði hlýjasti á þessari óvenjulega hlýju öld. Hlýrra var 2003, 2006 og 2013. Þó fullkomið uppgjör fyrir þennan vetur sé ekki komið fram er hægt að átta sig á þessu.
Þetta var því engan veginn kaldur vetur. En þegar að úrkomunni kemur birtist nokkuð óvenjulegt.
Viðast hvar var mikil úrkoma í mars á landinu. Í Reykjavík var hún 115 mm (meðallagið er 82 mm) en til samanburðar náði hún ekki 13 mm í febrúar. Öfgar?? Úrkoman var undir meðallaginu 1961-1990 yfir allan veturinn í Reykjavík og munar þar mest um febrúar. Á Akureyri var úrkoman 104 mm í mars sem er vel yfir tvöfaldri meðalúrkomu en í febrúar var úrkoman þar einnig tvöföld. Í janúar var úrkoman þar enn fremur vel fyir meðallagi og næstum því tvöföld úrkoma var þar í desember. Á Akureyri er veturinn í heild sá næst úrkomumesti síðan mælingar hófust 1928. Aðeins veturinn 1989 var lítillega meiri úrkoma.
Það eru þó smámunir miðað við úrkomuna á austurlandi. Á Skjaldþingsstöðum í Vopnafirði, þar sem mælingar hófust 1994, er þetta lang úrkomusamasti veturinn með heildarúrkomu upp á tæpa 1030 mm! Á Dalatanga, þar sem mælt hefur verið frá 1938 er þetta þriðji úrkomusamasti veturinn, á eftir 1974 og 1990. Ekki var mikill snjór á þessum stöðum því vegna hlýindanna féll mikið af úrkomunni sem regn.
Sjór var talsverður víða á landinu i desember en snjólítið miðað við venju var víðast hvar í byggðum eftir áramót þar til seint í mars. Jafnvel í sjóasveitum eins og á Ólafsfirði var svo til snjólaust lengi vel. En frá þessu voru undantekningar. Vegna hinnar miklu úrkomu austanlands og sums staðar annars staðar var mikill snjór á fjallvegum og einstaka veðurathugunarstöð í byggð. Þeirra á meðal er Akureyri. Þar var fyrst alhvítt 31. október og í nóvember voru alhvítir dagar þar 23 og aftur í desember, alhvítt alla daga í janúar og febrúar og í mars sýnist mér alhvítir dagar hafa verið 29. Ekki veit ég í fljótu bragði hvernig þetta kemur út með tilliti til annarra vetra en örugglega er þetta með mestu snjóavetrum á Akureyri.
Ekki var snjó fyrir að fara í höfuðborginni, 22 alhvítir dagar voru í desember, 4 í janúar, enginn í febrúar og 7 virðist mér í mars.
Furðu sólarlítið var í Reykjavík í mars, aðeins um 73 klukkustundir og meir en 20 stundum færri en í febrúar en sólarstundir í mars eru að meðalatali 111.
Þær tölur sem hér hafa verið nefndar geta breyst lítillega þegar öll kurl koma til grafar.
Fróðlegt verður að sjá uppgjör Veðurstofunnar um þennan hlýja vetur sem óneitanlega var þó nokkuð einkennilegur í hátt og sums staðar æði vetrarlegur . Og gaman verður að sjá hvernig Emil okkar H. Valgeirsson metur þennan mars.
Fylgiskjlalið fyrir april er í gangi.
Veðurfar | Breytt 12.4.2014 kl. 13:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
15.3.2014 | 20:16
Handrukkarar
Veðurfar | Breytt 1.4.2014 kl. 12:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
3.3.2014 | 19:55
Síðasti vetrarmánuðurinn
Hvað skyldi svo mars, síðasti vetarmánuðurinn, bera í skauti sér.
Fylgiskjalið nósnar um það.
Veðurfar | Breytt 15.3.2014 kl. 12:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
28.2.2014 | 17:57
Fjórði þurrasti febrúar í Reykjavík
Þessi febrúar reyndist vera sá fjórði þurrasti sem mælst hefur í Reykjavík frá 1885. Úrkoman var 13,6, mm en var minnst 1966 4,9 mm, 9,0 mm í þeim ískalda febrúar 1885, og 10,0 mm árið 1900. Árið 1838 mældi Jón Þorsteinsson 8 mm í Reykjavík en þær mælingar eru kannski ekki alveg sambæirlegar við síðari mælingar. Úrkomudagar voru núna fimm en frá stofnun Veðurstofunnar 1920 hafa þeir fæstir verið þrír í febrúar 1947, þeim sólríkasta sem mælst hefur og fimm í febrúar 1977. Árið 1966, í úrkomuminnsta febrúar, voru þeir hins vegar 7.
Úrkomuminnsti febrúar sem mælst hefur á landinu í heild er talin vera árið 1900 en næstur kemur frá þeim tíma 1977, 1901 og 1966. Þess má geta að febrúar árið 2010 er talinn sá 11. þurrasti frá 1900 á landinu. Allir búir að gleyma honum!
Sá febrúar sem nú er að líða kemst varla mjög hátt á þurrkalista alls landsins því sums staðar hefur verið veruleg útkoma. En nokkur þurrkamet einstakra stöðva sem allengi hafa athugað veit ég um: Í Stafholtsey í Borgarfirði hefur alls engin úrkoma mælst (stöðin er um 25 ára). Í febrúar 1977 mældust 0,2 mm í Síðumúla í Hvítársíðu. Í Stykkishólmi er þetta næst þurrasti febrúar, alveg frá 1857 en minnst var árið 1977. Á Bergsstöðum í Skagafirði hefur ekki mælst minni febrúarúrkoma eða í nokkrum mánuði, 0,4 mm, frá 1979. Á Þingvöllum, þar sem er sjálfvirk úrkomustöð en var lengi mpönnuð, hefur líklega ekki mælst minni úrkoma í febrúar. Kannski minnir þessi mánuður núna nokkuð á febrúar 1977. Þá var þrálát austanátt eins og nú og meturrkar, í alveg bókstaflegum skilningi, á vesturlandi og mjög þurrt var á norðvestanverðu landinu. En okkar mánuður er miklu mildari en 1977.
Hiti mánaðarins er hár miðað við febrúar eins og sjá má i fylgiskjalinu.
Búið er að setja þennan mánuð inn í úrkomutöfluna í færslunni Úrkoma í Reykjavík.
Vona að ég móðgi engan þó mér finnst þessi febrúar hafa verið góður fyrir Reykvikinga og reyndar allur veturinn sem af er. Ekki hversdagslegt t.d. að hiti komist í 8 stig í glaða sólskini síðasta daginn í febrúar.
Veðurfar | Breytt 4.3.2014 kl. 12:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
26.2.2014 | 20:14
Uppfærðar veðurskrár
Nú hef ég uppfært nokkrar veðurskrár sem hér hafa verið á blogginu. Þær eru:
Íslandsmetin í veðrinu. Veðurmet hvers mánaðar fyrir landið í heild.
Hámarks-og lágmarkshiti hvers mánaðar á landinu í heild. Tölur frá sjálfvirkum stöðum koma líka inn frá 1995 en fram að þeim tíma voru eingöngu mælingar á kvikasilfursmæla.
Veðurmet hvers mánaðar á íslenskum veðurstöðum. Hiti, úrkoma og snjódýpt fyrir einstakar stöðvar.
Sólskin á Íslandi. Mánaðartölur hvers mánaðar fyrir allar stöðvar sem mælt hafa sólskin.
Hámarks- og lágmarkshiti hvers mánaðar í Reykjavík frá 1871.
Sólarstundir í Reykjavík frá 1911.
Fyrstu og síðustu frost og snjóar í Reykjavík.
Mesti og minnsti hiti á Akureyri frá 1882, sólskinsstundir og úrkoma.
Efnisyfirlit un veður á þessari síðu má sjá hér. Og það er líka vísað á yfirlitið á forsíðu þessarar bloggsíðu.
Villur geta verið á sveimi í þessum skrám.
Veðurfar | Breytt s.d. kl. 20:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.2.2014 | 13:08
Metkuldar
Í nótt mældist mikið frost á landinu. Á Neslandatanga við Mývatn fór það niður í -28,2 stig. Það mun vera dægurmet fyrir kulda fyrir 18. febrúar á landinu! Gamla metið var aðeins -20,2 stig og var mælt í Reykjahlíð við Mývatn árið 1966. Dagurinn stóð óneitanlega vel við höggi með sitt hæsta dagslágmark fyrir allan mánuðinn! Mesti kuldi sem mælst hefur í öllum febrúar á landinu er -30,7 stig hinn 4. árið 1980 í Möðrudal.
Í Möðrudal mældist í nótt -26,1 stig, -25,6 í Svartárkoti, -21,8 á Brú á Jökuldal og -20,8 á Staðarhóli í Aðaldal.
Kaldast varð í byggð en ekki á fjöllum. Kaldast á fjöllum var -27,6 stig á Brúarjökli, -27,3 stig við Kárahnjúka og -26,9 við Upptyppinga.
Allt eru þetta sjálfvirkar stöðvar. Ekki hafa enn komið upplýsingar frá mönnuðu stöðvunum en það er eitt af framafaraskrefum Veðurstofunnar að taka hitaupplýsingar frá þeim út af almenna vef sínum en þó eru opnar leynileiðir þangað daginn eftir viðkomandi dag. Á sjálfvirku stöðinni á Grímsstöðum á Fjöllum, þar sem líka er kuldavænasta mannaða stöðin, varð frostið reyndar ''aðeins'' -17,1 stig.
Viðbót 19.2.: Í nótt bættu kuldarnir um betur. Frostið fór í -28,9 stig í Svartárkoti. Það er líka dagshitamet í kulda á landinu fyrir 19. febrúar. Gamla metið var -24,0 stig á Grímsstöðum 1911.
Veðurfar | Breytt 20.2.2014 kl. 13:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
13.2.2014 | 20:08
Það fréttnæmasta um nýliðin janúar
Það er ekki sérlega fréttnæmt að alhvítt hafi verið á Akureyri allan mánuðinn eins og segir þarna í fyrirsögn fréttarinnar. Það gerist næstum því fjórða hvern janúar. Fréttnæmara er að þetta mun vera tíundi hlýjasti janúar á landinu en sá næst hlýjasti við Berufjörð á austfjörðum þar sem mælt hefur verið frá 1873. En allra fréttnæmast er þó það, miðað við óvenjuleika, að þetta er eini janúar síðan mælingar hófust þar sem ekki hefur mælst frost á íslenskri veðurstöð. Á Vattarnesi fór hiti aldrei lægra en í 0,4 stig og 0,0 stig í Seley.
Ýmislegt er reyndar óvenjulegt við þennan janúarmánuð eins og hér má lesa.
Af sérstökum ástæðum hef ég ekki getað sinnt fylgiskjalinu um tíma. En nú er það komið. Það birtir ýmsar veður upplýsingar hvers dags fyrir Reykjavík (blað1) , Akureyri (blað 2) og landið (blað 1) . Hægt er að sjá janúar með því að skrolla upp skjalið.
![]() |
Alhvít jörð á Akureyri allan janúar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Veðurfar | Breytt 15.2.2014 kl. 19:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Færsluflokkar
- Allt í plati
- Blogg
- Bloggar
- Bækur
- Efnisyfirlit um veður
- Ég
- Guð sé oss næstur
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Hlýustu og köldustu mánuðir
- Íslensk veðurmet
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Mali
- Mannlífið
- Mánaðarvöktun veðurs
- Menning og listir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Veðurfar
- Veður í annálum og öðrum gömlum heimildum
- Veður um allan heim
- Vísindi og fræði
Tenglar
Blogg
Ýmsir vefir
- Gjósandi eldfjöll
- Kantötur Bachs
- Schubert
- Stjörnuskoðun
- Nótnasafnið
- Torfusamtökin
- Lilta-Ávík
- Blogggáttin
- Doctor E
Blogg
Síður
- Sólarminnstu júlímánuðir
- Þíðukaflar að vetrarlagi í Reykjavík
- Jóla og áramótaveðrið frá 1880
- Sólrík sumur og sólarsnauð
- Sólskin á Íslandi
- Hámarkshiti á landinu um verslunarmannahelgina frá 1949 og veðrið í Reykjavík
- Slær júlí hitamet í Reykjavík
- Óvenju hlý júlíbyrjun
- Nokkrir kaldir janúarmánuðir og kuldadagar
- Hret og snjóar í ágúst
- [ Fleiri fastar síður ]
Eldri færslur
- Desember 2024
- Mars 2023
- Ágúst 2019
- Desember 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Desember 2017
- Júlí 2017
- Maí 2017
- Febrúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- September 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006